Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.2007, Qupperneq 26

Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.2007, Qupperneq 26
FÖSTUDAGUR 20. JÚLÍ 200726 Hin hliðin DV xxxxxx HIN HLIÐIN ■ Nafn og kyn? Sölvi Tryggvason. Karlmaður síðast þegar ég vissi. ■ Atvinna? Dagskrárgerðarmaður í Íslandi í dag á Stöð 2. ■ Hjúskaparstaða? Eins og hún á að vera. ■ Fjöldi barna? Engin börn. ■ Áttu gæludýr? Nei, engin gæludýr, en hef átt kött og er meira fyrir þá gefinn en hundana blessaða. ■ Ef þú værir bíll, hvaða bíltegund vildir þú vera og hvers vegna? Ég hef blessunarlega ekki lagt í vana minn að heimfæra sjálfsmynd- ina á ökutæki, en mér liði örugglega ágætlega sem svörtum Toyota Avensis. ■ Hefurðu komist í kast lögin? Já. ■ Borðar þú þorramat? Já. ■ Hefur þú farið í megrun? Nei. ■ Græturðu yfir minningargreinum um ókunnuga? Góð spurning. Veistu, það hefur komið fyrir einu sinni eða tvisvar. ■ Hefur þú tekið þátt í skipulögðum mótmælum? Einhverju sinni fyrir langalöngu mótmælti ég ásamt öðrum undir þrumuræðu frá félaga Ögmundi ... þegar ég á æskuárum ungur var... ■ Lestu blogg? Já. ■ Trúir þú á framhaldslíf? Nægum tíma hef ég eytt í að reyna að komast að niðurstöðu, en engar staðfestingar fengið enn. ■ Er líf á öðrum hnöttum? Já, eigum við ekki að segja það. ■ Kanntu dónabrandara? Ég sit uppi með þann beiska kaleik að muna hreinlega ekki brandara sama hvernig ég reyni að grafa eftir þeim, þó að ég hafi heyrt þá í hundraðatali. ■ Kanntu þjóðsönginn? Ég kann stóran hluta af honum, en ekki alveg allan. Ég get hins vegar alls ekki sungið þjóðsönginn án sterkrar tilfinningar um að ég sé að níðast á landinu mínu. ■ Kanntu trúarjátninguna? Nei. ■ Spilarðu á hljóðfæri? Einu sinni spilaði ég á althorn og trompet, en þeir hæfileikar hafa verið til grafar bornir. ■ Styðurðu ríkisstjórnina? Pass. ■ Hvað er mikilvægast í lífinu? 1) Að átta sig raunverulega á því að hamingjan kemur innan frá, 2) að lífið er núna, 3) að vanlíðan skapast ekki af atburðum, heldur hugsun- um um þá. (Pocketbook happyness!) ■ Hvaða fræga einstakling myndirðu helst vilja hitta og af hverju? Mig hefur alltaf langað að hitta Diego Armando Maradona. Ég hef haldið svo mikið upp á hann síðan á HM 1986 að hann hækkar bara í áliti við að skjóta á blaðamenn með haglabyssu og berja dómara í Argentínu (sorry). Misskilinn snillingur af guðs náð. Bill Clinton, Fidel Castro, Zinedine Zidane, Michael Jordan og Jack Nicholson eru líka ofarlega á lista. Allt saman áhugaverðir einstaklingar, sem örugglega væri gaman að hitta yfir kaffi og koníaki. ■ Hefurðu eytt peningum í vitleysu – þá hvaða? Að sjálfsögðu, svo oft að ég get ekki talið það upp hér og nú. ■ Heldur þú með einhverju íþróttafélagi? Liverpool og það meira en góðu hófi gegnir. ■ Hefur þú ort ljóð? Ekki veit ég hvort fylleríisferskeytl- ur geti flokkast sem ljóð, en á stundum hefur andinn komið yfir. ■ Eru fatafellur að þínu mati listamenn? Þær eru eflaust jafn misjafnar og þær eru margar eins og gildir um flestar starfsstéttir. Ekki ætla ég að útiloka að í hópnum leynist listamenn. ■ Eru briddsspilarar að þínu mati íþróttamenn? Nei. ■ Af hverju stafar mannkyninu mest hætta? Miðaldra hvítum karlmönnum með allt of mikil völd. ■ Á að leyfa önnur vímuefni en áfengi? Ekki get ég sagst vera talsmaður þess. Hins vegar er fráleitt að setja öll önnur vímuefni en áfengi undir sama hatt og ef það myndi skila einhverju að lögleiða hass og maríjúana er ég ekki mótfallinn því bara til að vera mótfallinn því. ■ Stundarðu íþróttir? Já, allt frá boltaíþróttum yfir í japanskar skylmingar. ■ Hefurðu látið spá fyrir þér? Nei, það hef ég ekki gert. SÖLVI TRYGGVASON FRÉTTAMAÐUR Á STÖÐ 2
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.