Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.2007, Page 40

Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.2007, Page 40
Ættfræði DV ættfræði U m s j ó n : K j a r t a n G u n n a r K j a r t a n s s o n N e t f a n g k g k @ s i m n e t . i s Í fréttum var þetta helst... 20. júlí 1947 Snorrahátíð í Reykholti Snorri veginn Snorri fæddist 1179 og var veginn í Reykholti 23. september 1241, í aðför Gissurar Þorvaldssonar að staðnum sem þar með var að hlýða fyrirskipun Hákonar Noregskonungs. Menn voru hins vegar ekkert að flagga þeirri stað- reynd í Reykholti fyrir sextíu árum og kannski engin þörf á því. Í fyrsta lagi hafði Snorri, sem léns- maður Hákonar konungs, brotið all- an trúnað gegn honum og haft boð hans og bönn að engu, meðal annars með því að sigla heim til Íslands eftir Örlygsstaðabardaga. Snorri var einn- ig augljós landráðamaður því hann vissi af fyrirhugaðri uppreisn vinar síns, Skúla jarls, gegn konungi, og lét sér fátt um finnast. Í þriðja lagi lögðu íslenskir höfðingjar sem voru hand- gengnir konungi, ekki í vana sinn að sinna erindum hans hér á landi, þó þeir buktuðu sig og beygðu og plott- uðu með honum í konungsgarði. Hér á landi fóru þeir einungis sínu fram og með sína hagsmuni í huga. Þetta átti við um þá alla, Snorra Sturluson, Gissur jarl, Sturlu Sighvatsson og Þórð kakala. Það þurfti því sjaldnast fyrirskipanir frá Noregskonungi til að íslenskir höfðingjar dræpu hver ann- an á Sturlungaöld. Loks má geta þess að konungur lét hafa eftir sér að hann hefði fremur kosið að Snorri hefði lif- að og snúist við fylgi við sig. Það var því líklega engin ástæða til að erfa þetta við Norðmenn í góða veðrinu í Reykholti árið 1947. Þakkarskuld – ekki samviskubit Það er heldur engin ástæða til að ætla að Norðmenn hafi gefið Ís- lendingum styttuna af Snorra vegna samviskubits. Þvert á móti hefur Ól- afur krónprins hitt naglann á höf- uðið í ræðu sinni þegar styttan var afhjúpuð, en þá sagði hann: „Minn- ismerki það sem norska þjóðin gefur Íslandi er ekki til þess reist að varð- veita minning þessa mikilmennis, því sjálfur hefur hann reist sér ódauð- legan minnisvarða með verkum sín- um. – Minnismerkið er til þess gert og þess vegna afhjúpað hér í dag, að við Norðmenn viljum lýsa á varanlegan hátt, í hve mikilli þakkarskuld við telj- um okkur vera við þennan ódauðlega sagnaritara.‘‘ Hér vísaði krónprinsinn til þess að Snorri ritaði sögu norskra konunga frá upphafi og til 1177, sem annars væru engar teljandi heimildir um. Í Heimskringlu er einnig að finna sög- ur konunga í Danmörku og Englandi. Þá ritaði hann Snorra-Eddu á þriðja tug þrettándu aldar sem er elsta og merkasta heimild sem til er um hug- myndaheim hinnar norrænu heiðni, um æsina, um kenningar og heiti í fornum kveðskap og aðrar útskýring- ar á hinum forna kveðskap og ása- trúnni. Loks trúa því margir að Snorri sé höfundur Egils-Sögu, eins mesta meistaraverks Íslendingasagna, en sú skoðun hefur við ýmis sannfærandi rök að styðjast. Virðing og áhugi Norðmanna fyr- ir Snorra hafa ekki verið orðin tóm. Er frú Vigdís Finnbogadóttir, forseti Íslands, lagði hornstein að Snorra- stofu í Reykholti, 1988, var Ólafur, þá Noregskonungur, þar viðstaddur og færði Snorrastofu þjóðargjöf frá Norðmönnum, og er Snorrastofa var opnuð við hátíðlega athöfn, árið 2000, voru Haraldur V. Noregskonungur og Sonja drottning þar viðstödd. Fræðimaður eða framagosi Heimildir um Snorra lýsa engum dýrlingi. Við minnumst hans með stolti sem mesta rithöfundar og sagn- fræðings þjóðarinnar, en hann var óneitanlega einnig fégráðugur og val- dagráðugur höfðingi, sem kvæntist sjálfur og gifti síðan dætur sínar í þeim tilgangi að ná pólitískum markmiðum. Hann kunni öðrum fremur að plotta og pretta og aka seglum eftir vindi. Hann þáði æðstu metorð af Noregskonungi, var tvívegist lögsögumaður á Alþingi, tók þátt í samsærum um að koma Ís- landi undir erlent vald, var fjöllyndur í kvennamálum og barst meira á en flestir aðrir höfðingjar Sturlungualdar. Á hinn bóginn var hann ekki í hópi herskáustu höfðingja Sturlungaald- ar né tók beinan þátt í grimmilegustu níðingsverkum tímabilsins. Hann var alinn upp af Jóni Loftsyni í Odda, helsta mannasætti og menningarhöfðingja síns tíma, og því freistandi að draga þá ályktun að endanlegt markmið hans með valdabröltinu hafi verið að skapa sér fjárhagsleg og pólitísk skilyrði til að sinna fræðistörfum. Ótrúlegt fjölmenni En hátíðarhöldin í Reykholti 1947 voru hvorki staður né stund fyrir vangaveltur um það hvaða mann Snorri Sturluson hafði á end- anum að geyma. Þar var fyrst og síð- ast verið að heiðra minningu fræði- mannsins og skáldsins. Auk Ólafs krónprins héldu þar ræður forseti Íslands, Sveinn Björnsson, Stef- án Jóhann Stefánsson forsætisráð- herra og Jónas frá Hriflu. Þá flutti Davíð Stefánsson ljóð um Snorra sem ort var af þessu tilefni, Matthí- as Þórðarson þjóðminjavörður rifj- aði upp þætti úr sögu Reykholts, gróðursettar voru tólf trjáplöntur frá norskum skógræktarstöðvum og mættir voru á staðinn karlakór- ar Reykjavíkur og Fóstbræðra sem og Lúðrasveit Reykjavíkur með sín ómissandi tónlistaratriði. Síðast en ekki síst voru um það bil átta þúsund manns mætt í blíð- una í Reykholti þennan sunnudag- seftirmiðdag, víðs vegar að af land- inu. Það er ótrúlegur fjöldi þegar haft er í huga að árið 1947 settust menn ekki bara si svona upp í nýja jeppann sinn og óku sem leið liggur Hvalfjarðargöngin og upp í Reyk- holt á einum og hálfum klukku- tíma. Fyrir flesta var slíkt ferðalag þá meira mál en sólarlandaferð er fyrir okkur í dag. Ættfræði DV Kjartan Gunnar Kjartansson rekur ættir þjóðþekktra Íslendinga sem hafa verið í fréttum í vikunni, rifjar upp frétt- næma viðburði liðinna ára og minnist horfinna merkra Íslendinga. Lesendur geta sent inn tilkynningar um stórafmæli á netfangið kgk�dv.is föstudaGur 20. júLÍ 200740 Einar Oddur Kristjánsson Einar Oddur Kristjánsson alþing- ismaður, varð bráðkvaddur laugar- daginn 14. júlí síðastliðinn. Starfsferill Einar Oddur fæddist á Flateyri í Önundarfirði 26.12. 1942 og ólst þar upp. Hann stundaði nám við MA 1959-61. Einar Oddur var skrifstofumað- ur 1961-65 og póstafgreiðslumað- ur á Flateyri 1965-68. Hann var einn stofnenda fiskvinnslunnar Hjálms á Flateyri, var framkvæmdastjóri þar frá 1968, var stjórnarformaður Hjálms hf, Vestfirsks skelfisks hf og Kambs, var alþingismaður Vestfjarða fyrir Sjálfstæðisflokkinn frá 1995 og Norðvesturkjördæmis fyrir Sjálf- stæðisflokkinn frá 2003. Einar Oddur sat í hreppsnefnd Flateyrarhrepps 1970-82, í stjórn Vinnuveitendafélags Vestfjarða 1974-1995, var formaður VSÍ 1989- 1992, sat í varastjórn Sölumiðstöðv- ar hraðfrystihúsanna 1983-89, í aðal- stjórn 1989-94, var stjórnarformaður Vélbátaábyrgðarfélags Ísfirðinga frá 1984, í stjórn Icelandic Freezing Plant Ltd í Grimsby 1987-89, sat í stjórn Sambands fiskvinnslustöðva 1981- 1996 og var formaður Sambands at- vinnurekenda í sjávarútvegi 1992-95, sat í stjórn Atvinnuleysistrygginga- sjóðs 1995, í stjórn Grænlandssjóðs 2001-2004, í stjórn Skógræktarfélags Vestur-Ísafjarðarsýslu frá 1985 og formaður Skjólskóga Vestfjarða frá 1999. Einar var formaður Sjálfstæðifé- lags Önundarfjarðar 1968-79, for- maður fulltrúaráðs Sjálfstæðisflokks- ins í Vestur-Ísafjarðarsýslu 1979-90, formaður kjördæmisráðs Sjálfstæð- isflokksins á Vestfjörðum 1990-92 og var formaður efnahagsnefndar ríkis- stjórnarinnar 1988. Einar Oddur sat í efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis 1995-1999, í sjávarútvegsnefnd 1995-1999, í um- hverfisnefnd 1995-1996, var varafor- maður fjárlaganefndar 1999-2007, sat í landbúnaðarnefnd 1999-2005, í heilbrigðis- og trygginganefnd 2002-2003, í iðnaðarnefnd 2003- 2006, í félagsmálanefnd 2006-2007 og í samgöngunefnd 2007. Hann sat í Íslandsdeild Vestnorræna ráðs- ins 1999-2004 og var formaður þess 2001-2003, sat í Íslandsdeild NATO- þingsins 2004-2007 og var formaður hennar 2004-2005 og sat í Íslands- deild VES-þingsins 2007. Fjölskylda Einar kvæntist 7.10. 1971 Sig- rúnu Gerðu Gísladóttur, f. 20.11. 1943, hjúkrunarfræðingi. Foreldr- ar Sigrúnar voru Gísli Þorleifsson, múrarameistari í Reykjavík, og k.h., Brynhildur Pálsdóttir hjúkrunar- fræðingur. Börn Einars og Sigrúnar eru Brynhildur, f. 1.1. 1973, sagnfræðing- ur í Reykjavík, en maður hennar er Illugi Gunnarsson, hagfræðingur og alþingismaður; Kristján Torfi, f. 21.6. 1977, blaðamaður en unnusta hans er Dagný Arnalds tónlistarkennari og er sonur þeirra Einar Arnalds Krist- jánsson, f. 12.12. 2004; Teitur Björn, f. 1.4. 1980, lögfræðingur. Systir Einars er Jóhanna Guð- rún, f. 11.3. 1941, fyrrv. skólastjóri í Reykjavík. Bróðir Einars, samfeðra, er Sig- urður Guðmundur, f. 24.8. 1924, stýri- maður og húsasmiður í Reykjavík. Foreldrar Einars: Kristján Eben- ezersson, f. 18.10. 1897, d. 1947, skipstjóri á Flateyri, og k.h., María Jóhannsdóttir, f. 25.5. 1907, d. 5.12. 2003. fyrrv. stöðvarstjóri Pósts og síma á Flateyri. Snorrahátíð í Reykholti 1947 talið er að um átta þúsund manns hafi mætt á snorrahátíð í reykholti árið 1947 sem er ótrúlegur fjöldi miðað við þáverandi bílaeign og samgöngur. H&N-mynd Ljósmyndasafn Reykjavíkurborgar - ljósmyndari Pétur Thomsen Fjölmenn hátíð, tileinkuð Snorra Sturlusyni, var haldin í Reykholti í Borgarfirði, sunnu- daginn 20. júlí 1947. Tilefni hátíðarinnar og hápunktur hennar fólst í því að Ólafur, þá Noregskrónprins, afhjúpaði og færði Íslendingum að gjöf frá Norðmönnum, styttu af Snorra Sturlusyni sem enn stendur í hlaðinu í Reykholti. Upphaflega var ætlunin að gefa Íslendingum styttuna á sjö hundruð ára dánartíð Snorra, 1941, en heimsstyrjöldin síðari og hernám Noregs kom í veg fyrir það. Nú kom hins vegar ekkert í veg fyrir það að þess- ar tvær frændþjóðir heiðruðu minningu þessa mikla ritsnill- ings og eins mesta sagnfræð- ings norrænna manna, fyrr og síðar. ANDLÁT

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.