Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.2007, Síða 41
Starfsferill
Ólafur Helgi fæddist í Reykjavík 2.9.
1953. Hann lauk stúdentsprófi frá MR
1972, embættisprófi í lögfræði við HÍ
1978 og lauk námi í opinberri stjórn-
sýslu og stjórnun við Endurmenntun-
arstofnun HÍ 1999.
Á háskólaárunum starfaði hann
m.a. hjá sýslumanninum og bæjarfóg-
etanum á Ísafirði, var dómarafulltrúi
sýslumanns Árnesinga og bæjarfóg-
etans á Selfossi 1978-84, settur bæjar-
fógeti á Siglufirði 1983, skattstjóri Vest-
fjarðaumdæmis 1984-91, sýslumaður
Ísafjarðarsýslu og bæjarfógeti á Ísafirði
1991-1992, sýslumaður þar 1992-2002,
og hefur verið sýslumaður á Selfossi frá
ársbyrjun 2002. Hann var stundakenn-
ari við Gagnfræðaskóla Selfoss, FSU og
MÍ.
Ólafur Helgi sat í stjórn Vöku 1973-
74, í flokksráði Sjálfstæðisflokksins
1978-85, í stjórn FUS í Árnessýslu
1978-85 og var formaður 1979-81, í
stjórn SUS 1979-85, í bæjarstjórn Sel-
fosskaupstaðar 1982-84 og í bæjarráði
1982-83 og 1984, sat í bæjarstjórn og
bæjarráði Ísafjarðar 1986-91, var forseti
bæjarstjórnar og formaður bæjarráðs
1990-91, sat í stjórn Orkubús Vestfjarða
1986-91, var formaður Fjórðungssam-
bands Vestfirðinga 1990-91 og sat í hér-
aðsnefnd og héraðsráði Ísafjarðarsýslu
á sama tíma og formaður skólanefndar
MÍ 1996-2001, hefur setið í stjórn Blóð-
gjafafélags Íslands frá 2002, er formað-
ur félagsins frá 2004 og er gjaldkeri Int-
ernational Federation og Blood Donor
Organization frá 2005.
Fjölskylda
Ólafur Helgi kvæntist 3.10. 1976
Þórdísi Jónsdóttur, f. 3.10. 1958, hús-
móður, stúdent og hárgreiðslukonu.
Hún er dóttir Jóns Magnúsar Magn-
ússonar, yfirverkstjóra í Reykjavík,
og Kristrúnar Bjarneyjar Hálfdánar-
dóttur húsmóður.
Börn Ólafs Helga og Þórdísar eru
Kristrún Helga, f. 29.10. 1980, nemi í
félagsráðgjöf við HÍ; Melkorka Rán, f.
7.6. 1983, nemi í ferðamálafræði við
Foothill College í Kaliforníu; Kolf-
inna Bjarney, f. 5.7. 1992, grunn-
skólanemi; Kjartan Thor, f. 6.7. 1992,
grunnskólanemi.
Hálfbróðir Ólafs Helga, sam-
mæðra, er Jökull Veigar, f. 21.12.
1948, rafvirki, búsettur í Bessastaða-
hreppi.
Alsystkini Ólafs Helga eru Skúli,
f. 1.9. 1954, viðskiptafræðingur og
MBA, búsettur í Colorado í Banda-
ríkjunum; Hjálmar, f. 1.3. 1958, við-
skiptafræðingur og MBA í Reykja-
vík; Bergdís Linda, f. 1.8. 1963, BA í
íslensku og kennari við Borgarholts-
skóla.
Foreldrar Ólafs Helga eru Kjart-
an T. Ólafsson, f. 24.7. 1924, fyrrv.
vélfræðingur við Írafossvirkjun, nú
á Selfossi, og k.h., Bjarney Ágústa
Skúladóttir, f. 26.10. 1926, húsmóðir.
Ætt
Systir Kjartans er Ragnhild-
ur, móðir Árna R. Árnasonar alþm.
Kjartan er sonur Ólafs Helga, út-
vegsb. á Látrum í Aðalvík Hjálm-
arssonar, b. í Stakkadal Jónssonar.
Móðir Hjálmars var Ásta Theóphíl-
usdóttir. Móðir Ástu var Gróa Árna-
dóttir frá Látrum. Móðir Gróu var
Ásta Guðmundsdóttir, pr. á Stað Sig-
urðssonar, pr. í Holti Sigurðsson-
ar, prófasts þar Jónssonar, prófasts
í Vatnsfirði Arasonar, sýslumanns í
Ögri Magnússonar prúða. Móðir Sig-
urðar Sigurðssonar var Helga Páls-
dóttir, prófasts í Selárdal Björnsson-
ar, sýslumanns á Bæ Magnússonar,
bróður Ara. Móðir Helgu var Helga
Arngrímsdóttir, lærða á Mel Jóns-
sonar. Móðir Ólafs Helga á Látrum
var Ragnhildur Jóhannesdóttir frá
Stakkadal en móðir hennar var Her-
borg, systir Sigurfljóðar, langömmu
Árna Gunnarssonar, fyrrv. alþm, og
systir Zakaríasar, langafa Rannveig-
ar Guðmundsdóttur, fyrrv. alþm.
Herborg var einnig systir Ingibjargar,
langömmu skáldkvennanna Fríðu
og Jakobínu Sigurðardætra. Herborg
var dóttir Zakaríasar, b. í Stakka-
dal Zakaríassonar. Móðir Zakarías-
ar yngri var Björg, systir Gróu. Móðir
Kjartans var Sigríður Jóna Þorbergs-
dóttir, b. í Efri-Miðvík í Aðalvík Jóns-
sonar og Oddnýjar Finnbogadóttur.
Móðir Oddnýjar var Herborg Kjart-
ansdóttir, Sigurðssonar, Pálssonar,
bróður Jóns, langafa Valdimars, föð-
ur Hannibals ráðherra, föður Jóns
Baldvins, fyrrv. ráðherra.
Bjarney Ágústa er dóttir Skúla,
skipasmíðameistara á Ísafirði Þórð-
arsonar Grunnvíkings, fræðimanns
á Ísafirði Þórðarsonar, alþm. í Hatt-
ardal, bróður Hjalta, föður Magn-
úsar á Þröm (Ljósvíkings). Þórð-
ur alþm. var sonur Magnússar, pr. á
Rafnseyri Þórðarsonar. Móðir Þórðar
alþm. var Matthildur Ásgeirsdóttir,
pr. í Holti Jónssonar, bróður Þórdísar,
móður Jóns forseta. Móðir Matthild-
ar var Rannveig, systir Jóns Mathie-
sen, langafa Árna, föður Matthíasar
Mathiesen, fyrrv. fjármálaráðherra,
föður Árna fjármálaráðherra. Rann-
veig var dóttir Matthíasar, stúdents
á Eyri Þórðarsonar, ættföður Vigu-
rættar Ólafssonar, ættföður Eyra-
rættar Jónssonar. Móðir Bjarneyjar
Ágústu var Sigrún Finnbjörnsdóttir,
skipasmiðs í Hnífsdal, bróður Hild-
ar, tengdamóður Einars Guðfinns-
sonar eldra í Bolungarvík, afa Einars
K. Guðfinnssonar, sjávarútvegs og
landbúnaðarráðherra. Finnbjörn var
sonur Elíasar, í Æðey Eldjárnssonar,
bróður Péturs, langafa Gissurar, föð-
ur Hannesar Hólmsteins pófessors.
Móðir Sigrúnar var Ketilríður Árna-
dóttir frá Skálavík í Aðalvík.
DV Ættfræði föstudagur 20. júlí 2007 41
Merkir Íslendingar:
MaÐUr VikUnnar
Ólafur Helgi Kjartansson
sýslumaður á Selfossi
Einar Guðnason
f. 19. júlí 1903, d. 14. janúar 1976
Séra Einar Guðnason, sóknar-
prestur í Reykholti í Borgarfirði,
fæddist á Óspakseyri í Hrútafirði.
Hann var sonur Guðna Einarsson-
ar, bónda þar, og k.h., Guðrúnar
Jónsdóttur húsfreyju.
Bróðir Einars var Jón Guðna-
son, prestur á Prestbakka í Hrúta-
firði og síðar skjalavörður við Þjóð-
skjalasafnið, faðir rithöfundanna
Guðrúnar, Ingólfs og Torfa, þess er
sá um útgáfu Æviskráa samtíðar-
manna.
Einar lauk stúdentsprófi frá
Menntaskólanum í Reykjavík 1924
og embættisprófi í guðfræði frá
Háskóla Íslands 1929. Hann var
heimiliskennari að Brekku í Fljóts-
dal 1924-1925 og stundakennari
við Ungmennaskólann í Reykjavík
1929-1930.
Einar varð sóknarprestur í Reyk-
holti í Borgarfirði 1930 og þjónaði
Reykholtssókn í rúm fjörutíu ár eða
til 1972 er hann lét af störfum fyr-
ir aldurs sakir. Þá var hann prófast-
ur í Borgarfjarðarprófastsdæmi frá
1966.
Einar var mikill menningar-
stólpi í Borgarfirði á sinni tíð og lét
sér sérstaklega annt um hið forna
höfuðból, Reykholt, sögu þess og
staðarímynd.
Hann var kennari við Héraðs-
skólann í Reykholti í þrjátíu og
fjögur ár, formaður Fræðsluráðs
Borgarfjarðarsýslu um árabil, for-
maður skólanefndar Héraðsskól-
ans og formaður Reykholtsnefndar.
Þá var hann lengi prófdómari við
skólann.
Eiginkona Einars var Anna
Bjarnadóttir enskukennari.
Ólafur Helgi Kjartansson,
sýslumaður á Selfossi, upplýsti
það í DV á þriðjudaginn að
hann byrjaði hvern morgun á
því að fá sér lýsi. Hann er hins
vegar vel að því kominn að
vera maður vikunnar hér á DV
fyrir gott fordæmi í að draga úr
hraðakstri á Suðurlandsvegin-
um í hans umdæmi.
Magnús Gylfason,
þjálfari Víkings í meist-
araflokki karla í knatt-
spyrnu, fæddist í Reykja-
vík en ólst upp í Ólafsvík.
Hann lauk prófum frá
Tækniskóla Íslands og
hefur lokið fjölda UEFA-
gráða í knattspyrnuþjálf-
un á vegum KSÍ.
Magnús starfrækir,
ásamt föður sínum, fisk-
útflutningsfyrirtækið
Svalþúfu ehf í Hafnar-
firði. Hann æfði og keppti
í knattspyrnu með yngri
flokkum KR og með meistara-
flokki KR, ÍR, Stjörnunnar og Vík-
ings í Ólafsvík. Hann þjálfaði yngri
flokka KR í knattspyrnu um árabil,
meistaraflokk karla í knattspyrnu
hjá ÍBV og KR og hefur
verið þjálfari meistara-
flokks karla hjá Víkingi
frá 2006.
Fjölskylda
Kona Magnúsar er
Halldóra Sjöfn Róberts-
dóttir, f. 19.2. 1966, hár-
greiðslukona.
Dóttir Magnúsar og
Halldóru Sjafnar er Dag-
ný Dís Magnúsdóttir, f.
24.9. 1988, nemi við Há-
skólann í Reykjavík.
Foreldrar Magnús-
ar eru Gylfi Magnússon, f. 15.1.
1942, starfrækir fiskútflutnings-
fyrirtæki með Magnúsi, og Guð-
rún Blöndal, f. 8.8. 1945, fulltrúi
hjá Tryggingastofnun.
Stefán V. Stefánsson
fæddist í Reykjavík og
ólst þar upp. Hann lauk
sveinsprófi í húsasmíði
frá Iðnskólanum í Reykja-
vík.
Stefán hefur lengst af
starfað við húsasmíðar og
hefur starfað sjálfstætt sl.
tíu ár. Hann hefur verið
búsettur á Blönduósi frá
1988.
Fjölskylda
Kona Stefáns er Árný
Þóra Árnadóttir, f. 25.7.
1963, matvælafræðingur. Hún er
dóttir Árna S. Jóhannssonar og
Bryndísar Ármannsdóttur.
Dóttir Stefáns og Margrét-
ar Pálsdóttur er Eyrún
Margrét, f. 20.7. 1979 en
börn hennar eru Birta
Líf Bjarkadóttir, f. 20.10.
1996, og Eysteinn Ernir
Sverrisson, f. 6.6. 2007.
Börn Stefáns og Ár-
nýjar Þóru eru Daníel
Valgeir Stefánsson, f. 4.4.
1988; Brynjar Árni Stef-
ánsson, f. 8.4. 1990; Þór-
unn Marta Stefánsdóttir,
f. 3.6. 1998.
Foreldrar Stefáns: Stef-
án Sigtryggsson, f. 29.6.
1934, d. í apríl 2002, bif-
reiðastjóri, og k.h., Hulda Jakobs-
dóttir, f. 30.7. 1937, iðnverkakona.
Stefán verður að heiman á af-
mælisdaginn.
Magnús Gylfason
knattspyrnuþjálfari
Stefán V. Stefánsson
húsasmiður á Blönduósi
60
ára á
þriðjudag
40
ára
í dag