Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.2007, Side 42

Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.2007, Side 42
FÖSTUDAGUR 20. JÚLÍ 200742 Helgarblað DV Stefán Máni Geðlyf þyrftu að fylgja bókinni „Síðasta bók sem vakti slíka aðdáun var Brekkan sem Kristian Guttesen sneri úr norsku, að ég held, en höfundurinn heitir Frode-eitthvað og er augljóslega hörkufínn penni. Brekkan er saga geð- sjúks manns sem röltir með hjálp höf- undarins inn í hausinn á lesandanum og tekur hann með sér í ferðalag sem erfitt er að gleyma. Þetta er ljót bók og óþægileg aflestrar en sagan er trúverðug og geðveiki söguhetjunnar smitast yfir í þann sem les. Best væri að geðlyf fylgdu bókinni, svona til öryggis. Svona áhrifa- mikla bók vilja allir höfundar skrifa. Ég tek ofan fyrir honum Fróða kollega mín- um frá Noregi. Eða var það Svíþjóð?“ Iðunn Steinsdóttir Veronika vekur vangaveltur „Það eru tvær bækur sem koma fyrst í hugann. Önnur er Veronika ákveður að deyja eftir Paulo Coelho og hin er Villtir svanir eftir Jung Chang. Ætli ég velji ekki bara Veroniku. Bók- in Veronika ákveður að deyja hreif mig svo að ég átti erfitt með að leggja hana frá mér. Þegar leið á lesturinn sóttu á mig vangaveltur um það hver væri eigin- lega „normal“ og hvað það væri að vera „normal“. Ég lánaði vinkonu minni bók- ina og strax þegar ég fékk hana til baka las ég hana aftur. Það góða við svona bækur er að mað- ur getur lesið þær endalaust og alltaf haft jafngaman af þeim.“ Hallgrímur Helgason Hlypi Laugaveg- inn fyrir línur úr Absurdistan „Þær eru margar. Ég nefni bara Lol- itu eftir Nabokov, Frú Bovary eftir Flau- bert og Njálu auðvitað. Þessa dagana er ég svo að lesa bók sem vel má öfunda höfundinn af: Absurdistan eftir hinn rússneska Ameríkana Gary Shteyngart. Ég er reyndar bara hálfnaður með hana en þarna eru línur sem maður væri til í að hlaupa Laugaveginn fyrir. Aðalper- sónan, hinn rappelskandi Rússi Misha Vain berg, er stærri en lífið sjálft, undra- fyndinn alheimsheili, svona karakter sem kemur aðeins upp í hendurnar á allra heppnustu höfundum. „Við lesum bækur í leit að heila sem er frumlegri en okkar,“ segir bókmenntapáfinn Harold Bloom og hér er einn slíkur.“ Olga Guðrún Árnadóttir Stundum næstum öfundsjúk „Ég er til allrar hamingju alltaf að rekast á bækur við og við sem heilla mig svo mik- ið að ég óska þess að hafa haft hugmynda- flug, vit, tilfinningu og innsæi til að skrifa slík snilldarverk. Og það gleður mig allt- af jafn mikið þegar ég uppgötva að ég er með eitthvað einstakt og magnað í hönd- unum milli spjaldanna, nýjan heim, nýja vini, ný tækifæri til að hugsa eitthvað alveg splunkunýtt. Ólíkar bækur geta vakið þessa tilfinningu, en einkum eru það skáldsögur, bæði fyrir börn og fullorðna, og ljóðabæk- ur sem gera mig svona glaða - og stundum næstum því öfundsjúka. Ég myndi til dæm- is gjarnan vilja hafa skrifað hinar djúpvitru og stórkostlega frumlegu Múmínálfabækur Tove Janson og hina yndislegu Bróður minn Ljónshjarta sem Astrid Lindgren var svo heppin að láta sér detta í hug. Af íslensku barnabókunum sem standa hjarta mínu næst nefni ég þá fallegu bók Engil í Vestur- bænum eftir mína kæru vinkonu Kristínu Steinsdóttur. Flestar bækur Charles Dick- ens eru á listanum, svo frábærlega langar og með öllu þessu stórkostlega fólki sem stendur manni ljóslifandi fyrir hugskots- sjónum það sem eftir er ævinnar. Í ljóða- deildinni vildi ég hafa skrifað allar bækur Snorra Hjartarsonar, Þorsteins frá Hamri og Ingibjargar Haraldsdóttur, Kvæði Jakobínu Sigurðardóttur, Rauða svifnökkvann hans Ólafs Hauks Símonarsonar, Minningabók Vigdísar Gríms og ljóðin hennar Kristínar Ómars, prentuð og óprentuð. Af nýlegum erlendum bókum get ég nefnt Behind the Scenes at the Museum eftir bresku skáld- konuna Kate Atkinson, sem kom út 1995 og er einstaklega safarík, fyndin og vel skrifuð skáldsaga um jafnöldru mína, Ruby, fædda um miðja síðustu öld í York á Bretlandseyj- um. Ég fylgist vel með breskum höfundum, bæði innfæddum og aðfluttum, og Atkin- son er í uppáhaldi þótt bækurnar hennar séu ekki allar jafn góðar. En hún hefur stór- kostlega skemmtilegan húmor ásamt því að vera frábær sögumaður og minnir mig að ýmsu leyti á Dickens. Sem rithöfundur finnst mér afar eftirsóknarvert að geta bros- að út í annað á meðan maður segir sögur af misjafnlega vel heppnuðu brölti manneskj- unnar gegnum tilveruna.“ Allir vildu Lilju kveðið hafa... Níu valinkunnir rithöfundar voru fengnir til þess að svara spurningunni: Hefur þú ein- hvern tímann lesið bók sem þú hefðir viljað kveða sjálf/ur og hvers vegna? Flestir segj- ast hafa hugsað það einhvern tímann við lestur einstaklega eftirminnilegrar bókar. Sumir viðurkenna jafnvel að hafa fundið til öfundar. VILDIR ÞÚ HAFA SKRIFAÐ? HVAÐA BÓK

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.