Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.2007, Page 46
föstudagur 20. júlí 200746 Helgarblað DV
Undurgott
kúskús
ljúffengt með lambakjöti
200 g kúskús (tipiak)
10 g kanilduft
10 þurrkaðar fíkjur
5 döðlur
50 g rúsínur
safi úr 1 appelsínu
safi úr 1/2 sítrónu
50 g hunang
50 g furuhnetur
50 g möndlur
10 fersk myntulauf
1 appelsína
Hellið kúskús í stóra skál og þekið með
sjóðandi vatni (svo rétt fljóti yfir). Þekið
með loki og leggið til hliðar. setjið
appelsínu- og sítrónusafa, fíkjur, döðlur,
rúsínur, kanil, hunang, furuhnetur og
möndlur í pott (sem ekki festist við) og
látið krauma um stund. Bætið
appelsínubitum saman við í lokin og
sjóðið þar til allt hefur fengið á sig
gullbrúnan lit. Blandið ávöxtunum
saman við kúskús. Hellið á fat og
skreytið með myntulaufum og
appelsínubitum.
U m s j ó n : Þ ó r u n n S t e f á n s d ó t t i r . N e t f a n g t h o r u n n @ d v . i s
&Matur vín
Segðu það með kryddi
Hvert land á sína sérrétti og oft er auðvelt að átta sig á hvaðan ákveðnir
réttir eru upprunnir eftir því hvernig og með hverju þeir eru kryddaðir.
ítalskur matur inniheldur tómata og óreganó, franskur matur einkennist
af víni og tarragoni, sýrður rjómi er einkennandi fyrir rússneska matar-
gerð og í grikklandi er maturinn gjarnan kryddaður með sítrónu og kanil.
Kínverjar eru ósparir á sojasósuna og hvítlaukur gerir allan mat enn betri
án tillits til uppruna hans.
Brómberjaísréttur
Hráefni:
2 msk. sykur
1 pakki fersk mynta, laufin söxuð gróft
300 g fersk brómber
750 ml góður vanilluís
200 g gott kex með sítrónubragði
aðferð:
setjið matarfilmu innan í stórt, ílangt
bökunarform. Nógu mikið til að geta
breitt yfir ísréttinn þegar búið er að fylla
formið. setjið sykur í pott með 4 msk. af
köldu vatni og látið suðuna koma upp.
Hrærið þá myntunni saman við. geymið
nokkur brómber til skreytingar og setjið
síðan helminginn af berjunum sem eftir
eru út í pottinn og sjóðið í 3-4 mínútur.
takið af hitanum, kælið aðeins og
blandið því næst í matvinnsluvél og
sigtið. setjið ísinn í skál og látið hann
þiðna aðeins, en ekki bráðna. skerið
afganginn af berjunum gróft og blandið
við ísinn með gaffli. Hrærið kexinu
saman við og helmingnum af berja-
sósunni þar til blandan verður marglit.
geymið afganginn af berjasósunni.
setjið ísblönduna í bökunarformið og
lokið filmunni. frystið í 4-5 tíma. takið út
úr frystinum 10-15 mínútum áður en
bera á fram. Hvolfið ísnum á fat og
hellið afgangnum af sósunni yfir og
skreytið loks með berjunum sem eftir
voru.
Guðmundur H. Melberg Loftsson á La Primavera Meistarinn
GRILLAÐURsmákjúklingur
Guðmundur H. Melberg
Loftsson er matreiðslumað-
ur á ítalska veitingastaðn-
um La primavera en hann
útskrifaðist úr matreiðslu-
námi við Menntaskólann í
Kópavogi í janúar árið 2005.
Guðmundur er fæddur í
Færeyjum árið 1981 en
alinn upp á Húsavík.
grillaður smáKjúKliNgur með
sætum Kartöflum, sumarsalati
og BalsamiK Kavíar
Uppskrift fyrir fjóra
Smákjúklingur:
l 2 stk. smákjúklingar
l 40 gr rósmarin
l 3 stk chili
l 10 stk hvítlauksgeirar
l 1 mts tómatpurre
l 8 msk ólífuolía
Smákjúklingurinn úrbeinaður
þannig að bringa og læri sé fast
saman á skinni, kjúklingurinn er því
næst látinn marinerast yfir nóttina.
Marinering:
Rósmarin er gróft saxað ásamt
chili, hvítlaukur til helminga,
tómatpurre og olía blandað saman
í skál svo er restinni blandað við,
smákjúklingurinn er velt vel upp úr
mariningunni ásamt smá möluðum
pipar (fer eftir smekk).
Kartöflur:
1-2 sætar kartöflur (eftir stærð)
skrældar og skornar í teninga.
Steiktar á pönnu með olíu í ca. 3-4
mín.
Kryddað til með salti, pipar og
t.d. ferskri salvíu. Kartöflurnar eru
því næst settar í örstutta stund inn
í ofn.
Sumarsalat:
l 1 poki rukolasalati
l 1 rauð paprika
l 1 fennel (meðalstór)
l 1 dós af ricottaosti
Paprikan er bökuð í ofni á ca.
200°C–230°C í 30 mínútur, síðan
sett í skál og plastfilma yfir í um
20 mín. Húðin er því næst tekin af
paprikunni ásamt kjarna, loks er
hún skorin í strimla. Fennel skorið
mjög þunnt, enn betra væri að nota
mandolín sem þó er óvíst að fáist á
hverju heimili. Öllu hráefninu er að
lokum blandað saman og saltað og
piprað að vild.
Balsamik kavíar:
l 100 ml balsamik
l 10 stk matarlímsblöð
l 250 ml ólífuolía
Olían sett í skál og inn í kæli,
matarlímsblöðin sett í vatn og
balsamkið er sett í pott og hitað
að suðumarki þá er það tekið af og
matarlími bætt út í eitt í einu svo er
þetta kælt í ca. 30 mín. Olían tekin
úr kæli og þú finnur þér góða skeið
eða eitthvað sem er þægilegt að
láta dropa úr, tekur smá balsamik í
skeiðina og lætur litla dropa detta
ofan í olíuna þá verður balsamikið
að kúlum eins og kavíar.