Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.2007, Síða 49
DV Helgarblað FÖSTUDAGUR 20. JÚLÍ 2007 49
MEIRA UM FLEIRI LITI
Dries Van Noten var með fallega litapallettu þegar hann
sýndi sumar- og vorlínuna sína núna. Eitt af því sem við
viljum meira af er litir eins og þessi guli afgerandi litur
sem hann notaði óspart. Það er ekki nóg að vera með
einn gulan lit heldur viljum við geta fundið eitthvað fal-
legt í hinum ýmsu afsprengjum gula litarins.
ÞARNA SKEIT HÚN FEITT Á SIG
Ó, ó, þetta er alls ekki málið. Sienna Miller er ein af þeim sem
klikka sjaldan hvað varðar útlitið og dressin. En að þessu
sinni má aldeilis segja að hún hafi klikkað feitt. Hatturinn,
skórnir og stuttbuxurnar, sem varla sjást, gera ekki mikið fyrir
hana annað en að láta hana líta druslulega og subbulega út.
Persónan
Shelly Steffee er sögð vera efnileg og margir af helstu
tískuspekúlöntum fylgjast grannt með henni. Hún er
staðsett í New York og fötin einkennast af skörpum
línum og mörgum lögum. Fötin hennar eru jafn
alvarleg og hún enda segist hún hanna föt sem vekja
upp tilfinningar. Fötin hennar fljóta á líkamanum þar
sem hún segist vilja sjá skinnið undir fallegum lögum
af efni. Hún leggur upp úr einfaldleika, kvenleika og
lifandi línum efnisins. Fyrir þá sem vilja vita meira og
kaupa flíkur frá henni geta kíkt á heimasíðuna hennar,
http://www.shellysteffee.com/.
FYLGIST MEÐ HENNI
Í FRAMTÍÐINNI
Þokkadísin með rassinn góða Í MINNINGU GIANNI VERSACE
Á sunnudaginn var slegið upp minningarathöfn fyrir tískukónginn
Versace en þá voru liðin 10 ár síðan hann féll frá. Gianni Versace var
drepinn fyrir utan heimili sitt 15. júlí árið 1997 af fjöldamorðingjan-
um Andrew Cunanan. Vinir og vandamenn flykktust til að heiðra
minningu hans. Systkinin Santo og Donatella Versace sáu um
dagskrána sem hófst á ballettsýningu í óperuhúsinu La Scala og
síðan kvöldverður fyrir allan herskarann. Blessuð sé minning hans og
sakn, sakn.
Saga
Nafn? Saga Sigurðardóttir.
Aldur? 20 ára.
Starf? Ljósmyndari og háskólanemi.
Stíllinn þinn? „Sögulegur“. Háir hælar, skær
varalitur, litríkir, áberandi kjólar, pallíettur og
polka dots og villt sólgleraugu.
Hvað er möst að eiga? Varalit og flott
sólgleraugu.
Hvað keyptir þú þér síðast? Geðveikt
skauta-pallíettu-outfit sem er eins og
smóking, gullleðurstuttbuxur og hvítan
fallegan korsilettu fiftís kjól með perlum.
Hverju færð þú ekki nóg af? Skóm. Ég á
svakalega mikið af skóm, komið vel á annað
hundraðið, er reyndar í smá skókaupapásu og
er núna sjúk í kjóla.
Hvert fórstu síðast í ferðalag? Síðast fór ég
til New York í apríl, annars fór ég síðast til
Vestfjarða í mánuðinum.
Hvað langar þig í akkúrat núna? Bleikan
gítarsundbol úr nýju Jeremy Scott-línunni,
skó með gegnsæjum hæl úr KronKron, kjól frá
Christofer Kane, alla Gareth Pugh-línuna eins
og hún leggur sig... og fleiri fleiri Eley
Kishimoto-skó!
Perlur hér heima? Þingvellir, V-Skaftafells-
sýsla og Skálholt, staðirnir sem ég ólst upp á!
Hvenær fórstu að sofa í nótt? Allt of seint!
Hvenær hefur þú það best? Með Ella
kærastanum mínum og fjölskyldunni minni.
Afrek vikunnar? Ég er búin að vera rosa
dugleg að taka myndir í portfolíóið mitt.
Shelly Steffee er
fræg fyrir fallegar
og óvenjulegar
sokkabuxur. Hin
frumlegi Jeremy
Scott fékk hana
til að hanna fyrir
sig sokkabuxur
til að nota við
nýjustu línuna
sína. Úr varð hinn
dýrindiskoktell í
virtu glanstíma-
riti í hinum stóra
heimi.
Donatella Versace
systir Giannis
Naomi Campbell ásamt
bróður Giannis, Santo Versace Jessica AlbaClaudia Schiffer
Bolirnir eru flottir á.
Shelly Steffee