Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.2007, Page 50

Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.2007, Page 50
FÖSTUDAGUR 20. JÚLÍ 200750 Sakamál DV SAKAMÁL Fyrir rétt tæpri viku, laugar- dagskvöldið 14. júlí, stóð hin fer- tuga Robin Munis á sviði veitinga- staðarins Old Chicago í Wyoming í Bandaríkjunum. Þar tróð hún upp ásamt hljómsveit sinni og spilaði fyrir matargesti. Það hafði hún gert áður og reiknaði með að gera áfram. En eiginmaður hennar hafði önnur áform. Rétt eftir miðnætti hneig hún niður, skotin einu skoti beint í hjartað. David Munis, þrjá- tíu og sex ára eiginmaður hennar, sem er þjálfuð skytta í þjóðvarðliði Wyoming, er sá eini sem grunað- ur er um verknaðinn. Þau höfðu verið skilin að borði og sæng í nokkrar vikur og fyrr um kvöldið hafði Robin fengið ótal óhugnan- leg símtöl frá honum. Einnig hafði hún kvartað til yfirvalda áður vegna -ítrekaðra símhringinga frá honum, þótt þar hefði ekki verið um beinar hótanir að ræða. Ótal vitni staðfestu að David hefði ráfað um í nágrenn- inu þetta kvöld og trukki svipuð- um þeim sem hann á var ekið á brott úr nágrenninu skömmu eftir morðið. Lögreglan útilokaði gesti inni á veitingastaðnum sem grun- aða enda kom skotið utan frá af um það bil hundrað metra færi. Enginn sá David Munis fremja verknaðinn og ekkert skotvopn hefur fundist. Engu að síður er hann sá eini sem lögreglan hef- ur grunaðan því aðeins einu skoti var hleypt af og einungis Robin Munis féll í valinn. Davids Munis er nú leitað af lögreglu sem segir hann vopnaðan og mjög hættulegan. Á meðan eiginkonan tróð upp ásamt hljómsveit sinni á Old Chicago-veitingastaðnum í Wyoming í Bandaríkjunum, bruggaði eiginmaðurinn henni launráð: Eiginkonan skotin á sviðinu Söguhetjur þessarar frásagnar eru fjórir ónafngreindir Pólverjar. Ekki endilega dæmi- gerðir Pólverjar og sennilega ekki bestu eintök pólsku þjóðarinnar. Hvað sem því líður eru þeir orðnir landsþekktir í Noregi og ekki að góðu einu saman. Þeir voru teknir fastir, fundnir sekir og dæmdir til tveggja mánaða fangelsisvistar. Ein- falt í sjálfu sér skyldi maður ætla. En framhaldið varð annað en aðstæður gáfu tilefni til. Pólverjarnir fjórir voru handteknir vegna margra aðskilinna þjófnaða. Afrakstur þessarar atvinnu þeirra var góður, enda höfðu þeir verið duglegir við iðju sína og dugnaður Pólverja róm- aður og þeir eru eftirsóttur vinnukraftur víða um lönd. En þjófnaðir og rán eru kannski ekki endi- lega það sem haft er í huga þegar innflytjend- um er veitt tímabundin landvistarleyfi. En allt að einu. Það var leiðin sem þessir fjórir kumpánar völdu. Í stað hins mjóa vegar dyggðugs lífernis lá leið þeirra um refilstigu afbrota, innbrota, hnupls og þjófnaðar í landi frænda okkar, Noregi. Ekki liggur ljóst fyrir hve lengi þeir félagarnir stund- uðu iðju sína, en hún fórst þeim vel úr hendi og lengi vel tókst þeim að forðast hinn langa arm laganna. Lukkan er hverful... En góðir hlutir taka enda og sú varð einnig raunin hjá þessum harðduglegu Pólverjum. Einn góðan veðurdag tókst hinum norsku laganna vörðum að koma á þá böndum. Nú skyldi réttar- kerfið taka við, útdeila refsingu við hæfi og tryggja að löghlýðnir Norðmenn og aðrir þeir sem byggja Noreg, gætu vitjað Óla Lokbrár í fullvissu þess að hinir pólsku Kasper, Jesper og Jónatan og einn til, væru ekki að læðupúkast um hýbíli þeirra í skjóli nætur. Og verslunareigendur þyrftu ekki að upp- lifa að vörur úr hillum verslana þeirra hyrfu líkt og dögg fyrir sólu, rétt á meðan þeir þjónustuðu þá sem kusu að greiða fyrir vörurnar. Réttarkerfið tók strax til hendinni. Ermar voru brettar upp og fullt kapp var lagt á að ljúka þessu máli. Í grjótið skyldu þessir kújónar, sem höfðu valsað um í hinu heiðvirða norska samfé- lagi rænandi og ruplandi, eins og Noregur væri einhvers konar útópía þar sem allt væri ókeyp- is og sjálfsafgreiðsla væri lykillinn að velmegun. Sá misskilningur skyldi nú leiðréttur og notuð til þess rétt meðul. ...eða hvað? Norska réttlætið vinnur hratt. Á þeirri viku sem leið frá því hinir fræknu fjórir Pólverjar voru handteknir náði lögreglan fram játningu og refs- ingin var ákveðin tveir mánuðir. En Adam var ekki lengi í Paradís því varla hafði dómarinn sleg- ið hamri sínum í púltið, eða hvernig sem frændur okkar gera þetta, þegar Pólverjarnir vinkuðu glað- beittir laganna vörðum og kvöddu með virktum. Dugnaðarforkarnir fjórir höfðu fengið frítt fæði og uppihald í viku á kostnað ríkisins. Reyndar þurftu þeir líka að sjá á bak afrakstri sumarvinn- unnar, en það var einungis tímabundið bakslag. Ekkert var því til fyrirstöðu að þeir gætu tekið upp þráðinn þar sem frá var horfið. Öll fangelsi voru yfirfull og hið opinbera bjó ekki yfir nokkrum ráðum til að finna þeim þak yfir höfuðið þar sem rimlar væru fyrir gluggum. Pólverjarnir gátu um frjálst höfuð strokið, axlað tóma sekki sína sem biðu þess eins að vera fylltir með eigum annarra, teknum ófrjálsri hendi. Lögreglu er ekki skemmt Arne Johannessen saksóknara var ekki hlátur í huga þegar lyktir málsins urðu ljósar. Hann ótt- ast að Noregur verði vinsælt land meðal erlendra glæpagengja þegar þetta spyrst út. Johanness- en sagði að svona upplýsingar breiddust fljótt út manna á milli í þessari starfsgrein og yrðu þess valdandi að Noregur yrði eftirsóknarverður kost- ur hjá þeim sem hafa þjófnaði og glæpi að lifi- brauði. Einnig taldi hann að þessar málalyktir kæmu ekki til með að virka sem hvati á lögreglu- menn, sem í þessu tilfelli hefðu sinnt sinni vinnu óaðfinnanlega til þess eins að horfa á eftir glæpa- mönnunum út í frelsið á ný. Syndin er lævís Hann fór heldur betur bón- leiður til búðar Kaupmanna- hafnarbúinn, þegar hann ætlaði að lyfta sér upp á einum af kyn- lífsklúbbum Kaupmannahafnar. Að sögn dyravarðar klúbbsins náði kúnninn ekki að afklæð- ast áður en hann hneig örendur niður. Ekki er vitað hvað varð manninum að aldurtila. Móðurmorð Sextíu og tveggja ára Dani er nú í haldi dönsku lögreglunnar ákærður fyrir manndráp. Fórnarlambið er áttatíu og fimm ára gömul móðir mannsins. Ekki er vitað hvað manninum gekk til þegar hann keyrði að sögn vitna viljandi á hana í innkeyrslu við raðhús í bænum Løgumkloster á Jótlandi í Danmörku. Skömmu eftir verknaðinn dó konan á sjúkrahúsi í Esbjerg. Ellefu ára og ofurölvi Þeir urðu undrandi lögreglu- þjónarnir í Alabama í Banda- ríkjunum, sem loks tókst að stöðva bifreið eftir eltingaleik á hundrað og sjötíu kílómetra hraða. Upphaflega hafði akst- urslagið vakið athygli þeirra og eftirförin hófst og lauk ekki fyrr en bifreiðin rakst á aðra bifreið og valt. Þá kom í ljós að öku- maðurinn var ellefu ára stúlka og var hún dauðadrukkin í þokkabót. Fyrir eitthvað glópa- lán slapp stúlkan án teljandi meiðsla. Hún hafði tekið fjöl- skyldubifreiðina ófrjálsri hendi. Enn á eftir að komast að því hvar hún fékk áfengið. Með gaffal að vopni Það hljóp heldur betur snurða á þráðinn hjá hjóna- kornunum Kelly Ann Camp- bell-Baumgartner og Bill Baum- gartner í apríl síðastliðnum. Þau gengu í hjónaband í desember 2006, en hveitibrauðsdagarn- ir urðu ekki margir. Þar sem þau sátu skötuhjúin Bill, 86 ára gamall, og Kelly Ann, 44 ára, að snæðingi á veitingastað í Cant- on í Bandaríkjunum, trylltist ektakvinnan skyndilega. Hún hellti matnum í kjöltu eigin- manns síns, sló hann um koll og stakk gaffli í annað eyra hans. Hann sótti um skilnað nokkrum dögum síðar, en dró svo í land og fyrirgaf eiginkonunni. David Munis Eiginmaður- inn er grunaður um verknaðinn. Old Chicago-veitingastaðurinn Robin Munis var skotin til bana á meðan hún söng. Afrakstur sumarvinnunnar Hluti af þýfi Pólverj- anna fjögurra sem ganga eftir sem áður lausir. Þeir hlæja dátt, Pólverjarnir sem teknir voru fastir í Noregi fyrir ekki svo löngu. Þeir voru fundnir sekir um þjófnaði, en fangelsisdvölin var stutt: GLÆPUR OG REFSING

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.