Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.2007, Side 59

Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.2007, Side 59
Tíu milljarða jena mark- inu náð Pirates of the Caribbean: At World‘s End er fyrsta erlenda kvikmyndin til að hala inn tíu milljarða jena í kvikmyndahúsum í Japan það sem af er árinu. Myndin var frumsýnd þann 25. maí í Japan og tók það hana fimmtíu og þrjá daga að ná þessu marki og er hún á góðri leið með að hala inn meiri pening en Pirates of the Caribbean: Dead Man‘s Chest náði á öllum þeim tíma sem hún var til sýninga í kvikmyndahúsum Japana á síðasta ári. Sex nýjar myndir voru nú að bætast við Bíódaga Græna ljóssins: Línurnar skýrast fyrir Bíódaga Sex nýjar myndir hafa nú bæst við listann yfir þær kvikmyndir sem sýndar verða á Bíódögum Græna ljóssins, þann fimmtánda til tuttug- asta og níunda ágúst næstkomandi. Bíódagar er tveggja vikna kvik- myndahlaðborð á vegum Græna ljóssins þar sem frumsýndar verða tuttugu splunkunýjar og sérvaldar hágæða kvikmyndir hvaðanæva að úr heiminum. Bíódagarnir fara fram í Regnboganum og verður myndun- um skipt niður í þrjá flokka en þeir eru: Heimurinn, sem er kjarnaflokk- urinn þar sem sýndar eru óháðar gæða- og verðlaunamyndir frá öll- um heimshornum. Annar flokk- urinn er svo Heimildarmyndir, en þar verða sýndar nokkrar sérvaldar, áhugaverðar og spennandi heim- ildarmyndir. Þriðji flokkurinn ber heitið Miðnætti en innan hans eru kvikmyndir af ýmsum toga sem eru ögrandi og umdeildar og oft á tíðum ekki fyrir viðkvæma. Opnunarmynd Bíódaga verður Sicko, nýjasta afurð hins umdeilda Michaels Moore, en auk þess hafa átta aðrar myndir ver- ið staðfestar á hátíðina en samn- ingaviðræður standa yfir um aðrar sex sem eru á listanum: Staðfestar: The Bridge No Body Is Perfect Die Falscher Death of a President For Your Consideration Curse of the Golden Flower Deliver Us from Evil S&Man Óstaðfestar: The Nines Expired Hallam Foe Goodbye Bafana Cocaine Cowboys Shortbus Skrifar handrit upp úr Nine Handritshöfundurinn Michael Tolkin sem tilnefndur var til óskarsverð- launa fyrir mynd sína The Player, kemur til með að skrifa handrit upp úr Broadway-söngleiknum Nine frá árinu 1982. Söngleikurinn snýst um líf frægs kvikmyndaleikstjóra, Guidos Contini, og fylgir honum í gegnum persónulegar krísur og hvernig honum tekst að hafa tök á kven- mönnunum í lífi sínu. Rob Marshall kemur til með að framleiða myndina og leikstýra henni og Maury Yeston sér um tónlistina en hann samdi tónlist og texta fyrir upprunalegu uppfærsluna. Vill giftast Belafonte Kryddpían Mel B. virðist vera búin að ná sér algjörlega eftir skilnaðinn við leikarann Eddie Murphy og segist nú tilbúin í að giftast nýja kærastanum, kvikmyndaframleiðandanum Stephen Belafonte, en þau hafa verið að slá sér upp síðan síðla á síðasta ári. „Hann er ástin í lífi mínu og ég ætla að giftast honum,“ er haft eftir söngkonunni. Brown sem hefur staðið í leiðindafaðernisdeilum við Murphy segir jafnframt að Belafonte hafi tekið dóttur hennar Angel Iris opnum örmum og að hann sé sannkölluð guðsgjöf fyrir þær mæðgur. FöSTUDaGUr 20. júlí 2007DV Bíó 59 Curse of the Golden Flower Er staðfest á Bíódaga. Kvikmyndin Sicko Er opnunar- mynd Bíódaga. Verstu myndirnar 1. Because I Said So - 5% / 17,7 Michael lehmann sem leikstýrir myndinni hefur aðallega gert efni fyrir sjónvarp hingað til og ætti kannski bara að halda sig við það miðað við þessa dóma. Diane Keaton hefur sennilega yfirleitt staðið sig betur en hún leikur móður sem ofverndar dóttur sína. Dóttirin er leikin af söngkonunni Mandy Moore. 2. The Number 23 - 8% / 18,6 joel Schumacher sem kom sterkur inn á sínum tíma í myndum eins og Flatliners, Falling Down, Batman Forever, a Time to Kill og 8MM hefur ekki verið að gera það jafn gott í seinni tíð. Þó svo að jim Carrey sé löngu búinn að sanna sig sem alvöruleikari skilar það sér ekki í þessari mynd sem hefur fengið slæma dóma alls staðar. 3. Premonition - 8% / 19,9 leikstýrt af þýska leikstjóranum Mennan Yapo. Sandra Bullock og julian McMahon úr þáttunum Nip/Tuck leika aðalhlutverkin. Myndin fjallar um konu sem kemst að því að eiginmaður hennar hefur látist í bílslysi. Þegar hún vaknar daginn eftir er hann á lífi. Daginn eftir það er hann svo aftur dáinn. Hvað er í gangi? allavega ekkert sérlega spennandi miðað við dómana. 4. The Reaping - 7% / 21,0 Stephen Hopkins sem leikstýrir myndinni hefur gert ýmislegt í gegnum tíðina. Svo sem Predator 2 og The life and Death of Peter Sellers. Þrátt fyrir að hafa tvöföldu óskarsverðlaunaleikkon- una Hillary Swank innanborðs tókst ekki til sem skyldi. Myndin fjallar um dóttur djöfulsins og biblíuplágurnar tíu. 5. Norbit - 9% / 22,9 Eddie Murphy er meistari dulagervisins eins og hann hefur svo oft áður sýnt en honum bregst bogalistin hrapalega í þetta skipti. leikstjórinn Brian robbins hefur gert ágætis myndir í gegnum tíðina, eins og Varsity Blues og ready to rumble, en Norbit er alveg örugglega ekki ein þeirra bestu. 6. Perfect Stranger - 11% / 23,1 7. Happily N‘Ever After - 4% / 25,1 8. Are We Done Yet? - 8% / 25,2 9. Code Name: The Cleaner - 4% / 25,8 10. Hannibal Rising - 16% / 27,0 asgeir@dv.is Kvikmyndavefurinn Rotten Tomatoes gaf nýlega út skýrslu yfir bestu og verstu myndir fyrri hluta ársins. Vefur- inn er þekktur fyrir að vera vægðarlaus í gagnrýni sinni en verðlaunar einnig þær myndir sem eiga það skilið. Ein- kunnagjöfin er blanda af dómi almenn- ings og gagnrýnenda. BESTU OG VERSTU Á ÁRINU

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.