Læknablaðið : fylgirit - 01.09.1993, Blaðsíða 15
LÆKNABLAÐIÐ/FYLGIRIT 24
13
Kynning:
Prófessor W. Allen Hauser
W. Allen Hauser er prófessor í taugasjúkdóm-
um og faraldsfræði við Columbia háskólann í New
York, og er hann einn þeirra erlendu gesta sem
flytja mun fyrirlestur í tengslum við 75 ára afmæl-
ishátíð Læknafélags íslands. Fyrirlestur hans ntun
fjalla um stöðu faraldsfræðinnar í dag og hvernig
faraldsfræðilegar rannsóknir nýtast læknum í dag-
legu starfi.
W. Allen Hauser lauk læknanámi frá St. Louis
University og stundaði síðan framhaldsnám í
taugasjúkdómum við Northwestern University og
framhaldsnám í klínískri taugalífeðlisfræði við
Mayo Graduate School. Hann var fyrst skipaður
prófessor við Minnesótaháskóla en frá árinu 1978
hefur hann verið prófessor við Columbia háskól-
ann í New York.
W. Allen Hauser hefur stundað umfangsmiklar
rannsóknir á faraldsfræði ýmissa taugasjúkdóma,
en einkum er hann þekktur fyrir rannsóknir sínar
á faraldsfræði flogaveiki. Hann hefur skrifað mik-
inn fjölda greina og eftir hann hafa birst nær 200
greinar í læknisfræðiritum. Hann hefur skrifað
bók um faraldsfræði flogaveiki og ritstýrt fjölda
rita um faraldsfræði. Sérstaklega má nefna ránn-
sóknir hans á faraldsfræði flogaveiki í Rochester í
Minnesota, sem spanna nær 60 ára tímabil, og eru
grundvallarrannsóknir í þessari grein. W. Allen
Hauser er einn fremsti vísindamaður á sviði far-
aldsfræði flogaveiki í heiminum.
A síðustu tveimur árum hefur W. Allen Hauser
tekið þátt í samstarfi við íslenska lækna um rann-
sóknir á flogaveiki hér á landi og hefur hann þegar
heimsótt fsland nokkrum sinnum. Áformað er að
gera rannsókn á nýgengi flogaveiki hér á landi
sem spanna mun nokkur ár. Hér er um mjög
viðamikla rannsókn að ræða og undirbúningur
hennar hefur þegar tekið rúm tvö ár. Tilgangur
rannsóknarinnar er að ákvarða nýgengi floga-
veiki á íslandi. leita að áhættuþáttum fyrir floga-
veiki o.s.frv. Leitað verður eftir samstarfi við alla
starfandi lækna á íslandi við framkvæmd rann-
sóknarinnar.
Elías Ólafsson