Læknablaðið : fylgirit - 01.09.1993, Blaðsíða 16
14
LÆKNABLAÐIÐ/FYLGIRIT 24
Kynning:
Snorri S. Þorgeirsson PhD
Snorri S. Þorgeirsson er fæddur á Neskaupstað
1. desember 1941. Hann lauk læknaprófi frá Há-
skóla Islands 1968 og að loknu kandídatsári á
Landspítalanum, stundaði hann læknis- og rann-
sóknarstörf í klínískri lyfjafræði við Royal
Postgraduate Medical School í London og lauk
doktorsprófi frá University of London 1971. Frá
1972 hefur hann starfað á ýmsum deildum The
National Institutes of Health í Bethesda í Banda-
ríkjunum, þar af forstöðurmaður (chief) á La-
boratory of Experimental Carcinogenesis, DCE,
National Cancer Institue frá 1981.
Snorri hefur hlotið fjölda viðurkenninga, sem
of langt yrði upp að telja og er hér einungis getið
NIH Merit Award 1988, að öðrum ólöstuðum.
Hann hefur setið í fjölda nefnda er skipuleggja
og meta rannsóknir á sérsviði hans svo og í rit-
nefndum sérfræðirita. Þannig hefur hann setið í
nefndum svo sem eins og Committee on Occupa-
tional Carcinogenesis 1979. Hann var í forsvari
fyrir alþjóðaþingi um Carcinogenic and Mutagen-
ic N-substituted Aryl efna í Bethesda 1979 og
ritstýrði NCI monograph um sama efni 1980. Þá
hefur hann verið í forystu Pharmacology Re-
search Associate Program á NIGMS frá 1977, og
verið fulltrúi NCI í Subcommitte on Testing and
Test Method Validation of the Committee to
Coordinate Environmental Health and Related
Programs frá 1991. Snorri situr í ritstjórn Molecul-
ar Pharmacology, Biochemical Pharmacology,
Carcinogenesis, JNCI og er meðritstjóri Cancer
Research.
A síðustu árum hefur Snorri verið virkur skipu-
leggjandi ráðstefna um allan heim um krabba-
meinsrannsóknir og vakið athygli í umræðunni
um hæfni lifrar til endurmyndunar og viðgerða
(regeneration).
Ahugasvið Snorra í rannsóknum snerta ýmis
model transgenískra músa og rannsakar hann þar
genastjórnun á vexti og sérhæfingu við eðlilegar
aðstæður við myndun krabbameins. Þá hefur
hann rannsakað stjórnun og hlutverk genafjöl-
skyldu í fjöllyfja mótstöðu og hegðan fruma og
sameinda í eðlilegri lifur og lifur með krabba-
meinsbreytingum. Snorri hefur verið afkastamik-
ill við greinaskrif og telur hátt á þriðja hundrað
greina auk fjölda úrdrátta og kynninga á þingum
Snorri eins og kona hans, Unnur Pétursdóttir,
hafa bæði valist til starfa á einni virtustu rann-
sóknarstofnun heims. Samt er Snorri einn þeirra
Islendinga, sem yngri læknar þekkja kannski helst
af afspurn en þeir sem aðeins eldri eru, þekkja
betur umfangsmikið framlag hans til læknisfræð-
irannsókna og árangurs hans á alþjóðavetvangi.
Það er því mikið gleðiefni að fá nú tækifæri til að
hlýða á Snorra skýra frá rannsóknum sínum í
tilefni 75 ára afmælis Læknafélags íslands.
Kristján Erlendsson
varaformaður LÍ