Kjarninn - 31.10.2013, Side 26

Kjarninn - 31.10.2013, Side 26
08/09 kjarninn Stjórnmál viðskiptaumhverfi er enn mikilvægara nú en nokkru sinni fyrr þar sem margt er á hreyfingu, stórir samn- ingar í vinnslu milli efna- hagsvelda heimsins. Verði hagsmunir Íslands ekki rétt tryggðir verður mögu- leikunum til að íslensk fyrir tæki geti starfað innan stærsta viðskiptasvæðis heims, sem verið er að búa til og á að ná yfir Evrópu og Norður-Ameríku, og er í raun heimamarkaður okkar, skellt í lás í skiptum fyrir svigrúm til að gera samninga við þjóðir sem við eigum sáralítil viðskipti við, þekkjum lítið til og kunnum ekki að bera fram nöfnin á. Ákvörðunin um algjört hlé færir Ísland úr fundar- herberginu þar sem ákvarðanir eru teknar, fram á gang eða út í garð. Örðugra verður að virkja sambönd til að skapa ný tækifæri til stóraukinna viðskipta við þrjátíu Evrópuþjóðir. Það þýðir að færin sem eru fyrir í EES-samningnum verður ekki hægt að nýta betur með fleiri snertingum eða meiri sam skiptum. Innri markaður Evrópu verður ekki opnaður fyrir fullunnum hágæða afurðum úr íslenskum fiski eða kjöti. Tollkvótar verða áfram veruleikinn þar. Ekki verður unnt að nota aðildarferlið til að rækta brýn hagsmunamál og dyrum er lokað á samstarf um afléttingu gjaldeyrishafta með öflugustu stofnunum og færustu sér- fræðingum heims, Seðlabanka Evrópu, AGS og ESB. Bestu leiðinni í lausn á gjaldmiðilsvanda þjóðarinnar er varpað fyrir róða. Áhyggjum atvinnulífsins í þeim efnum er að engu svarað. Öryggistryggingu framtíðar, sem felst í því að tilheyra sterkasta friðarsamstarfi og farsælasta efnahagssamstarfi heims er skipt út fyrir sannfæringarræður um eigin yfirburði í ljósi vafasamrar söguskoðunar. Bandaríkin Ísland hefur mun minni tengingu við Bandaríkin eftir að bandaríski herinn fór af landi brott.

x

Kjarninn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kjarninn
https://timarit.is/publication/958

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.