Kjarninn - 13.02.2014, Side 37

Kjarninn - 13.02.2014, Side 37
06/06 úkraÍna aðra mótmælendur í því að beita ofbeldi. Þrátt fyrir að hann sé Evrópusinni er rússneskumælandi hluti landsins ekki algjörlega fráhverfur honum. Hann þykir líka ekki vera hluti af gamalli valdaklíku og nokkuð óreyndur í pólitík, sem þýðir að fleiri trúa honum þegar hann talar gegn spillingunni í landinu. Vegna alls þessa hefur verið horft til hans í auknum mæli sem leiðtoga sem gæti átt einna bestan möguleika á að sameina þessa sundruðu þjóð. Það veltur þó allt á því sem gerist næst, sem virðist algjör- lega óljóst á þessari stundu. Á mánudaginn sendu utanríkis- ráðherrar Evrópusambandsríkjanna frá sér harðorða yfirlýs- ingu þar sem þeir hvöttu til þess að boðað yrði til kosninga sem fyrst. Ef það gerist gæti Klitsjkó átt ágæta möguleika. Annar möguleiki er að einhvers konar samkomulag náist milli stríðandi fylkinga sem gæti haldið fram að kosningum á næsta ári. Og margt getur breyst á heilu ári.

x

Kjarninn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kjarninn
https://timarit.is/publication/958

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.