Kjarninn - 13.02.2014, Blaðsíða 40
saga eimskipa eins og eimskip vill segja hana
RÚV hefur undanfarin tvö sunnudagskvöld sýnt
hádramatíska mynd um 100 ára sögu Eimskipa félags
Íslands. Myndin var drekkhlaðin sögulegu lofi á
þjóðfélags legt mikilvægi Eimskips, frábærum mynd-
skeiðum frá ýmsum tímum og hádramatískri auglýs-
ingarödd Egils Ólafssonar. Það vakti hins vegar athygli
að skautað var framhjá þeirri staðreynd að Eimskip fór
ævintýralega á hausinn eftir bankahrun og kröfu hafar
töpuðu yfir 100 milljörðum króna. Það var heldur
ekkert minnst á að þetta 100 ára gamla félag er rekið á
2004-kennitölu. Það er því í reynd einungis tíu ára.
arion lánaði tæpan milljarð til gaMMa
Ekki er alltaf allt sem sýnist hér á Íslandi. Í apríl 2013
var greint frá því að GAMMA hefði keypt Laugaveg
77, gamla Landsbankahúsið, og ætlaði að byggja þar
hótel gímald. Síðar var hætt við þessi áform og húsið
leigt út. Þegar rýnt er í þau skjöl sem eru að baki
kaupum á húsinu kemur í ljós að félag GAMMA virðist
hafa keypt það á um 900 milljónir króna. Kaupin voru
nánast að öllu leyti fjármögnuð af Arion banka, sem
virðist auk þess eiga kauprétt á húsinu, kjósi bankinn
að nýta sér slíkan. Í þeim viðskiptum var ekki gerð
krafa um 20 prósenta eiginfjárframlag.
aF nEtinu
samfélagið segir
kjarninn 13. febrúar 2014
Facebook twitter
árni helgason
Er hægt að gera mönnum meiri óleik en að
nefna fiskborgara í höfuðið á honum? Ég styð
Bjarna fullkomlega í að boycutta þessa vígslu.
En að fá góðan ostborgara nefndan eftir sér er að sama
skapi sannur heiður fyrir Sigmund.
Miðvikudagur 12. febrúar 2014
diljá áMundadóttir
Er fólk, sem setur (þgf.) inn í sviga á eftir
nöfnum sem það taggar í status hjá sér, hrætt
við að einhver gæti mögulega haldið að það
kunni ekki að fallbeygja rétt? Eða hvað er málið?
Miðvikudagur 12. febrúar 2014
saga garðarsdóttir
Gyls gera mind http://on.fb.me/1erb1Oh
Miðvikudagur 12. febrúar 2014
dagur B. eggertsson @Dagurb
Það er selfie-æði í dönsku ríkisstjórninni. Fékk
mér bjór á slippabarnum með mínum gamla
vini...http://instagram.com/p/kT0v8fv4pe/
Miðvikudagur 12. febrúar 2014
gunnar Bragi @GunnarBragiS
Happy to see that @carlbildt is warm in his
lopapeysa
Miðvikudagur 12. febrúar 2014
kristjana arnarsd. @kristjanaarnars
Ef ég heyri þetta Amor lag einu sinni enn...
Miðvikudagur 12. febrúar 2014
01/01 samFÉlagið sEgir