Kjarninn - 13.02.2014, Page 40

Kjarninn - 13.02.2014, Page 40
saga eimskipa eins og eimskip vill segja hana RÚV hefur undanfarin tvö sunnudagskvöld sýnt hádramatíska mynd um 100 ára sögu Eimskipa félags Íslands. Myndin var drekkhlaðin sögulegu lofi á þjóðfélags legt mikilvægi Eimskips, frábærum mynd- skeiðum frá ýmsum tímum og hádramatískri auglýs- ingarödd Egils Ólafssonar. Það vakti hins vegar athygli að skautað var framhjá þeirri staðreynd að Eimskip fór ævintýralega á hausinn eftir bankahrun og kröfu hafar töpuðu yfir 100 milljörðum króna. Það var heldur ekkert minnst á að þetta 100 ára gamla félag er rekið á 2004-kennitölu. Það er því í reynd einungis tíu ára. arion lánaði tæpan milljarð til gaMMa Ekki er alltaf allt sem sýnist hér á Íslandi. Í apríl 2013 var greint frá því að GAMMA hefði keypt Laugaveg 77, gamla Landsbankahúsið, og ætlaði að byggja þar hótel gímald. Síðar var hætt við þessi áform og húsið leigt út. Þegar rýnt er í þau skjöl sem eru að baki kaupum á húsinu kemur í ljós að félag GAMMA virðist hafa keypt það á um 900 milljónir króna. Kaupin voru nánast að öllu leyti fjármögnuð af Arion banka, sem virðist auk þess eiga kauprétt á húsinu, kjósi bankinn að nýta sér slíkan. Í þeim viðskiptum var ekki gerð krafa um 20 prósenta eiginfjárframlag. aF nEtinu samfélagið segir kjarninn 13. febrúar 2014 Facebook twitter árni helgason Er hægt að gera mönnum meiri óleik en að nefna fiskborgara í höfuðið á honum? Ég styð Bjarna fullkomlega í að boycutta þessa vígslu. En að fá góðan ostborgara nefndan eftir sér er að sama skapi sannur heiður fyrir Sigmund. Miðvikudagur 12. febrúar 2014 diljá áMundadóttir Er fólk, sem setur (þgf.) inn í sviga á eftir nöfnum sem það taggar í status hjá sér, hrætt við að einhver gæti mögulega haldið að það kunni ekki að fallbeygja rétt? Eða hvað er málið? Miðvikudagur 12. febrúar 2014 saga garðarsdóttir Gyls gera mind http://on.fb.me/1erb1Oh Miðvikudagur 12. febrúar 2014 dagur B. eggertsson @Dagurb Það er selfie-æði í dönsku ríkisstjórninni. Fékk mér bjór á slippabarnum með mínum gamla vini...http://instagram.com/p/kT0v8fv4pe/ Miðvikudagur 12. febrúar 2014 gunnar Bragi @GunnarBragiS Happy to see that @carlbildt is warm in his lopapeysa Miðvikudagur 12. febrúar 2014 kristjana arnarsd. @kristjanaarnars Ef ég heyri þetta Amor lag einu sinni enn... Miðvikudagur 12. febrúar 2014 01/01 samFÉlagið sEgir

x

Kjarninn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kjarninn
https://timarit.is/publication/958

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.