Kjarninn - 13.02.2014, Blaðsíða 49
07/07 Viðtal
Hörpu 2. mars og förum til Danmerkur og spilum á Frigg-
tónlistarhátíðinni í Kaupmannahöfn í maí. En núna leggjum
við allt kapp á að klára plötuna okkar. Það er forgangs-
verkefni okkar númer eitt, tvö og þrjú.“
kolröng forgangsröðun
Mikið hefur verið fjallað um velgengni íslenskrar tónlistar
erlendis undanfarin misseri. Í þann mund sem blaðamaður
spyr söngkonu Vakar um stöðu íslensku tónlistarsenunnar
gengur Andri Már félagi hennar inn á kaffistofuna þar sem
blaðaviðtalið hefur farið fram og svarar spurningunni fyrir
sitt leyti. „Hún er bara á hraðri niðurleið. Það er verið að rífa
niður alla skemmtiegustu tónleikastaðina og það er óumdeilt
á meðal íslenskra tónlistarmanna. Ef manni er ekki boðið
að spila í Hörpu er eiginlega bara um Harlem eða Gaukinn
að ræða. Þetta er mikið áhyggjuefni,“ segir Andri. „Þessi
hótelbóla sem nú er í gangi, og tónleikastaðir hafa þurft að
víkja fyrir, á bara eftir að springa þegar ferðamönnum fer
að fækka um leið og þeir verða skattlagðir meira. Þetta er
fyrirséð og ég held að við ættum heldur að rækta það sem er
að draga þá hingað frekar en að kæfa það.“
Margrét bætir við varðandi íslensku tónlistarsenuna: „Ég
held að íslenska tónlistin sé bara einhvern veginn komin
lengra en önnur tónlist, og þá er ég ekkert að telja okkur
með. Hún er ferskari og frumlegri og er komin á eitthvert
annað stig, eins og til að mynda Björk,“ segir Margrét.
Þó að framtíðin virðist brosa við hljómsveitinni Vök er
söngkona og helsti lagahöfundur sveitarinnar með fæturna
kyrfilega á jörðinni þegar hún er spurð um væntingar sínar
til framtíðarinnar. „Það sem að við viljum, og það sem mig
hefur alltaf langað frá því að ég var lítil, er að ná að deila tón-
listinni með heiminum. Ekki vera að leita að einhverri frægð
eða frama og einhverju svoleiðis, heldur bara deila henni
með heiminum, það er það sem maður hefur mest gaman af.“