Kjarninn - 13.02.2014, Blaðsíða 73
04/05 kVikmyndir
í Inhale, Mark Wahlberg í Contraband eða Wahlberg og
Washington í 2 Guns – sem er auðveldlega hægt er að sjá
sem vísun í erfiðleika kvikmyndagerðarfólks á Íslandi við að
fá verk sín framleidd. Það eina sem virðist leysa vandann í
íslenskri kvikmyndaframleiðslu og í sagnaheimi Baltasars er
stóísk ró til móts við erfiðleika.
að sýna bíómynd í jólaboði
Íslenskar kvikmyndir eru sér-
stakar. Þær eru gerðar af litlum
framleiðslu hópi fyrir lítinn
áhorfendahóp, eins og Baltasar
Kormákur sagði sjálfur í Master
Class umræðunni er það að gera
mynd fyrir 320.000 manna þjóð
svolítið eins og að sýna bíómynd
í jólaboði. Þetta gerir íslenskar
kvikmyndir á vissan hátt exótískar,
sama hvort þær eru sýndar í Banda-
ríkjunum, Asíu eða annars staðar
á Norðurlöndunum. En við megum ekki einblína á það sem
er exótískt fyrir öðrum, eins og Benedikt Erlingsson sagði á
hátíðinni: „Menning er í raun eitthvað sem við gerum fyrir
hvort annað; til þess að skemmta og fræða hvort annað. Við
gerum það fyrir okkur sjálf, ekki til þess að sýna einhverjum
öðrum. Sú mynd sem við fáum heima er að ekkert sem við
gerum skiptir máli nema það sé lofað erlendis.“
„Það sem við þurfum er ríkisstjórn með einhvers konar
framtíðarsýn. Við getum ekki búið við það í hvert skipti sem
ný ríkisstjórn kemur sé skorið niður í kvikmyndasjóði – svo
bætt aðeins – og svo skorið niður aftur,“ sagði Baltasar. „Við
höfum kannski meiri áhuga þegar Walter Mitty eða eitthvað
kemur til landsins, en við getum verið að gera þessa mynd
sjálf á sama skala með okkar fólki og átt allan pakkann.
Okkur finnst svo gaman þegar einhver hrósar okkur og segir
hversu fallegt landið okkar er, en við getum verið að gera
svona stóra hluti – í samvinnu við Hollywood og allt það – en
Smelltu til að horfa á
umræður með Benedikt
Erlingssyni, Friðrik Þór
Friðriks syni og Þorbjörgu
Helgu Þorgilsdóttur um
íslenska kvikmyndagerð
tröllríður heimsbyggðinni
Hross í oss, kvikmynd Bene-
dikts Erlingssonar, hefur
gengið mjög vel á alþjóð-
legum kvikmyndahátíðum.