Nýtt S.O.S. - 01.08.1957, Page 23
----- Nýtt S. O. S. 23
„AfturÍygtingin liefur sokkið dýpra. Það
er útilokað að við komumst upp þá leið.
Þeir liafa látið sökkva okkur!" tilkynnir
hann.
„Eg held, að við mundum geta farið
upp um aftara köfunarliólfið með nef-
klemmulausa hjálma," skaut Glenn inn í.
„Hve lengi höfum við loft?“
Bolus reiknar — í hundraðasta sinn. —
„Ef ég leyfi aðeins 15 lítra notkun á
klukkustund handa hverjum manni, ætt-
um við að vera birgir til kl. 16 eða 17
á laugardag."
„Það er tveimur til þremur tímum
lengur, en áætlað var," mælti Glenn hugsi.
„Aftara björgunarhólfið er bara tólf nietr
um updir sjó.“ Hann grípur í liandlegg
Bolusar. „Það hlýtur að vera hægt á 12
metra dýpi án þess að hafa nefklennnur.
Við skulum láta mennina fara upp þrjá
saman hverju sinni. Þá liöfum við, sem
eftir verðum. helmingi meiri birgðir af
lofti.“
„Eg ætla að framkvæma þetta," mælti
Bolus. Þá skipar liann: „Allir þeir, sem
hafa bjöigunarhjálma, fari inn í vélarúm-
ið. Við byrjum að dada í hólfið."
Menn þyrpast nær. Þeir skríða á íjórum
fótum, eins og dýr, sem bráðin Iokkar.
Thetis liggur skáhallur til hliðar, skutur-
inn 20 metrum hærri en stefnið.
Á nokkrum mínútum fyllist vélarúmið
af nokkrum tugum manna.
Menn spyrja, hvað sé að ske. Hvort
turninn sé kominn upp úr sjó og hægt að
komast upp?
„Nei,“ svarar Bólus. „En aftara björgun-
arhólfið er aðeins 12 metum undir sjó.
Þið ættuð að geta farið upp með hjálm-
ana eins og þeir eru, ef þið haldið vel um
nefið. Þrýsingurinn á 12 metra dýpi er
ekki hætttdegur. Þrír menn í einu fara í
-björgunarhólfið. Þið vitið, hvað ykkur ber
að gera. Farið að öllu með gát! Þið komist
allir upp!"
„Sláið hann niður!“ kallar rám rödd í
hópnum. „Nú ætlar hann að láta okkur
drepast til þess að bjarga sjálfum sér.
Nokkrir skipasmíðaverkamenn hrifsa til
sín hjálmana, hver sem betur getur. Vél-
fræðingar Cammell-Laird koma nú líka
inn í vélarúmið.
„Farið’ drengilega að öllu!“ hrópar Bol-
us. „Hjálmunum hefur verið úthlutað. Ef
við komum upp sextíu manns, höfum við
hinir nægilegt loft unz bátnum verður
Iyft!“
„Drengileg aðferð! Við höfum verið