Nýtt S.O.S. - 01.06.1958, Page 34
34 Nýti S. O. S.
Konur gripu í ermarnar á okkur og
grátbáðu okkur um upplýsingar um menn
sína, og karlmennirnir gengu stöðugt milli
hópanna í leit að dætrum sínum, systrum
eða eiginkonum. Fjöldi af líkum sást liggja
innan um málningardósir og kaðalrúllur
á skuggalegum bryggjunum.
Lusitania var komin í höfn!
15-
Queenstown var orðin að stóru sjúkra-
húsi. Það var eins og stórorusta hefði ver-
ið háð í úthverfum hennar.
Sumir þeir, sem komizt höfðu lífs af,
höfðu þegar farið að leita sér að húsa-
skjóli. Öðrum hafði þegar verið útvegað
gistirúm fyrir milligöngu umboðsmanns
Cunard-línunnar. Queen’s Hotel, það
stærsta í borginni, með 43 herbergjum,
varð í skyndi ígildi 1. farrýmis á Lusi-
taniu. F.igandi þess, sem var þýzkur að
uppruna, hljóp í felur innan um vínámur
í kjallaranum.
Á öðrum gististöðum varð gestahópur-
inn sundurleitari. í Rob Roy deildi Wie-
mann herbergi með C. T. Hill, einum
þeirra, sem hann hafði borið á borð fyrir
á fyrsta farrými. Þeir hlógu dátt yfir glasi
af hinu dýrmæta eplavíni Hills, sem hann
hafði gefið þjóninum að bergja á.
Dorothy Conner bað mjög blátt áfram
um herbergi og bað, al'veg eins og hún
mundi hafa gert á gistihúsi vestan hafs.
Dyravörðurinn kallaði upp hennar núm-
er og bað hana halda áfram. Henni var
vísað í herbergi ásamt fimm öðrum kon-
Mörgum var hjálpað í rúmið, svo sem
Theodate Pope. Hún skalf mjög mikið,
þrátt fyrir stóra koníaksskammta. í and-
dyrinu hitti hún unga manninn, sem aldrei
borðaði rjómaísinn sinn eftir hádegisverð-
inn. Hann var klæddur í ljósleitan slopp
og gat ekki svarað þrálátum spurningum
hennar um það, hvort Edwin Friend hefði
bjargazt.
Theodate hvíldist lítið þessa nótt, og svo
var einnig um aðra þá, sem verið höfðu
á Lusitaniu. Sífellt var verið að kveikja
ljós í leit að litlum börnum, spyrjast fyr-
ir um nöfn skipbrotsmanna og afhenda
eða taka við símskeytum.
Turner, skipherra, var gestur banka-
stjóra nokkurs í íbúð Iians. Hann drakk
reiðinnar ósköp af tei, honum tókst að
þurrka einkennisbúninginn sinn og fór
stutta stund út á götu. Þeir, sem sáu hann,
kváðu hann líta vel út.
Elisabeth Duckworth þurfti á læknis-
hjálp að halda eftir áreynsluna og fékk vist
í Westbourne-gistihúsi. Þá fyrst fann hún
áhrifin 'af erfiðinu mikla. Hún rifjaði það
upp fyrir sér, og þá fékk hún taugaáfall
— hún náði sér ekki til fulls fyrr en eft-
ir mánuð. Hún hitti þar Arthur litla Scott,
drenginn, sem hún hafði hjálpað upp í
lífbátinn, og komst að því, að trúboði
nokkur ætlaði að sjá uin að koma honum
heim til sín í Nelson.
; Niðurlag næst.
Útgcfandi: Nýtt S. O. S., Vestmannaeyjura. Ritstjóri
og ábyrgðarmaður: Gunnar Sigurmundsson. — Verð
hvers heftis kr. 10,00. — Afgreiðsla: Brimhólabraut
24, Vestmannaeyjum. — í Reykjavík: Óðinsgötu 17A,
Stmi 14674. — Prentsmiðjan Eyrún h. f.
um.