Nýtt S.O.S. - 01.06.1958, Page 35
Nýtt S. O. S. 35.
Til lesenda.
Ákveðið hefur verið, að á næstunni
taki að birtast í Nýtt S O S frásagnir af
innlendum atburðum ýmiskonar, auk
aðalfrásagnarinnar, sem framvegis mun
verða um sögu og afdrif erlendra skipa
eins og hingað til hefur verið.
Sennilegt er, að fyrsta inirlenda frásögn-
in geti birzt í næsta hefti.
Frásagnir þessar verða af ýmiskonar
mannraunum og slysförum, sem skeð liafa
hérlendis bæði á sjó og landi og væri
æskilegt að ná frásögnum af slíkum at-
burðum sem víðast að af landinu.
Þessar frásagnir mega ekki vera of lang-
ar, ekki lengri en 6 síður í ritinu en mega
fara allt niður í 3 sður. Frásagnir þessar
mega vera af ýmiskonar atburðum, sem
frásagnarverðir geta talizt og reynt hafa á
þrek manna og manndáð. Þær .mega vera
af slysförum, skipströndum, alls konar
svaðilförum til lands og sjávar, stórbrun-
um, vatnsflóðum, og ýmiskonar afreksverk-
um o. s. frv.
Ritið fer fram á það við lesendur sína,
að þeir sendi því ýmiskonar slíkt efni til
birtingar, þeir sem eiga slíkt skráð, og
einnig, ef þeir vita um einhverja, sem slíkt
efni eiga, að stuðla þá að því, að ritið fáí
það til birtingar.
Ef til eru myndir, í sambandi við frá-
sagnirnar, væri mjög gott að láta þær
fylgja með. Þær yrðu endursendar strax
og búið er að nota þær. F.innig er hægt
að endursenda notúð handrit ef þess er
óskað.
Ritið mun að sjálfsögðu greiða full rit-
laun fyrir allt slíkt efni, sem tekið verð-
ur til birtingar.
Það er á allra vitorði, að mikið af svona
efni lifir um land allt á vörum rnanna
óskráð, og væntir ritið þess, að lesendur
þess bregðist vel við og stuðli að því að
fá þessar frásagnir skráðar og sendar til
birtingar í ritinu.
Utanáskrift ritsins er:
NÝTT S O S
Pósthólf 195,
Vestmannaeyjjuiru