Þjóðin: tímarit sjálfstæðismanna - 01.05.1940, Page 34
30
Þ J O Ð I N
sig fylgjandi þvi, að verkalýðsí'c-
lögin værn óliáð pólitískum flokk-
uni, — eða sérstaklega HéðinnValdi-
marsson, síðan 49. gr. Alþýðusamb.
laganna fór að bitna á honum, —
en eins og kunnugt er, þá var það
hann, sem átti frumkvæðið að þess-
ari lagagrein, á meðan liann var i
Alþýðuflokknum og þurfti að
tryggja völd sín þar.
En það kom fljótt í ljós í hinu
nýstofnaða Landssamb. stéttarfé-
laganna, að kommúnistinn H. V.
ætlaði að nola sér þetta lil póli-
tísks framdráttar. Strax á fyrsta
þingi þess var farið að ræða um
mál, sem voru alveg óviðkomandi
verkalýðsfélögunum. Kommúnistar
háru fram tillögu um að svipta
starfsmann samhandsins stöðu sinni
fyrir það eitt, að hann hafði skrif-
að um utanríkismál Rússlands öðru
vísi en þeim féll í geð. Það gat því
ekki komið til mála, að sjálfslæðis-
menn hefðu nein mök við þetta
samband, þótt það væri í orði
kveðnu óháð öllum pólitískum
flokkum.
Það er af þessu alveg ljóst, að
það hafa verið sjálfstæðisverkam.
og Sjálfstæðisflokkurinn, sem orðið
hafa að vernda verkalýðsfélögin frá
því að verða eyðilögð. Sjálfstæðis-
menn munu halda áfram að herj-
ast fyrir því, að allir meðlimir
verkalýðsfélaganna fái sama rétt
innan þeirra. Þeir munu ekki hvika
frá þeirri kröfu sinni, að stjórn
Alþýðusamb. og Alþýðuflokksins
verði aðskilin, og verður það að
gerast í síðasta lagi i liaust, þegar
Alþýðusamhandsþing' kemur saman.
Ef Alþýðufl. vill ekki ganga inn
á allar þær kröfur, sem sjálfstæðis-
verkamenn setja fram, þá er sjálf-
sagt, að öll félög fari að dæmi Dags-
brúnar og séu fyrir utan sambönd-
in, þangað til að liægt er að koma
þéssum málum á heilbrigðan grund-
völl.
Þegar Alþýðusamb. verður skilið
frá Alþýðuflokknum, þá verður Al-
þýðuflokkurinn að taka á sig allar
þær skuldir, sem á Alþýðusamb.
hvíla, vegna þess, að þær eru ein-
göngu til orðnar fvrir pólitíska
starfsemi Alþýðuflokksins. Alþýðu-
sambandið hefir haft það miklar
tekur frá samhandsfélögmn sínum,
að það hefir ekki þurft meira til
sinna starfa.
Sveinn Sveinsson.
KOMMÚNISTA-
REGISTUR.
ÞRJÁR LÍNUR.
7. lína:
1 fyrstu áttu kommúnistar og so-
cialistar samleið hér á landi. Þeir
störfuðu þá sameiginlega innan Al-
þýðuflokksins. En það kom að því,
að kommúnistarnir klvfu sig út úr
og' mynduðu sérstakan flokk.
Á árinu 1930 skrifar Einar 01-
geirsson grein i Rétt, er liann nefn-
ir „Stramnhvörf“, og lýsir þar nauð-
syninni á stofnun sérstaks komm-
únistaflokks. Telur hann upp helztu
ástæður fyrir því, og eru þær þessar: