Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira. - 01.12.1931, Qupperneq 29
Stefnir]
Kosningatilhögun frændþjóðanna.
53»
þriggja áðurnefndra landshluta
hafa fengið atkvæðistölu, er sam
svarar meðaltölu greiddra at-
kvæða á þingmann í landinu alls.
Atkvæði þeirra flokka, sem sam-
kvæmt þessu geta komið til
greina við úthlutun uppbótar-
sæta, eru talin saman fyrir land-
ið allt í einu lagi, og eftir þeim
tölum er reiknað út eftir regl-
um um hlutfallskosningar hve
mörg þingsæti af 148 sætum alls
hver flokkur hafi tilkall til. Frá
þessari tölu þingsæta fyrir hvern
flokk er svo dregin sú tala sæta,
sem flokkurinn þegar hefir feng-
ið við hlutfallskosninguna í sjálf-
um kjördæmunum. Hafi einhver
flokkur þegar við kjördæma-
kosninguna fegnið fulla þá tölu
sæta, sem honum ber, eða fleiri
sæti en honum ber, þá kemur
sá eða þeir flokkar ekki frekar
til greina við úthlutun uppbótar-
sætanna.
Loks eru nú teknar atkvæða-
tölur þeirra flokka, sem þá eru
eftir, og í reyndinni koma til
greina við úthlutun uppbótar-
sætanna, og öllum uppbótarsæt-
unum skift á milli þeirra svo að
í hverjum þessara flokka standi
Kjósendur
Höfuóstaðurinn 376667
Eyjarnar 556550
Jótland 704347
jafn mörg atkvæði bak við hvern
kosinn þingmann. Síðan er upp-
bótarsætum hvers flokks skift
niður á landshlutana og kjör-
dæmin eftir framangreindum
reglum.
Niðurstaðan af þessu verður
sú, að fullkomið réttlæti fæst í
skiftingu þingsætanna milli flokk
anna. Sú eina veila, sem þar er
á, er sú, að það getur komið fyr-
ir, að einhver flokkur þegar við
kjördæmakosninguna fái fleiri
þingsæti úr þeim 117 sætum, sem
þar er ráðstafað, heldur en hon-
um ber úr allri tölunni, 148. Það
hefir komið fyrir, að einn flokk-
ur (vinstrimanna) hefir á þenn-
an hátt fengið heldur fleiri þing-
sæti en hann átti tilkall til eftir
fullkominni hlutfallsreglu, og
stafar þetta eflaust af því, að
kjördæmasætunum er æði ójafnt
skift milli landshlutanna eftir
fólksfjölda.
Þetta má nú skýra betur með
því að taka einhverja tiltekna
kosningu og athuga hinar raun-
verulegu tölur. Vel eg til þess
kosninguna 11. apr. 1924.
Tala kjósenda á kjörskrá ogr
þingsæta var þessi:
Kjósendur á hvert
Þingsæti þingsæti
24 15695
51 10913
73 9649