Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira. - 01.12.1931, Page 34

Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira. - 01.12.1931, Page 34
544 Forsetaefni. [Stefnir Hann er einhver allra kunnasti stjórnmálamaður Bandaríkjanna, formaður utanríkismálanefndar öldungadeildarinnar. í þeirri stöðu er hann nú um margra ára skeið búinn að vera áhrifamesti maður Bandaríkjanna í utanríkis- málum. Mælskumaður er hann talinn frábær. Oft hefir hann verið nefndur sem forsetaefni, en aldrei orðið úr, og verður senni- lega aldrei. Hann er ekkert glæsi- menni í framgöngu, ekki ríkur maður, og ekki vinsæll. — En talið er, að hann muni hafa mikil áhrif á kosninguna. Demokratar hafa að jafnaði haft á boðstólum glæsilegri menn en hinir. Cox ríkisstjóri var miklu glæsilegri en Harding, og A1 Smith bar af Hoover í því efni. Nú berast böndin fastar og fastar að Franklin D. Roosevelt. Margir eiga þó bágt með að snúa hug sínum frá A1 Smith, og hann hef- ir ekki gert hreint fyrír sínum dyrum, eins og Coolidge, með því að lýsa opinberlega yfir, að hann fáist ekki. Til mála kom að New'ton D. Baker yrði í kjöri, en ræða ein mikil, sem hann hélt nýlega, þótti ekki takast eins vel og skyldi. C. Ritchie, ríkisstjóri í Mai’yland, hefir og komið til mála sem for- setaefni, sakir afbragðs greina, sem hann hefir skrifað um rétt hinna einstöku ríkja. En eins og kunnugt er, vilja demokratar halda fram sem mestum rétti hinna einstöku ríkja gegn alrík- inu. — Nýlega fór fram prófatkvæða- greiðsla þannig, að 1000 fjár- málamenn og forstjórar, dreifðir um öll ríki Bandaríkjanna nema New York, greiddu atkvæði um væntanlegt forsetaefni demo- krataflokksins. Hún fór þannigr að Roosevelt varð lang-hæstur og fekk 405 atkvæði. En næstur hon- um varð enginn þeirra, sem hér hafa verið nefndir, heldur Owen D. Young, fjármálamaður, sem er orðinn heimskunnur fyrir til- lögur sínar í hernaðarskaðabóta- málunum. Hann fekk 288 atkv. Rúm 300 atkvæði dreifðust á aðra.

x

Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira.

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira.
https://timarit.is/publication/1024

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.