Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira. - 01.12.1931, Side 86
596
Kviksettur.
[Stefnir
Þrátt fyrir innflutnings-
höftin erum við vel birg-
ir af allskonar
skófatnaði.
Vegna hagfeldra inn-
kaupa höfum við ekki
þurft að hækka verðið
ennþá.
Virðingarfyllst.
Lárus G. Lúðv ígsson
skóverzlun.
Það var líkast æfafornu ráðhúsi.
Anddyrið var svo hátt, að ef ein-
hver rósin í loftinu hefði losnað,
hefði hún á svipstundu steindrepið
fíl. 0g allt var eftir því. Klúbbur
Oxfords var líkastur því, að hann
hefði verið reistur meðan risar
bjuggu á jörðunni, og nú væri
hann kominn að erfðum í hendur
dverga. En einn afkomandi ris-
anna var þó enn á lífi, og það var
dyravörðurinn. Þegar þeir komu
að dyrunum, opnaði þetta mann-
bákn hurðarbáknið, og er þeir voru
komnir inn fyrir, sveiflaðist hurð-
in aftur með svo miklum krafti,
að það lá við, að loftstraumurinn
svifti manni með sér. Voru þeir
nú staddir í ógurlegum geim, und-
ir lofti, sem þandist út í ótrú-
legri hæð. Oxford ritaði nöfn
þeirra í bókarbákn í borðbákni
undir klukkubákni. Gengu þeir
þaðan til hægri og vinstri þar til
þeir komu í ranghala einn, alsett-
an rammauknum fatasnögum og
sást einn og einn hattur eða yfir-
höfn, eins og ýlustrá í eyðimörk.
Oxford valdi tvo fatasnaga, eins
og sker í úthafinu, og hengdu þeir
þar yfirhafnir sínar. Þaðan komu
þeir inn í ræstingarherbergi, sem
virtist helst minna á baðhús Kara-
kalla og þvoði Priam sér þar með