Sagnir - 01.06.1995, Page 10
mörg þúsund krónur, því setja þyrfti á
stofn kvikmyndaverksmiðju sem að
minnsta kosti gæti afgreitt 3200 metra
á hverri viku.
Reyndar hafði eigandi Nýja bíós þegar
leitað tilboða hjá þýska „Ufa-félaginu“ í
Berlín um textabreytingu til íslensks máls
og var tilboð þess um 1000 krónur miðað
við átta þátta mynd en félagið setti það
skilyrði að auki að Nýja bíó hefði fastan
mann í Berlín til að sjá um þýðingu text-
anna. Aætlunin sem bíóhúsaeigendur
birtu var hins vegar við það miðuð að
verkið yrði unnið í Reykjavík og þeir
bentu á að það verk yrði að sjálfsögðu
tæplega eins vel af hendi leyst eins og hjá
erlendum kvikmyndaverksmiðjum sem
hefðu margra ára reynslu og
æfðum og vönum mönnum
á að skipa og öll tæki af nýj-
ustu og bestu gerð. Til við-
bótar yrði að hafa hugfast að
ekki mætti taka textana úr
mörgum myndum, eigend-
urnir teldu það skemmd á
myndinni og vildu ekki leyfa
það þar sem hver mynd væri
sýnd í afar skamman tíma en
allar myndir sem sýndar
væru á Islandi væru leigðar,
um kaup á myndum væri
ekki að ræða.
A þriðja áratugnum, eins
og löngum fýrr og síðar,
skipti hvort kvikmyndahúsið
í Reykjavík að jafnaði um
myndir tvisvar í viku og
sýndi þar með rúmlega eitt
hundrað nryndir á ári. For-
svarsmenn kvikmyndahús-
anna rituðu árið 1927:"
Ef tekinn yrði upp sá siður að fá text-
ann að öllum þessum myndum á ís-
lensku, til þess að sýna þær í 3-4 daga,
yrði kostnaðurinn sem af því leiddi
fyrir hvort kvikmyndahúsið 80-100
þúsund krónur á ári. Þegar þess er
gætt, að fýrir margar myndir sem
sýndar eru (til dæmis á sumrin) koma
alls ekki inn 800 krónur, eða sem
nemur kostnaðinum við textabreyt-
inguna, þá sjá allir sanngjamir menn
hvílík fjarstæða er að tala um íslenskan
texta á kvikmyndahúsunum hér, eins
og nú er ástatt. Hið eina, sem hægt er
að gera, ef menn ekki vilja þola hér
kvikmyndir með útlendum texta, er
að loka kvikmyndahúsunum.
Þannig hjálpaðist margt að við það að
ekki var talið unnt að setja íslenskan
texta við erlendar kvikmyndir, jafnvel
þótt þær væra þöglar. Fámennið gat
vissulega skapað margvíslegan vanda.
„Talandi myndir“
Þegar talmyndirnar leystu þær þöglu af
hólmi Alþingishátíðarárið 1930 voru
margir smeykir við hina nýju tækni
vegna þess að þá skorti málakunnáttu til
að skilja það sem sagt var í myndunum.
Tilfmningar sumra voru blendnar, dag-
inn fýrir fýrstu talmyndasýningu á íslandi
sagði Morgunblaðið:'2 „sumir [munu] líta
þannig á, að þeir eigi munu eiga sama
erindi og áður í bíó, vegna vantandi
málakunnáttu, því þeir munu eigi geta
skilið tungur þær sem talaðar eru í
myndunum — ensku og þýsku.“ Blaðið
gat huggað þá hina sömu með því, að
munurinn á talmyndunum og hinum
þöglu væri minni en margur héldi, það
sagði: „Texti er sýndur við og við, og er
hann á dönsku eins og aðrir textar kvik-
mynda sem hér hafa verið sýndar, svo
menn eiga jafn auðvelt með að fýlgja
þræði myndanna eins og áður, þó þeir
skilji ekki eða aðeins að litlu leyti mál
leikendanna." Auk þess væru alllangir
kaflar myndanna oft þöglir.
Strax á fýrsta degi talmyndanna á Is-
landi var því þó haldið fram að fæstir
skildu það sem sagt væri í slíkum mynd-
um.13 Ekki voru allir sammála því en
nokkuð skiptar skoðanir voru um mála-
kunnáttu landsmanna. Sumum þótti tals-
verður hægðarauki af dönsku þýðing-
unni.14 Aðrir töldu Islendinga bara nokk-
uð slynga í ensku og voru engan veginn
sáttir við þennan danska skýringartexta.
Skömmu eftir fýrstu talmyndasýninguna
var ritað:15
Ef nokkuð er hæft í . . . frásögn um
vankunnáttu Islendinga í ensku, sem
veldur þvi að þeir skilja
ekki það, sem talmyndirn-
ar herma, þá getur ástæð-
an vart verið önnur en sú,
að inn í samtölin er klínt
dönskum texta, sem ekk-
ert gerir annað en glepja
áheyrandann og trufla
hann, og verða þess vald-
andi, að hann missir þráð-
inn í atburðunum. I
myndinni er sagt frá at-
burði (á ensku). Leikarinn
byijar setninguna, en á
meðan hann heldur áfram
að tala, er smellt á tjaldið
dönsku lesmáli, ágripi
þess, sem leikarinn heldur
áfram að segja. Ahorfand-
inn fer að stauta sig fram
úr þessu og lendir síðan í
miðri setningu, úti á
þekju, og áttar sig ekki
strax á framhaldinu.
Það væri góðra gjalda vert að nema
þetta danska lesmál úr myndunum. Is-
lendingar þarfnast áreiðanlega engrar
tilsagnar í ensku frá Dönum.
Undir þetta sjónarmið var tekið:16 „þessi
dönsku skýringarinnskot í myndirnar
[eru] óþarfa agnúi athygli manna. Það
má vera allsendis meinfangalaust danskri
menningu, þótt bent sé á, að slíkir að-
aldrættir væru birtir á ensku; þess heldur,
sem hér er miklu meiri fjöldi enskulæsra
en enskumælandi og -skiljandi." Með
þessu móti gætu textaskýringamar jafnvel
orðið hjálparhella þessum þorra manna
Bió , ...
5onny Boy
(The singing Fool)
hljóm- og tal-mynd i 11 þáttum.
Aðalhlutverkin Ieika:
A1 Jolson,
JosephineDnnn,
Sonny Boy.
Aðgönguiiiiðar selilir frá kl. 1. Tekið á móti pöntimum í
símá 344. Pantaðra aðgcngumiða á sýninguna kl. 7, sje vitjað
fyrir kl. 6, og á sýniugur.a Id. 9 fyrir kl. 8. Eftir þann tíma
veröa pantanir seldar öðrum, ef eltki er öðru vísi um samið.
Talmyndir héldu innreið sína á Islandi hinn I. september 1930.
8 SAGNIR