Sagnir - 01.06.1995, Blaðsíða 19
voru færðir inn allir merkisatburðir í lífi
fólksins í sóknunum, s.s. fæðingar, ferm-
ingar, giftingar, dauðsfbll og flutningar.
Frá Stóra-Dalssókn er að finna bók þar
sem bygað var að færa inn árið 1816, svo
er einnig um að ræða í Reynissókn.
Báðar þessar bækur eru nokkuð aðgengi-
legar.
BÖRN Á HVERJU ÁRI
Sá tími kemur að þú þarft að skýra fyrir bömum
þínum hvers vegna þau fæddust, og furðulegt má
telja ef þú veist ástæðuna þegar þar að kemur.
Hazel Scott
Sigríður Auðunsdóttir eignaðist sitt fyrsta
barn 22 ára gömul. Að meðaltali liðu
síðan 18 mánuðir á milli fæðinga hjá
henni, sem þýðir að hún var tæplega bú-
in að ná sér eftir eina barneign, þegar
önnur meðganga var komin af stað. Ef
litið er framhjá síðustu fæðingunni verð-
ur meðaltalið 17 mánuðir. A milli síðasta
og næst síðasta barnsburðar Sigríðar líða
37 mánuðir. Miðað við það sem á undan
var gengið var þetta óvenju langt bil. Það
vekur upp þá spurningu hvaða breyting
hafi orðið á aðstæðum hjá Sigríði, sem
þýddi þetta óvenju langa bil? Erfitt er að
finna einhverja haldbæra skýringu á
þessu, en þó er ekki ólíklegt að aldurinn
hafi verið farinn að segja til sín.
3. febrúar 1823, þrettán árum áður en
Einar og Sigríður gengu í það heilaga,
strengdu Runólfur Sigurðsson 25 ára og
Ingveldur Jónsdóttir 24 ára, frá Heiði í
Reynissókn, hjúskaparheit sitt fyrir aug-
liti guðs. Eitthvað hefur brúðurin unga
verið farið að þykkna undir belti er þau
stóðu við altarið því þremur mánuðum
eftir brúðkaupið var hún léttari af þeirra
fyrsta barni.
Ingveldur eignaðist heldur færri börn en
Sigríður, eða ellefu alls á sextán árum.
Að meðaltali leið rúntlega tveimur mán-
uðum lengra á ntilli fæðinga hjá Ingveldi
eða tuttugu mánuðir. En líkt og hjá Sig-
ríði líður lengst á milli síðustu og næst
síðustu fæðingar, eða 34 mánuðir, sem
þýðir að meðaltalið hækkar um rúman
einn ntánuð.
Loftur Guttormsson sýnir fram á með
útreikningi í grein sinni „Barnaeldi, ung-
barnadauði og viðkoma á Islandi 1750 —
1860“, að tæpir 30 ntánuðir hafi að með-
altali liðið á milli fæðinga hjá giftum
konum á aldrinum 20 — 44 ára. Nokkur
hluti þessara kvenna eignaðist aldrei
börn, eða 10 - 15%. Það þýðir að í raun
hefur bilið verið nokkuð styttra.8 Miðað
við þetta hefur frjósemi Sigríðar og Ing-
veldar, og þá sérstaklega þeirrar fyrr-
nefndu, verið óvenju mikil.9 En var frjó-
semi þeirra stallsystra óvenju mikil miðað
við aðrar giftar konur í sóknunum
tveimur á þessum tíma?
Bameignarferill þeirra Ingunnar og
Sigríðar var nokkuð óvenjulegur miðað
við aðrar konur í sókninni. Fæðingarbil-
ið var skemmra, börnin fleiri, þær yngri
þegar þær áttu fyrsta barn og eldri þegar
það síðasta kom í heiminn. Ein skýringin
á þessu er giftingaraldur þeirra. Onnur
ástæða gæti verið sú að aðstæður á heim-
ilunum hafi verið óvenjulegar miðað við
önnur. Víst er að á Seljalandi var það svo.
Þar var stórbýli og sat húsbóndinn heinta
á búi sinu, en fór ekki í verið.1"
I báðum sóknunum er fæðingarbilið
nokkuð svipað. Munar þar rúmum mán-
uði sem það var lengra í Stóra-Dalssókn.
Það sem vekur þó mesta athygli er hve
mikill munur er á aldri kvennanna í
Tafla I. Fjölskyldumyndunarferli Einars Isleifssonar og Sigríðar Auðunsdóttur
Fæðingardagur Ár Aldur móður Fæðingarbil í mánuðum Nafn barns
11. júní 1837 22 Auðunn
5. október 1838 23 16 Isleifur
2. desember 1839 24 14 Sigríður
2. júlí 1841 26 19 Bergsteinn
9. nóvember 1842 27 18 Sigurður
2. desember 1843 28 13 Ólafur
12. júní 1845 30 17 Ólafur
6. desember 1846 31 18 Sigríður
14. júní 1848 33 17 Einar
15. október 1849 34 16 Ingibjörg
26. mars 1851 36 17 Jón
3. desember 1852 37 20 Árni
9. júní 1854 39 17 Una
17. desember 1855 40 18 Arnór
9. febrúar 1859 44 37 Guðmundur
Heimild: Þjsk: Prestþjónustubók. Stóri-Dalur undir Eyjafjöllum 1816 - 1848.
Prestþjónustubók. Stóri-Dalur undir Eyjafjöllum 1849 — 1886.7
Tafla II. Fjölskyldumyndunarferli Runólfs Sigurðsson og Ingveldar Jónsdóttur
Fæðingardagur Ár Aldur móður Fæðingarbil í mánuðum Nafn barns
17. maí 1823 24 Ragnhildur
30. júní 1824 25 13 Sigurfinnur
9. október 1825 26 15 Heiðmann
21. janúar 1828 29 28 Tala
18. ágúst 1829 30 19 Heiðmundur
17. nóvember 1830 31 15 Úlfur
20. desember 1831 32 13 Ingvi
20. mars 1833 34 15 Uni
4. desember 1834 35 20 Úlfur
12. október 1836 37 22 Steinunn
11. september 1839 40 34
Heimild: Þjsk: Prestþjónustubók. Reynissókn í Mýrdal. 1816 — 1863.
SAGNIR 17