Sagnir - 01.06.1995, Blaðsíða 18

Sagnir - 01.06.1995, Blaðsíða 18
Rcyniskirkja. Með breyttum áherslum innan sagnfræðinnar hefur fjöl- skyldan orðið mönnum hugleiknari en áður. Nú á dögum er ein undirgrein hennar alfarið helguð málefn- um fjölskyldunnar og birtast niðurstöður rannsókna í ýmsum tímaritum því tengdu. Miklar breytingar hafa orðið á fjölskyldugerðinni í gegnurn tíðina. Eftir því sem fæðingartíðni hefur lækkað hafa fjölskyldumar minnkað. A árabilinu 1856 — 1865 áttu íslenskar konur að meðaltali 4,968 börn. Rúmum hundrað árum seinna er þessi tala komin niður í 2,243 (1983).2 Barnmargar fjölskyldur tilheyra ekki fortíðinni, en slíkt telst firekar til undantekninga nú. Stærð fjölskyldunnar ræðst af mörgum þáttum en einn þeirra er fijósemi kvenna. Ut frá aldursbundinni frjósemi er hægt, með líkindareikningi, að komast nokkuð nærri um hvað hver kona átti mörg börn. Við þann útreikning verður að hafa í huga háan giftingaraldur hér á landi. Hér verður þó ekki hafður þessi háttur á. Ein leið til að rannsaka hver frjósemi kvenna var, er að rekja eftir heimildum hvernig fjölskyldumar mynd- uðust.3 Það gefur þó augaleið að ekki koma fram upplýsingar um meðalfjöl- skylduna í slíkum tilvikum því hver og ein fjölskylda hefur sín sérkenni. Hitt er þó víst að því fleiri slík dæmi sem eru skoðuð þvi öruggari verða niðurstöðum- ar. Hér verða skoðaðar tvær sóknir, Stóra-Dalssókn undir Vestur-Eyjafjöllum og Reynissókn í Mýrdal, á fýrstu áratug- um nítjándu aldar. Þrátt fyrir að báðar þessar sóknir séu við suðurströndina, þá vom þær nokkuð ólíkar. I Stóra-Dals- sókn höfðu íbúarnir lífsviðurværi sitt nær eingöngu af landbúnaði. Eitthvað var urn það að vinnumenn og eiginmenn hafi farið burt yfir vetrartímann í verið, á Suðumesin eða til Vestmannaeyja. I Reynissókn stunduðu menn sjóróða með landbúnaðinum.4 I stað þess að halda burtu í verið löbbuðu menn niður að sjávarsíðunni í dagrenningu og heim aft- ur að kvöldi. Fuglatekja skipti einnig miklu máli fýrir afkomu íbúanna, en þó sérstaklega þeirra efnaminni.5 Það er því nokkuð forvitnilegt að skoða hvort þessi aðstöðumunur hafi þýtt einhvern mun á Stóra Dalskirkja, reist Í895 en rifin 1970. fijósemi kvennanna. Einnig verða skoð- aðir þeir þættir sem haft geta áhrif á fijó- semi kvenna og hún borin saman við önnur lönd. Rannsóknin hefur þann annmarka að aðeins eru skoðaðar þær konur sem gifta sig í sókninni og búa í henni alla sina bamsburðartíð. Ef konan flytur úr sókn- inni á meðan hún er enn i barneign er henni sleppt, þvi erfitt er að fýlgja henni eftir. Þá var og miðað við að hjónin stæðu sjálf fýrir búi. Árið 1746 var prestum gert skylt að halda kirkjubækur. I fýrstu gekk illa að fá þá til þess, en með tímanum urðu þeir viljugri til verksins.6 I kirkjubækumar 16 SAGNIR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Sagnir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.