Nýtt Helgafell - 01.10.1958, Page 3
Hér er sýnishom af skáldskap
Jakofos Thorarensen
sjötugs
ORNINN
Um fir'ðleiðir svimhátt ílýgur
hinn fráneygi, þögli örn,
er hugstór í sókn og harður,
en halda þarf lítt á vörn.
Hann fár er að sjá í fasi
og framkoma þóttaherð,
mun stuttur í skapi og stríður,
en stendur við sína gerð.
Og vökull hann svífur víða,
sér viðhorfin tvenn og þrenn.
Um eitt er hann illa ræmdur:
hann ágirnist smáa menn.
Þá metur hann snöggt og mælir,
sé manneskjan nógu stutt,
þá hraðar 'ann sér og hremmir,
og hún er í burtu flutt.
Þó meiðir hann vart né myrðir,
hitt mun vera ætlun hans,
sín kjörböm að herða í klettum
og koma þeim vel til manns.
Því arnarins mið er aflið
og óðal hans hvelið blcrtt, —
hann sér eigi að smælkið saki
að svífa eða skyggnast hátt.
Á Fróni er nú fuglinn mikli
mjög fáliða á vorri öld,
rétt einn eða tveir í amti,
og annarra meiri völd.
Nýjasta ljóðabók Jakobs
Helgafellsbók