Nýtt Helgafell - 01.10.1958, Page 11

Nýtt Helgafell - 01.10.1958, Page 11
LÍFSGLEÐI í SUÐURSVEIT 57 uðinn, og hann borgaði Sigríði aurana með glöðu geði. Um þetta var kveðið í Suður- sveit: Fyrir kallið fékk ég kaup fullkomið með ekkert raup, lúsakamb svo laglegan. Litli Siggi gaf mér hann. Sigríður hafði keypt sér kamb fyrir aur- ana. (Jón Hallson hafði þann sið að ganga mikið út úr kirkju um messu og fór þá geyst og rismikið. Stundum var þetta gert til að staupa sig úti undir kirkjuvegg. Einu sinni kom Jón úr útferð og gengur hratt og hnarreistur inn kirkjugólfið og ætlar í sæti sitt við kór. Þá teygir Sigurður á Kálfafelli fyrir hann fótinn. Jón dettur áfram endilangur á magann á kirkjugólfið og varð af dynkur mikill, svo að allir hrukku við í kirkjunni. Jón veðnr að Sigurði eftir messu og ber það upp á hann, að hann hefði hrekkt sig af ásettu ráði og hótar honum hörðum hefndum, þó að síðar verði. Sigurður svaraði: „Mér datt ekki í hug að hrekkia þig, vesalingur. En ég dottaði, piltar, og teygði óvart frá mér fótinn.“) Hallur og Herdís áttu dóttur, sem Guð- nin hét. Hún giftist Páli Benediktssyni frá Arnanesi. Þau bjuggu á Smvrlabjörgum í Suðursveit, ég held við góð efni. Páll var nettur maður og fremur laglegur. Hann var ekki sagður greindur. Ekki veit ég hvort það var satt. Hann var kýminn. Guðrúnu sá ég einu sinni, svo að mig reki minni til. Hún var feiknalega stór og stórskorin og mikil í allar áttir. Mér fannst hún líkari tröllkonu þjóðsagnanna en mennskri manneskju. Páll kallaði hana Fjallkonuna. Mig minnir hún vera fyrir- mannleg, og ekkert slæmt heyrði ég um hana. Guðrún hafði gaman af hestum á sínum yngri árum og þótti alltaf skemmtilegt að heyra fréttir af gæðingum. Einu sinni heyrði hún sagt frá veðreiðum austur í Nesjum. Hún spurði vandlega um veð- reiðarhestana. Þegar hún hafði frétt ýtar- lega um kosti þeirra og galla, fer hún að segja frá fola, sem Jón Benediktsson í Árnanesi hefði átt þegar hún var þar á sokkabandsárum sínum, og sagði hún sög- una sem dæmi um það, hvað mikið efni gæti leynzt í ungum hestum, þó að þeir litu ekki út fyrir að vera merkilegir. „Hann sýndist ekki líklegur til að gera mikil afrek, hann Brúnn hans Jóns Bene- diktssonar. Það höfðu allir hann í háði og spotti, og enginn vildi vera þekktur fyrir að koma honum á bak. Ég bað svo að lofa mér að ríða honum á engjarnar vestur á Völlu. Ég var ekki fyrr komin á bak honum í Árnaneströðunum en hann tók sprettinn með mig og yfir alla paldra ok keldur og nam ekld staðar fyrr en vestur á Fljóta- bakka, eins og ekkert væri á bakinu á hon- um. Það var þó haldið, að ég hefði verið kúlukvetti í þá daga, þó ég sé nú ekki nema skorpin bein skuðin ein,“ og snöri sér um leið út í horn og sagði svo: „og eftir það var farið að sýna honum sóma.“ (Guðrún spurði Pál í fyrri heimsstyrjöld- inni: „Með hverjum eru Þjóðverjar?“ Páll svaraði: „En með þýzkurunum, þarna gamla skilningsleysi!“ Páll keypti 25 krónu hlutabréf í Eim- skipafélagi Islands. Það þótti Guðrúnu óþarfa bruðlun og átaldi Pál fyrir að fara svona með efni þeirra. Páll svaraði: „Verð ég ekki að sjá fyrir því, að það séu til skip í landinu til þess að flytja korn ofan í kjaftinn á þér.“) Eina vertíð fiskaðist illa á Hornafirði og var um það talað í héraðinu. Einhverjir spaugsamir laumuðu því að Guðrúnu, að aflaleysið væri því að kenna, að hann Guðni á Höfn stæði úti í Hvanney og bandaði öllum fiski frá landinu. Guðrún sagði, þegar hún fór að segja þetta öðrum: „Mikill andskotans maður er hann Guðni. Þarna stendur hann úti í Hvanney og varnar öllum fiski að kom- ast upp að landinu.“

x

Nýtt Helgafell

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýtt Helgafell
https://timarit.is/publication/1049

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.