Nýtt Helgafell - 01.10.1958, Side 42

Nýtt Helgafell - 01.10.1958, Side 42
88 HELGAFELL við höfum fengið frá Danmörku. Þessi elskulegu og dugmiklu hjón hafa komizt hátt í list sinni, og Reykvíkingar fá þeim hiklaust börn sín til þess að ala þau upp við þá listögun, sem heimtar intímasta tjáningu, og einna mesta alhliða ein- beitingu huga og tauga, allra lista. Þau hafa leiðbeint hér hóp unglinga, sem er á góðri leið að fylla skarð í listmennt okkar. En við eigum eftir sem áður engar dansmeyjar (Showgirls), en það er jafn fjarstætt að láta börnin í ballett- skóla Þjóðleikhússins hlaupa þar í skarðið og að skjóta Hauki Morthens inn í hlutverk Stefáns íslandi, og vita þó allir að hinn fyrrnefndi er miklu frægari söngvari hér. Ráðinn var hingað ásamt hljómsveitarstjóra og leikstjóra, danskur ballettmeistari, Sven Bunch, minniháttar spámaður úr hámenningu Evrópu, sem með líkum hætti og ballettfólk Þjóðleikhúss- ins var mjög fjarri því að falla inní þann ramma, sem leikurinn krafðist. Hin ýmsu menningar- tímabil sögunnar hafa, hvert með sínum hætti, fært okkur dýrmæta andlega fjársjóði úr reynslu sinni. Úrkynjunarskeiðin, dauðateygjur ofvaxinna menningarhátta, sem látið hafa undan síga fyrir stórbylgjum nýrra andlegra byltinga, engu síð- ur en gönuhlaup tillitslausra nýstrauma. Og ef til vill hafa fegurstu blóm menningarinnar vax- ið á leiði hennar. Þó hinn danski ballettmeistari væri ekki úr flokki hinna allra fremstu, var hann góður listamaður, er heimtingu átti á betra hlutverki en því, að vera leiddur eins og villu- ráfandi sauður um þetta annarlega svið, sem hann skildi ekki og ekki skildi hann, og það var beinlínis átakanlegt að horfa uppá hinar óþrosk- uðu meyjar ballettskóla Bistedhjónanna, í leit að þeim grófu gervihreyfingum, sem samdar eru fyrir hjólliðugar revíupiur til augnayndis nátt- úrutregum stórborgarbúum, Æ, mikið skelfing var þetta allt ómusterislegt á að líta. En það var hin sviflétta álfamær, Bryndís Schram, sem bjargaði sóma okkar í þetta sinn. Með andblæ þýðra vinda í brosmildu fasi og víkivakaspor í mjúkum og stoltum hreyfingum, leiddi hún hinn bleika sendiboða hámenningarinnar eins og strokufanga útaf sviðinu, og fékk okkur á þeirri stundu til að fyrirgefa það að við höfðum verið hrapallega göbbuð. Þetta átti aldrei að verða leikdómur, heldur almennt rabb um efnisval Þjóðleikhúss og með- ferð þess í stórum dráttum, og ábyrgðartilfinn- ingu á hæstu stöðum. Hér verður því ekki sagt frá ýmsu því sem var stórvel gert bæði af gest- um og heimamönnum og heldur ekki öðru, sem beinlínis var fyrir neðan allar hellur. Þegar stofnað er til fjáröflunar af slíku fyrir- hyggjuleysi, verður útkoman að jafnaði öfug við FYLGIZT MEÐ UNGU SKÁLDUNUM »ANDLIT í SPEGLI DROPANS" eftir Thor Vilhjálmsson Höt'uð-stílsnilling hinnar nýju kynslóðar HELGAFELLSBÓK f---------------------------- FYLGIZT MEÐ UNGU SKÁLDUNUM „NÓTTIN Á HERDUM OKKAR" Nýtt ljóðasafn myndskreytt af Kristjáni Davíðssyni eftir Jón Óskar HELGAFELLSBÓK tilganginn. Eins fer þegar andstæðum þeirrar tegundar, sem hér hafði verið hópað saman, er ætlað að búa undir einu þaki, íslenzkri álfamey í víkivakadansi, amerískri breiðgöturevíu og evrópískri hámenningu í dauðateygjum. Á slíkri samkundu skipta allir um hlutverk: Hálistin verður að viðundri, revían að ófimlegu sveita- skralli og álfkonan utangátta ásamt lífi og anda.

x

Nýtt Helgafell

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýtt Helgafell
https://timarit.is/publication/1049

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.