Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.2007, Síða 2
„Þetta er bara tómt helvítis rugl, bát-
urinn var seldur í byrjun árs 2006
þannig að sýslumaðurinn í Reykjavík
hafði ekkert að gera með að kyrrsetja
hann,“ segir Jónas Garðarsson.
Jónas var dæmdur í Hæstarétti í
þriggja ára fangelsi fyrir manndráp
af gáleysi þegar skemmtibáturinn
Harpa, sem var í hans eigu, steytti á
Skarfaskeri árið 2005. Skemmtibátur-
inn Harpa er nú horfinn úr löggæslu
að sögn aðstandenda Matthildar
Harðardóttur og Friðriks Hermanns-
sonar sem létust í slysinu. Hæstirétt-
ur staðfesti að báturinn skyldi settur
í löggæslu þar til hann yrði seldur á
uppboði og myndi söluhagnaðurinn
renna til aðstandenda þeirra sem lét-
ust. Jónas var dæmdur til að greiða 10
milljónir króna í skaðabætur.
Jónas Garðarsson segir aðgerð-
ir sýslumanns um að setja bátinn í
löggæslu óskiljanlegar. „Ég er ekki
eigandi Hörpu lengur og ég skil ekki
hvaða forsendur þeir gefa sér fyrir
því að setja hluti sem ég á ekki í lög-
gæslu.“ Jónas mætti ekki til sýslu-
manns til þess að gera athugasemdir
við að báturinn yrði settur í löggæslu.
Hann segist heldur ekki hafa í hyggju
að gera það héðan af. „Þeir mega ves-
enast í þessu rugli eins og þeir vilja
mín vegna. Þeir reka sig á þetta á end-
anum.“ Jónas neitar að gefa upp hver
keypti bátinn eða hvar hann er niður-
kominn.
Nýtt dómsmál í uppsiglingu
Jóhannes Rúnar Jóhannsson,
lögmaður aðstandenda Matthild-
ar og Friðriks, undrast það að Jónas
haldi því fram að báturinn hafi ver-
ið seldur. „Það er hans að sanna það
að Harpa hafi verið seld, hann hlýtur
þá að eiga skjöl til þess að sýna fram
á það.“
Þegar eigur eru settar í löggæslu
eru þær ennþá í vörslu eigandans,
en hann hefur ekki leyfi til þess
að ráðstafa þeim. Jóhannes seg-
ir það hafa legið ljóst fyrir að
Jónas var skráður eigandi
Hörpu, sem skráð er í Bret-
landi og þegar gerðin um
löggeymslu var gerð hafi
ekkert bent til þess að
hann hafi verið búinn að
selja bátinn. Á meðan á
réttarhöldunum stóð
var Harpa í geymslu
í bílskúr í iðnaðar-
hverfi í Garðarbæ.
Þegar löggeymslan
var gerð í október
2006 var báturinn
í kerru fyrir utan
bílskúrinn.
„Ef það kemur í ljós að hann hafi
að okkar mati framið brot með því að
selja bátinn af ásetningi í trássi við
gerðina munum við kæra hann,“ segir
Jóhannes.
Baldur Hermannsson, bróðir Frið-
riks heitins, sagð í samtali við DV að
aðstandendur myndu ekki gefast
upp. „Ef satt reynist er nýtt dómsmál
í uppsiglingu,“ segir hann. Meint brot
Jónasar ef hann seldi bátinn þrátt fyrir
að hann væri í löggeymslu telst sam-
kvæmt lögum vera skilasvik.
Skráður í Bretlandi
Ekki ligg-
ur fyrir
hver er eigandi Hörpu nú um stund-
ir, en Baldur segir gögn til sem vísa til
þess að báturinn sé í Noregi. Báturinn
er sem fyrr segir skráður í Bretlandi og
hefur aldrei verið skráður hér á landi.
Jóhannes Rúnar bendir á að Harpa sé
ekki skráð með lögformlegum hætti
samkvæmt breskum lögum, heldur
hafi verið um að ræða einhvers konar
málamyndaskráningu.
Hann undrast jafnframt aðgerða-
leysi Jónasar að gera ekki athuga-
semdir við að eign sem hann þver-
tekur fyrir að eiga hafi verið sett í
löggeymslu. „Honum var ljóst að það
væri búið að kyrrsetja bátinn en gerði
engar athugasemdir. Það er skítalykt
af því.“
Enn hefur ekki verið ákveðið hve-
nær Jónas mun hefja fangelsis-
afplánun sína eða í hvaða
fangelsi.
föstudagur 7. september 20072 Fréttir DV
InnlendarFréttIr
ritstjorn@dv.is
Jónas Garðarsson kannast ekkert við að eiga skemmtibátinn Hörpu. Hann segist hafa
selt bátinn löngu áður sýslumaður lagði bann við því. Jónas gefur ekki upp hver keypti.
Lögmaður aðstandenda þeirra sem létust í sjóslysinu á Skarfaskeri segir ekkert benda
til að báturinn hafi verið seldur. Nýtt kærumál á hendur Jónasi er í uppsiglingu.
ValGeir ÖrN raGNarSSoN
blaðamaður skrifar: valgeir@dv.is
seldi Huldumanni
„Honum var ljóst
að það væri búið
að kyrrsetja bát-
inn en gerði engar
athugasemdir. Það
er skítalykt af því.“
Jónas Garðarsson
„Þeir mega vesenast í
þessu rugli eins og þeir
vilja mín vegna. Þeir reka
sig á þetta á endanum.“
Hæstiréttur Íslands aðstandend-
um hinna látnu voru dæmdar bætur
og átti söluhagnaður Hörpu að renna
til þeirra. Harpa er nú horfin.
Heitir á
veðurguðina
Óvíst er hvort veiðimönnum
takist að fella öll þau hreindýr
sem kvóti er fyrir þetta árið. Jó-
hann Gunnarsson, starfsmaður
veiðistjórnunarsviðs Umhverfis-
stofnunar, segir hreindýraveiðina
þó hafa gengið vel í ár. „Það eru
um 200 dýr eftir af kvótanum en
kvótinn hefur aldrei verið jafnhár
og í ár eða um 1.137 dýr.“
Veðráttan hefur mikið að
segja um gang veiðanna. Undan-
farið hefur viðrað vel til veiða og
segist Jóhann vonast til þess að
veðurguðirnir verði veiðimönn-
um áfram hliðhollir svo það ná-
ist sem mest af kvótanum enda
leiðinlegt þegar menn ná ekki að
veiða sín dýr.
Elínborg messar
Valnefnd í Grindavíkur-
prestakalli leitaði ekki langt
yfir skammt þegar kom að
prestsvali. Nefndin valdi
sem næsta prest Grindavíkur
séra Elínborgu Gísladóttur
sem hefur gegnt prestsstarfi
í Grindavíkurprestakalli frá
síðasta hausti.
Fjórir sóttu um brauðið.
Björn Bjarnason, dóms- og
kirkjumálaráðherra, veitir
embættið til fimm ára, frá 1.
september síðastliðnum að
telja.
Sjö prestar vilja
í Dómkirkjuna
Sjö sóttu um embætti
prests í Dómkirkjunni. Emb-
ættið er laust eftir að séra
Hjálmar Jónsson var skipaður
sóknarprestur við kirkjuna.
Prestarnir Anna Sigríður
Pálsdóttir, Ása Björk Ólafs-
dóttir, Guðbjörg Jóhannes-
dóttir, Guðrún Karlsdóttir
og Þórhildur Ólafs sækja um
embættið, sem og guðfræð-
ingarnir Rúnar M. Þorsteins-
son og Sigríður Hrönn Sig-
urðardóttir
Nú tekur níu fulltrúa val-
nefnd til við að meta um-
sækjendur áður en Karl Sig-
urbjörnsson biskup skipar í
embættið.
lítill verðmunur
hjá sláturhúsum
„Það virðist ekki vera nein
samkeppni,“ segir Jóhann Sig-
fússon, formaður Landssamtaka
sauðfjárbænda. Dæmi eru um
að munur á verði sláturafurða
sé um og innan við eitt prósent.
Engin samkeppni virðist ríkja
á milli íslenskra sláturhúsa ef
marka má verð þeirra á flestum
kjötflokkum þessa dagana. Sem
dæmi kostar kíló af dilkakjöti í
DR2-flokki 379 krónur hjá einu
sláturhúsi á Norðurlandi, 381 hjá
öðru og 383 hjá því þriðja.
Jóhann telur ástæðuna þó
ekki vera samráð heldur skort á
samkeppni. „Þeir sem riðu á vað-
ið með verð voru eflaust í lægri
kantinum og hinir virðast bara
hafa fylgt fast á eftir og látið þar
við sitja,“ segir Jóhann.
Samkvæmt verðlaunatillögu um
uppbyggingu Kvosarinnar í Reykjavík
eftir brunann í vor verður gamla hús-
ið að Lækjargötu 4, sem nú er á Ár-
bæjarsafni, flutt aftur niður í miðbæ.
Arkitektastofurnar Argos, Gullinsnið
og Stúdíó Grandi urðu hlutskarpast-
ar í hugmyndasamkeppninni en til-
kynnt var um sigurvegarana í gær.
Hugmyndir þeirra liggja til grund-
vallar uppbyggingunni en þar er ekki
gert ráð fyrir háhýsum í stað þeirra
sem brunnu.
Í tillögunni er lögð áhersla á hæga
bílaumferð á svæðinu í því skyni að
minnka slysahættu. Hugmynda-
smiðir telja best að bílastæði séu í út-
jaðri miðborgarkjarna svo umferð að
bílastæðahúsum beinist ekki í gatna-
kerfi miðborgarinnar. Bílastæði und-
ir tónlistarhúsi eiga að þjóna norð-
urhluta Kvosarinnar en lagt er til að
nýtt bílastæði undir Tjörninni þjóni
suðurhlutanum. Einnig er lagt til að
nýtt niðurgrafið bílastæði komu á
bak við Stjórnarráðið.
Svæðið sem tillagan tekur til af-
markast af Pósthússtræti, suðurhlið
Hótel Borgar, Skólastræti, Stjórnar-
ráðinu, suðurhlið TRH-reitsins og
Tryggvagötu.
Dómarar hrósuðu þeirri áherslu
sem arkitektarnir lögðu á að varð-
veita menningarminjar samhliða því
að stuðla að spennandi uppbygg-
ingu.
Í greinargerð frá arkitektastofun-
um segir að margbreytileikinn sem
einkenni Kvosina sé til frásagnar um
þróunarsögu borgarinnar og hann
beri skilyrðislaust að virða og hlúa
að.
Reykjavíkurborg efndi til hug-
myndaleitarinnar í samstarfi við
Landsbanka Íslands og Hótel Borg.
Ákveðið var að hafa hana í samvinnu
við Arkitektafélag Íslands og voru í
því skyni valdar sex arkitektastofur til
verksins og þeim greitt fyrir sitt fram-
lag. Öllum var þó frjálst að senda inn
tillögur en alls bárust 16 hugmyndir.
erla@dv.is
Hæg bílaumferð og fjöldi bílastæða einkenna tillögur um uppbyggingu Kvosarinnar:
Hús flutt af Árbæjarsafni í Kvosina
Brunarústir við
lækjargötu
Verðlaunatillaga að
uppbyggingu
Kvosarinnar eftir
brunann í vor var
kynnt í gær.