Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.2007, Blaðsíða 50

Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.2007, Blaðsíða 50
DV Helgarblað föstudagur 7. september 2007 50 Sakamál Ef nefna ætti fáránlegasta dóm eða ákæru í réttarsögu Bandaríkjanna væri af nógu að taka. Nú lætur Pennsylvaníuríki að sér kveða í því sambandi því mál hins sjötíu og eins árs gamla William Barnes er afar sérstakt. Barnes hefur verið ákærður fyrir morð fjörutíu og einu ári eftir að skotbardaginn átti sér stað, árið 1966, en fórnarlambið dó fyrir tveimur vikum. Fórnarlambið, Walter T. Barclay lögregluþjónn, lamaðist vegna skaða sem hann hlaut í skotbardaganum og var bundinn við hjólastól þaðan í frá. Hann beið engan heilaskaða, en líf hans varð að sjálfsögðu með öðrum hætti en hann hafði ætlað. Hann bjó þó á eigin heimili en fyrir fimm árum einangraði hann sig á meðferðarheimili. Deyr af völdum sýkinga William Barnes fékk fimmtán ára fang- elsisdóm fyrir tilraun til morðs og afplánaði hann. Nú stendur hann frammi fyrir nýjum ákærum, sjötíu og eins árs að aldri, því rétt- arlæknir fullyrðir að banamein Barclays hafi verið sýkingar af völdum skotsáranna sem hann hlaut árið 1966. Saksóknarinn, Lynne Abraham, er viss í sinni sök. „Við getum fært sönnur á sekt Williams Barnes í dauða Walter T. Barclays. Lögin kveða á um að ef gerandi kemur af stað keðjuverkuner hann, óháð tímamörkum, ábyrgur fyrir afleiðingum sem eru tilkomnar vegna hennar, svo fremi að sannað þyki að ekkert annað hafi rofið ferlið,“ sagði hún. Ákærður fyrir morð fjörutíu og einu ári eftir skotárás: Bandarískt réttlæti Árið 1959, nánar tiltekið 9. júní, hvarf hin tólf ára gamla Lynne Harper ekki langt frá flugherstöð Konunglega kanadíska flughersins í Clinton, Ontaríó, í Kanada. Tveim- ur dögum síðar, síðla dags 11. júní, fannst lík hennar skammt frá ná- lægum bóndabæ. Lynne hafði ver- ið nauðgað og hún kyrkt með sinni eigin blússu. Fyrr um kvöldið hafði Steven Truscott, fjórtán ára, gefið henni far á reiðhjóli sínu. Þau voru skólafélagar í Hugh Campell-skól- anum, rétt norðan við flugherstöð- ina og þaðan hafði leið þeirra legið. Varðhald og ákæra Innan tveggja daga hafði lögreglan tekið Steven Truscott fastan. Innan sjö klukkustunda horfðist hann í augu við ákæru um morð. Saksóknari fór fram á að réttað yrði yfir honum sem fullorðnum en þeirri kröfu var vísað frá og réttarhöld yfir Steven hófust um miðjan september sama ár. Réttarhöldin tóku einungis fimmtán daga og kviðdómurinn úrskurðaði Steven Truscott sekan, en höfðaði til miskunnar dómarans. En dómarinn í málinu, Justice Ferguson, dæmdi sakborninginn til hengingar, eins og kanadísk lög kváðu á um. Dómurinn mildaður Steven Truscott var árið 1959 yngsti einstaklingurinn á dauða- deild í Kanada. Mál hans er eitt það þekktasta og umdeildasta í réttar- sögu landsins. Eftir að dómur hafði verið kveðinn upp dvaldi Steven í klefa sínum, í skugga gálgans, og þremur áratugum síðar rifjaði hann upp þessa daga. Daga sem liðu í ótta vegna tilhugsunarinnar um að snaran myndi herðast að hálsi hans fyrir fimmtán ára afmælið. „Ég vaknaði einn daginn og einhver var að smíða fyrir utan klefann minn. Maður gat heyrt hamarshöggin og ég hélt að þeir væru að smíða gálgann,“ sagði hann. Eftir fjögurra mánuða fangelsisvist var dómn- um breytt í lífstíðarfangelsi. Ekki er loku fyrir það skotið að mál Stevens hafi ýtt undir ákvörðun kanadískra stjórnvalda að afnema dauðarefs- ingu í landinu árið 1976. Málið verður forsíðufrétt Mál Stevens var frá upphafi um- deilt. Ekki eingöngu vegna hins unga aldurs hans, heldur einnig vegna efasemda margra um sekt hans. Árið 1966 kom út bókin The Trial of Steven Truscott, eftir Isa- bel LeBourdais. Í bókinn gagnrýn- ir höfundurinn fljótaskriftina sem einkenndi lögreglurannsóknina og varpaði fram spurningum um rétt- arkerfi landsins, sem hafði verið talið óskeikult. Röksemdir hennar urðu forsíðufrétt og stjórn landsins krafðist þess að málið yrði endur- skoðað. Hæstiréttur Kanada endur- skoðaði mál Stevens, ekki með til- liti til sýknu eða sektar, heldur til að ákveða hvort hann skyldi fá ný rétt- arhöld. Með átta atkvæðum gegn einu var ákveðið að dómur yfir hon- um skyldi standa. Annmarkar á rannsókn Steven Truscott fékk reynslu- lausn eftir að hafa afplánað tíu ár. Hann tók upp nýtt nafn og hélt sig til hlés til ársins 2000. Þá sýndi CBC-sjónvarpsstöðin í Kanada heimildarmynd um mál- ið. Þar komu fram vísbending- ar sem, ásamt þeim sem kom- ið höfðu fram í bók LeBourdais, bentu til verulegra annmarka á rannsókn lögreglunnar. Lögregl- an hafði með öllu afskrifað mögu- leikann á að einhver annar hefði framið glæpinn og gert lítið úr vitnisburði sem ekki hafði hugn- ast henni. Málið hafði einungis verið byggt á líkum og vitnisburði meinafræðings sem staðhæfði að Lynne hefði dáið á tímabilinu frá klukkan sjö til klukkan stundar- fjórðung í átta kvöldið sem hún hvarf. Meira að segja í dag, með allri nútímarannsóknartækni, er hæpið að hægt sé að ákvarða dán- arstund með slíkri nákvæmni. En lögreglan var sátt. Kynferðisglæpamenn í grennd Aldrei á meðan á rannsókn málsins stóð voru rannsakaðir aðrir möguleikar en Steven Truscott. Blaðamenn komust að því í gömlum herskjölum að í tuttugu mínútna fjarlægð frá flugherstöðinni bjó Alexander Kalichuk. Hann var liðsforingi í flughernum, mikill drykkjumaður og hafði tengst kynferðisbrotum. Lögreglan hafði haft afskipti af honum eftir að hann reyndi að tæla tíu ára gamla stúlku inn í bifreið sína þremur vikum áður en Lynne Harper hvarf. Annar ónafngreindur maður, rafvirki með nauðgunardóma á bakinu, starfaði í herflugstöðinni og þekkti til Harper-hjónanna. Þessir tveir komu aldrei til álita lögreglu í máli Stevens Truscott. Hélt alltaf fram sakleysi Þegar Steven Truscott kom fram á sjónarsviðið árið 2000 sagðist hann vilja hreinsa nafn sitt vegna barna sinna og barnabarna. Hann hélt alltaf fram sakleysi sínu. Samtök sem taka að sér mál ranglega dæmdra manna tóku Steven Truscott upp á arma sína. Árið 2001 fóru samtökin fram á að málið yrði tekið upp að nýju. Í sjö hundruð blaðsíðna skýrslu var sýnt fram á þröngsýni lögreglunnar við rannsókn málsins og hundsun hennar á mikilvægum vitnum og öðrum mögulega grunuðum. Mál hans var tekið fyrir árið 2006 og í ljósi nýrra vitnisburða og nýrra sönnunargagna var sektardómur Stevens Truscott felldur. Stórir skór Ef hinn breiði vegur syndarinnar freistar einhvers, verður viðkomandi að búa yfir lágmarksskynsemi. Hún reiddi greinilega ekki vitið í þverpokunum ísraelska konan sem tekin var fyrir þjófnað í skóbúð einni í Ísrael. Nokkrum dögum fyrir handtökuna hafði hún stolið skóm á son sinn en komst að því að þeir voru af rangri stærð. Hvað var til ráða? Jú, konan sneri aftur á vettvang glæpsins til að fá skónum skipt. Í millitíðinni hafði þjófnaður konunnar uppgötvast og afgreiðslumaðurinn bar kennsl á konuna, hringdi í lögregluna og... úti er ævintýri. Harrisburg, höfuðborg Pennsylvaníu ríkið kemst á blöð sögunnar vegna undarlegs réttarfars. Upp með hendur Þegar tveir starfsmenn bensínstöðvar í Ionia í Michigan í Bandaríkjunum neituðu að afhenda ölvuðum þjófi peningana, hótaði hann að hringja á lögregluna. Þeir neituðu engu að síður að verða við kröfum hans og hann hringdi á lögregluna og var handtekinn. Flas er ekki til fagnaðar Ef ætlunin er að fremja afbrot er betra að líta í kringum sig. Þessu gleymdi einn seinheppinn smákrimmi í Kaupmannahöfn. Um miðja nótt réðst hann á og rændi sextugan karlmann. Á meðan ræninginn neyddi fórnarlambið til að afhenda peningaveski sitt fylgdist lögreglan með. Lögreglunni var því í lófa lagið að handtaka smákrimman strax í kjölfarið og mótmæli höfðu lítið að segja því hann var með ránsfenginn á sér. Hvar er lögreglan þegar maður þarfnast hennar? Á staðnum. Brókarlaus í blómabeði Mark Stahnke frá Wisconsin í Bandaríkjunum vaknaði timbraður dag einn eftir gott fyllirí. Til að bæta gráu ofan á svart var hann brókarlaus í garði nágrannans. En það var ekki það versta, því í einum vasa hinnar glötuðu brókar var ávísun upp á sem svarar til tveggja og hálfrar milljónar íslenskra króna. En lánið hafði leikið við Mark, því miskunsamur samverji hafði fundið buxurnar og skilað á næstu lögreglustöð og þar gat Mark vitjað þeirra. Árið 1959 vakti mál Stevens Truscott mikla athygli. Aðeins fjórtán ára að aldri var hann dæmdur til dauða í Kanada fyrir morð. Rannsókn lögreglunnar á þeim tíma var umdeild og margir efuðust um sekt Stevens. Nú hefur málið loks verið til lykta leitt. Löng Leið tiL réttLætis Steven Truscott Hélt alltaf fram sakleysi sínu.Vettvangurinn Lögreglumaður þar sem líkið fannst.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.