Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.2007, Blaðsíða 23

Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.2007, Blaðsíða 23
DV Helgarblað föstudagur 7. september 2007 23 að var fallegasti dagur vors- ins, 5. maí 2006. Helga María Hallgríms- dóttir var gestkom- andi úti á landi með dóttur sinni Sigrúnu Maren, tveggja og hálfs árs. Þegar hún ætlaði að vekja þá stuttu tók það hana nokkra stund að átta sig á að Sigrún Maren var látin. Hún hafði orðið bráð- kvödd um nóttina. „Við Sigrún Maren höfðum komið kvöldinu áður að skoða dýr- in í sveitinni eins og við höfðum áður gert og áttum notalega stund þar. Sigrún Maren var oft lengi að vakna og í fyrstu hélt ég að það væri ástæðan fyrir hversu illa mér gekk að vekja hana. Svo varð mér ljóst að ekki var allt með felldu. Það var mikill friður yfir henni. Innst inni vissi ég að hún væri farin en vildi ekki trúa því. Ég man lítið eftir næstu dögum á eftir.“ Hélt ég myndi vakna Helga María segist þakklát fyr- ir það núna að hafa verið einmitt á þessum stað þegar kallið kom. Í húsinu voru aðrir fullorðnir ein- staklingar sem gripu inn í. Hringt var eftir sjúkrabíl á Akranes en meðan beðið var upplifði Helga María sig eins og hún væri föst í martröð. „Ég átta mig ekki á neinum tíma- setningum. Ég fór úr herberginu og kom inn í það aftur. Aftur og aftur. Hélt einhvern veginn að þetta væri draumur og að næst þegar ég kæmi inn í herbergið myndi ég vakna upp af þessari martröð. Sigrún Maren væri á lífi.“ Sjúkrabíll, lögregla og læknir komu og sóttu litlu stúlkuna. Helga María var sannfærð um að Sigrún Maren væri á lífi, hún væri bara í losti. „Það var ekki fyrr en læknir- inn sagði mér að barnið væri látið að ég skynjaði raunveruleikann,“ segir hún. „Í sjúkrabílnum hélt ég utan um litla líkamann hennar á sjúkrabörunum. Samt hugsaði ég enn á þeirri stundu: „Bráðum lýk- ur þessu. Bráðum vakna ég og hún verður lifandi.“ Ég gat ekkert grát- ið, ég var stjörf. Bæði var ég deyfð frá náttúrunnar hendi og af lyfjum sem læknirinn gaf mér. Það er eins og náttúran grípi inn í þegar svona mikil sorg dynur yfir.“ Sjálfsásökun Á sjúkrahúsinu á Akranesi var farið í kapelluna með Sigrúnu Mar- en og þangað komu nánustu ætt- ingjar Helgu Maríu og presturinn, séra Eðvarð Ingólfsson, átti eftir að reynast henni stoð og stytta, en Helga María er ættuð af Akranesi. „Ég var full ásökunar í eigin garð í mjög langan tíma eftir and- lát hennar. Ég velti meðal annars fyrir mér hvort hægt hefði verið að afstýra dauða hennar hefðum við verið heima. Ég veit núna að ekkert gat komið í veg fyrir að hún létist. Og þegar ég fór að beita skynsem- inni var ég þakklát fyrir að hafa ekki verið heima. Þá hefði Maron sonur minn, sem þá var tæplega þrettán ára, komið að systur sinni látinni... Ég fór í „ásökunarpakkann“ eins og margir gera. Ásakaði mig fyrir að hafa ekki verið fullkomið foreldri. Stuttu áður en hún dó hafði hún til dæmis tekið upp á því að biðja mig að halda á sér í fanginu þegar við vorum á ferðinni í bílnum. Eðlilega gat ég ekki stoppað á miðri Miklu- braut og tekið barnið í fangið, en guð minn góður hvað ég vildi að ég hefði gert það.“ Á minningarsíðu Sigrúnar Mar- enar á netinu er hægt að hlusta á tvö lög meðan skoðaðar eru myndir af henni á stuttri ævi; When I think of angels og Litfríð og ljóshærð. Síð- arnefnda ljóðið segir Helga María að hefði auðveldlega getað verið samið um dóttur hennar. „Sigrún Maren var líflegt og fjörugt barn, ofboðslega vel gefin, uppátækjasöm og orkumikil. Hún var forvitin, elskaði að syngja og dansa og var virkilega skemmtilegt barn. Fólk heillaðist af henni og ég hef oft spurt sjálfa mig hvort líf okkar og dauði séu löngu ákveðin áður en við fæðumst; velti fyrir mér hvers vegna hún náði að snerta svo marga á svo stuttri ævi.“ Hvað heldur þú? „Ég held það, já. Ég held að allt sé fyrirfram ákveðið. Komu- og brottfararstundir. Sigrún Maren var krufin, en það komu engin svör önnur en þau að dauða hennar olli ekkert sem hefði verið fyrirsjáan- legt. Hún hafði fengið flensur eins og önnur börn, en var heilbrigð að öllu leyti.“ Lítil stúlka í bleikri kistu Helga María er menntaður fé- lagsráðgjafi og kennari og telur að það hafi að mörgu leyti hjálp- að henni við að leita til réttra aðila eftir aðstoð. „Vinur minn kom mér í sam- band við konu sem hafði mörgum árum áður misst manninn sinn og svo seinna dóttur og það gerði mér ótrúlega gott að ræða við einhvern sem skildi sorgina. Ég fór í viðtöl hjá mjög góðum sálfræðingi, sem reyndist mér vel. Einnig sótti ég fundi hjá sorgarsamtökunum Ný dögun og fór á námskeið í sorg og sorgarviðbrögðum í Grafarvogs- kirkju. En lengi eftir dauða Sigrún- ar Marenar var ég hreinlega í losti. Ég var alls ekki með sjálfri mér. Ég skildi ekki hvernig lífið gat haldið áfram, hvernig bílar héldu áfram að þjóta eftir götunum og hvernig fólk gat hlegið. Ég man ekki hve- nær ég hló fyrst eftir að ég missti hana en man hvað ég fékk mikið samviskubit yfir að geta hlegið.“ Hún man lítið eftir dögunum eftir andlátið en segist þó hafa get- að tekið fullan þátt í undirbúningi jarðarfarar Sigrúnar Marenar. „Ég var ánægð með hversu vel var að öllu staðið. Hún hvíldi í bleikri kistu, því hún var svolítið bleik stelpa,“ segir hún og brosir lítillega. „Fyrstu dagana eftir and- látið bjó ég hjá mömmu á Akra- nesi, svaf mikið og alltaf þegar ég vaknaði hélt ég í þá von að þetta hefði allt verið vondur draumur. Séra Eðvarð Ingólfsson kom mikið til mín og reyndist mér einstaklega vel. Ég var ekki fær um nokkurn skapaðan hlut og því kom það í hlut pabba Marons að færa honum fregnirnar af andláti systur hans. Maron hafði verið henni einstak- lega góður bróðir og hann og vinir hans leyfðu þessari litlu skottu oft að koma inn í herbergið til sín og vera með þeim.“ Dýrmætt litakrot í gluggakistu Lífsviðhorf Helgu Maríu hefur breyst mikið frá þessum sorgardegi. Það sem henni þótti áður skipta miklu skiptir nú engu. „Í gluggakistunni í stofunni heima er litað krot eftir Sigrúnu Maren. Einhvern tíma hefði ég far- ið með Ajax-brúsann að þvo litina burt, en þegar þessi gluggakista verður máluð verður sett teip í kringum krotið. Það fær að standa sem minning um litla, orkumikla stelpu.“ Herbergið hennar Sigrúnar Marenar stendur svo til óhreyft. Helga María segist yfirleitt hafa hurðina opna í hálfa gátt. „Einhvern veginn finnst mér hún nærri mér þegar hlutirnir hennar eru í kringum mig. Þótt ég viti að sálin hennar er á himni og hvíli ekki í kirkjugarðinum, sæki ég engu að síður mikið að leiðinu hennar. Það er hennar garður og ég legg mikið upp úr að hafa minn- ingarreitinn hennar fallegan. Ég bý í fimm mínútna göngufæri frá graf- reit hennar og um jól og áramót í fyrra fór ég margar ferðir á dag að leiðinu hennar.“ Margir erfiðir dagar eru að baki. Afmælisdagurinn sem Sigrún Mar- en hefði orðið þriggja ára, 19. sept- ember; aðventan, jólin, gamlárs- kvöld og dánardagurinn, 5. maí. „Á dánardeginum fannst mér hringurinn vera að lokast. Ég hafði með hjálp fjölskyldu og góðra vina komist í gegnum heilt ár án hennar og þótt hver dagur sé erfiður geng- ur mér stöðugt betur að læra að lifa með sársaukanum. Ég komst í gegnum þriggja ára afmælisdag- inn hennar, jólin og áramótin. Hún var mikil veislustelpa og ég hugs- aði mikið um hvernig hún hefði haldið upp á þriggja ára afmælið sitt. Og nú er fjögurra ára fæðing- ardagurinn að nálgast. Hins vegar má lítið út af bregða til að sorgin hellist yfir mig, eins og nýlega þeg- ar ég var að fletta dagbók frá í fyrra og sá að ég hafði skrifað: Kl. 16.00 Sigrún og Maron í klippingu... Þá er eins og fótunum sé kippt und- an mér.“ „Ef ég hefði...“ Tilhugsunin um að jarða barn- ið sitt reynist hverju foreldri óbæri- leg. Helga María segist hafa hugsað með sér þegar hún frétti af andláti barna að þetta væri eitthvað sem hún gæti aldrei afborið. „En svo stendur maður í þess- um sporum – og lifir af. Enda á ég frábæran son sem ég lifi fyrir. Það var aldrei í myndinni að leggjast undir feld og hætta að taka þátt í lífinu. Mér finnst ég líka heiðra minningu dóttur minnar betur með því að vera virkur þátttakandi í lífinu, en það er ekki alltaf auð- velt. Lengi eftir andlát hennar gat ég ekki ímyndað mér að ég gæti nokkru sinni aftur lifað eðlilegu lífi, hvað þá orðið hamingjusöm. Fyrsta vikan eftir andlát Sigrúnar er í móðu í minningunni, en eftir jarðarförina fór ég að vakna smátt og smátt aftur. Það var friður yfir litlu stúlkunni. Hún hafði oft verið lengi að vakna, en þegar mamma hennar Helga María Hallgríms- dóttir, kennari og félagsráðgjafi, gerði sér grein fyrir að of mikill friður hvíldi yfir henni til að allt gæti verið með felldu hrundi heimur hennar. Mesti ótti foreldr- is var orðinn að veruleika. Sigrún Maren var látin. Hún var tveggja og hálfs árs. martröðmóður Framhald á næstu síðu Stolt mamma, stoltur bróðir Það var stór dagur hjá fjölskyldunni 19. septem- ber árið 2003. Þá kom sigrún maren í heiminn og maron stóri bróðir reyndist henni góður frá fyrstu stundu. Síðasta myndin Helga maría og sigrún maren á þorrablóti í smáraskóla, þar sem Helga maría starfar. DV MynD StEfán
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.