Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.2007, Blaðsíða 52

Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.2007, Blaðsíða 52
Elder Scrolls IV: Oblivion er svo ógeðslega feitur leikur, að menn fá hreinlega illt í bakið ef þeir spila hann of lengi. Sjálfur er ég mikill aðdáandi hlutverkaleikja og hef ekki verið með sjálfum mér síðan ég kláraði Diablo 2. Elder Scrolls býður upp á alveg risastóran heim, þar sem leikmenn geta nokkurn veginn hegðað sér eins og þeim sýnist. Auðvitað er einhver útpæld og svaðaleg saga í gangi, um myrk öfl sem ásækjast völdin í landinu og leikmenn verða að stöðva, en þó er hægt að dunda sér við virkilega margt annað í leiðinni. Hægt er að velja á milli tíu kynstofna (races) og fjölda hlutverka (classes). Svo þeysir maður um landið á hesti, berst við hina ýmsu vætti, leysir verkefni, brýst inn í hús, starfar sem þjófur, bardagamaður, launmorðingi og margt fleira. Það er langt síðan ég sá jafnstóran heim og er í Oblivion, en miðað við kynni mín af honum hingað til er hann ekki ósvipaður þeim heimi sem við búum í, semí. Oblivion er einhver svakalegasti hlutverkaleikur sem ég hef spilað, já alveg síðan Diablo 2. Auðvitað eru RPG-leikir ekkert fyrir alla, en þeir menn sem eyddu öllum helgum í níunda og tíunda bekk að spila Warhammer og AD&D, eru mjög sáttir. Leikurinn hefur fengið rosalega dóma, næstum fullt hús hjá öllum miðlum. Þó er leikurinn alveg rosalega langur og þá meina ég alveg rosalega. Ég spilaði hann á Playstation 3, og er illa sáttur á því, sérstaklega þar sem ég sé fyrir mér ágætt haust, að þeysa um sléttuna á hestinum. Dóri DNA dóri dna segir: & U m s j ó n : D ó r i D N A N e t f a n g : d o r i @ d v . i s föstudagur 7. september 200754 Helgarblað DV leikirtölvu stuntman Ignition – playstation 2 Worms Open Warfare 2 – psp Nds rogue galaxy – ps2 Heavenly sword – ps3 darkness – Xbox 360/ ps3 Kíktu á þessa Wii rokselst Samkvæmt vefsíðum sem sérhæfa sig í nýjustu sölutölum helstu leikjavélanna vex Nintendo Wii heldur betur ásmegin. Samkvæmt nýjustu sölutölum hefur Wii selst í yfir 10,5 milljónum eintaka sem er svipað eða meira en Xbox 360. Það verður að teljast glæstur árangur þar sem Wii hefur verið mun skemur á markaði. Þá hefur Nintendo DS selst í rúmlega helmingi fleiri eintökum en PSP á heimsvísu. PS3 er hægt og bítandi að rétta úr kútnum eftir lélega byrjun og hefur vélin nú selst í um 4,5 milljón eintökum. stranglehold mættur Þrátt fyrir miklar seinkanir er leikurinnn stranglehold loksins kominn út. Leikurinn er aðeins kominn á pC núna, en seinna í mánuðinum munu ps3- og Xbox-útgáfur leiksins koma út. Það er hasarmynda- leikstjórinn John Woo sem er á bak við leikinn, sem er sagður alveg rosalegur. menn fara í hlutverk lögreglu- mannsins tequila Yueng Long, sem þarf að takast á við illskeytta og hættulega glæpamenn. haze fyrir Ps3 Tölvuleikjaframleiðandinn Ubisoft hefur ákveðið að leikurinn Haze muni aðeins koma út á PS3, en ekki á PC og Xbox 360 eins og áður var tilkynnt. Haze er skotleikur sem gerist í framtíðinni en leikurinn ku vera stórsmíð. Haze kemur út í nóvember aðeins á PS3 og ekki er búist við því að hann komi út á aðrar leikjatölvur, Xbox-mönnum til mikillar gremju. Nú er það alveg komið á hreint að einhver magnaðasti fjölspilunarleik- ur sögunnar er á leiðinni. Um er að ræða Enemy Territory: Quake Wars frá framleiðendunum id Software og Activision. Leikurinn er í sama anda og Wolfenstein: Enemy Territory, nema að þessu sinni er forsagan sú sama og í Quake tvö og fjögur. Sem sagt, herir Global Defense Force og hinir nett ógeðslegu og stórhættulegu Strogg mætast í fyrstu persónu skot- leik, þar sem barist er um tilvist jarð- arinnar. Leikurinn gerist árið 2065 og hafa leikmenn fjölbreytt val um hvernig persónu þeir spila. Þó svo að helsti styrkleiki leiksins sé óviðjafnan- leg netspilun hans, er þó einnig hægt að spila hann gegn tölvunni. Hins veg- ar þegar menn spila yfir netið þurfa þeir að hafa öll sín mál á hreinu, því samvinna með öðrum leikmönnum, sem gætu þess vegna verið í öllum heimsins hornum, er bráðnauðsyn- leg. Leikmenn geta ekið um svæðin á ógnarlegum farartækjum og hafa úr fjölda vopna að velja. Nú þegar hefur leikurinn vakið mikla athygli á með- al áhrifamanna innan tölvuleikja- heimsins, en hann hefur unnið til 15 viðurkenninga úti um allan heim og er af mörgum sagður leikur ársins 2007, þrátt fyrir að gripurinn komi ekki út fyrr en 28. september. „Vinnan og ástríðan sem okkar menn hafa sett í leikinn ásamt góðum ráðum sem við höfum fengið frá id Software, hefur skilað sér í leik sem við erum einstak- lega stolt af. Við getum hreinlega ekki beðið eftir því að aðdáendur leiksins vaði af stað um allan heim og berj- ist um heiður jarðarinnar,“ segir Paul Wedgewood, eigandi Splash Damage, sem sá um að hanna leikinn. Leikur- inn verður fyrst um sinn aðeins fáan- legur á PC, en hann er einnig í fram- leiðslu fyrir Xbox 360 og Playstation 3. Ekkert hefur enn verið gefið upp um hvenær leikurinn verður gefinn út fyr- ir leikjatölvurnar tvær. Elder Scrolls IV: Oblivion RPG leikur. Bethesda PS3/Xbox 360 / PC TölvuleiKur H H H H H Ertu að kynda í mér Eða? Oblivion ekkert að þessu. Leikurinn Enemy Territory: Quake Wars kemur út í lok mánað- arins. Leikurinn er að mestu spilaður á netinu og er sagður munu setja ný viðmið í heimi netleikja. Þrátt fyrir að leikurinn sé enn ekki kominn út er honum þegar spáð titlinum leikur ársins 2007. leiKjaTölvur Ótrúleg grafík Leikurinn er sagður munu gera allt vitlaust. Enemy Territory: Quake Wars Væntanlegur í lok mánaðarins. Örlög heimsins í þínum höndum Leikurinn er spilaður að mestu á netinu þar sem samherjar verða að hjálpast að. Bylting Í heimi netsPilunar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.