Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.2007, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.2007, Blaðsíða 18
Sennilega hefur enginn maður eða kona Íslandssögunnar borið betra og meira viðeig- andi nafn en majórinn okkar í Írak, nafn Herdísar Sigurgrímsdóttur ber þess öll merki að foreldrar henn- ar hafi séð fram í tímann. Af- skaplega hefur tekist vel til hjá þeim. Annars verð- ur Axlar-Björn að viðurkenna að hann er dáldið undrandi, jafnvel dálítið skemmt, sé tillit tekið til hans blóð- ugu fortíðar. Íslensk stjórnvöld fóru í allsherjaruppgjör við innrásina í Írak og stuðning sinn við hana. Þetta mikla uppgjör leiddi til þess að einn upplýsingafulltrúi var kall- aður heim... hálfum mánuði fyrr en til stóð. Auðvitað má ekki gera lítið úr stefnumótun stjórnmála-manna. Samfylkingin hefur bar- ist gegn stríðsrekstri í Írak hin síðari ár og ítrekað talað fyrir því að taka Ísland af lista hinna staðföstu ríkja sem Davíð Oddsson kallaði, hinna viljugu eins og George W. Bush kallaði þær. Því gafst tækifærið þegar Ingibjörg Sólrún Gísladóttir varð ut- anríkisráðherra en ekki fjármálaráðherra eins og hún vildi verða. Samfylk- ingin kallaði heim eina íslenska friðargæsluliðann sem eftir var í Írak. Áður voru sprengju- leitarmennirnir komnir heim. Eftir að þeir fundu eiturefna- vopnin sem Halldór Ásgrímsson sagði að væri heimsviðburður. En reyndist svo bara vera illa farnar, gamaldags sprengjur. Reyndar kætir það Axlar-Björn að ekki skuli einhugur í ríkisstjórn. Alla vega er Geir H. Haarde ósáttur. Ekki þó jafnmikið og útlenski herforinginn sem kom hingað daginn eftir að Ingibjörg Sólrún ákvað að kalla Herdísi heim og grét það mikið. Fer þá vart á milli mála að Íslendingar hafa allavega sinnt sínu hlutverki vel fyrst háttsettir menn eru nærri því að brotna niður vegna brotthvarfs litla Íslands. Nú er ljóst að meta verður þörfina á framlagi Íslands í hinum stóra heimi. Nú hafa auðvitað verið Íslendingar við störf á Sri Lanka. Þorfinnur Ómarsson og Aðalbjörn Sigurðsson til dæmis. Hmm. Merkilegt hvað það eru margir gamlir fjölmiðlamenn í þessum bransa. Einhvern veginn hafði Axlar-Birni ekki dottið í hug að blaðamennskan væri besti undirbúningurinn fyrir friðargæslu. Skrýtið. föstudagur 7. september 200718 Umræða DV Útgáfufélag: Dagblaðið-Vísir útgáfufélag ehf. Stjórnarformaður: Hreinn loftsson framkVæmDaStjóri: Elín ragnarsdóttir ritStjórar: reynir traustason og Sigurjón m. Egilsson ábm. fulltrÚi ritStjóra: janus Sigurjónsson fréttaStjóri: Brynjólfur Þór guðmundsson aðStoðarritStjóri: Sigríður Dögg auðunsdóttir auglýSingaStjóri: Valdimar Birgisson Umbrot: dV. Prentvinnsla: prentsmiðja morgunblaðsins. Dreifing: Árvakur. dV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. aðalnúmer 512 7000, ritstjórn 512 7010, Áskriftarsími 512 7080, auglýsingar 512 70 40. OKKAR EIGIN HERDÍS AXLAR-BJÖRN REYNIR TRAUSTASON RITSTjóRI SkRIfAR. Skuldarar eru galeiðuþrælar nútímans og þeir eru hundeltir... Á Íslandi hafa bankar og aðrir þeir sem standa í innheimtu og lánveitingum haft skotleyfi á þá sem ekki geta staðið að fullu við skuldbindingar sínar. Bankarnir ganga fram af fullkominni hörku og ræna fólk um hábjartan daginn með því að taka fit-kostnað og beita þeim álögum sem þeim sýnist. Stór hluti almennings er orðinn að þrælum bankanna og þarf að lúta þeim álögum sem bankastjórum sýnist. Auðvitað er áherslan mismunandi eftir því hvaða lánastofnun er um að ræða og sumir bankastjórar hafa skárra hjartalag en aðrir. En almennt séð þykir sjálfsagt að blóðmjólka viðskiptavini í skjóli þess að þeir eigi ekki vörn í lögum. Skuldarar eru galeiðuþrælar nútímans og þeir eru hundeltir með öllum tiltækum ráðum. Sjaldnast er haft að leiðarljósi að með því að létta skuldaranum lífið megi hugsanlega bjarga kröfum. Það er innbyggt í bankakerfið að þyngja vexti eftir því sem fólk skuldar meira. Það þýðir að vítahringur myndast og gjaldþrot með tilheyrandi harmleik verður oftar en ekki staðreynd. Bankanum er venjulega sama þótt ein lítil kennitala fái á sig stimpil sem ótrúverðug. Vandinn er sá að sífellt stærri hluti þjóðarinnar er skuldugur og fastur í gildrunni. Stjórnmálamenn hafa fram að þessu ekki haft skilning á því að lög og reglugerðir þurfi til að verja skuldara fyrir blóðhundum bankakerfisins. En nú hafa runnið upp nýir tímar með Björgvin G. Sigurðssyni viðskiptaráðherra. Hann er með í burðarliðnum frumvarp og reglugerðir sem eiga að verja almenning gegn innheimtuokri og niðurlægingu þegar skuldir vaxa þeim yfir höfuð. Gangi málið fram munu skuldir einstaklinga fyrnast á fjórum árum. Björgvin skilur öðrum fremur að það eru hagsmunir allra að leysa fólk úr skuldakreppu með mildilegri hætti en þeim að ganga á milli bols og höfuðs þess. Ráðherrann skilur líka að það er óviðunandi að fólk sé hundelt áratugum saman með kröfur sem ættu fyrir löngu að vera fyrndar. Og hann skilur að fit-kostnaður bankanna er sjálftaka á fé almennings. Þessu mun hann breyta. Það er ástæða til að óska þjóðinni til hamingju með að hafa fengið viðskiptaráðherra sem skilur að hans hlutverk er ekki það eitt að klippa á borða. Björgvin er maður fólksins. DómstóLL gÖtuNNAR Þarf að bæta samgöngur í borginni? „Þetta er algjör bilun. Ég hef ekki keyrt á íslandi í mörg ár og mun ekki treysta mér í umferðina á næstunni. svo er líka mikið um um ókurteisi í umferðinni.“ Ívar Ívanovich, 67 ára, lífeyrisþegi „Það þarf klárlega að bæta samgöngur í borginni. Það vantar langtímamarkmið í gatnakerfið.“ Sigríður Sigurbjörnsdóttir, 59 ára, bókari tvímannalaust! Það vantar einhverjar stórtækar framkvæmdir til dæmis eins og undirgöng.“ Helgi Sigurbjörnsson, 44 ára, pípari „samgöngur borgarinnar eru virkilega þungar og það vantar gífurlega mikið af bílastæðum. fyrir okkur atvinnubíl- stjórana er hræðilegt að ferðast með útlendinga um miðbæinn. Það er hvergi hægt að stoppa og bíða til dæmis á meðan fólk skreppur inn í búðir og annað slíkt. Á nýju miðbæjar- hótelunum vantar svo alla aðstöðu fyrir leigubíla sem er mjög slæmt mál“ G. Sigurður Jóhannesson, 49 ára, atvinnubílstjóri sANDkoRN n Í Háskólanum á Bifröst hefur heldur róast eftir átökin um Runólf Ágústsson rektor sem hætti störf- um. En það ríkir þó ekki friðsemdin ein und- ir stjórn Ágústar Einarsson- ar, núver- andi rekt- ors. Hermt er að Bryndísi Hlöðversdóttur, fyrrverandi þingmanni og aðstoðarrekt- or, þyki sem Herdís Þorgeirs- dóttir prófessor, sem býr yfir afburðaþekkingu á lögum og fjölmiðlum, skyggi nokkuð á sig. Núningur mun vera vegna þessa. n Mikið er rætt um komandi forsetakosningar og hvort Ól- afur Ragnar Grímsson, núver- andi forseti Íslands, gefi kost á sér áfram í vor. Ólafur Ragnar hefur verið lítt áberandi nema þegar viðskiptajöfrar skúbba í útlöndum og þykir ýmis- legt benda til þess að hann sé þreyttur á starfinu. Þegar er farið að nefna til sögu mögu- lega kandídata til þessa æðsta embættis þjóðarinnar. Þar má nefna Þorgerði Katrínu Gunn- arsdóttur, varaformann Sjálf- stæðisflokksins, sem einhverjir halda fram að sé ekki fráhverf framboði. Þá er horft til Sig- ríðar Dúnu Kristmundsdóttur sendiherra sem forsetaefnis. En svo kann að fara að Ólafur kjósi að sitja áfram og þá eru hugmyndirnar sjálfdauðar. En það þykir víst að stemning sé til þess að fá konu á Bessa- staði. n Í nýju hefti Mannlífs eru valdir bestu og verstu blogg- ararnir. Það kemur fáum á óvart að sá dularfulli Mengela trónir á toppnum yfir þá bestu. Hernaðarandstæðingurinn Stefán Pálsson er í öðru sæti yfir þá bestu og síðan kemur Jónas Kristjánsson, fyrrver- andi ritstjóri. Versti bloggarinn er aftur á móti Akureyringur- inn Stefán Friðrik Stefánsson. Á hæla hans kemur sjálf Ellý Ármanns sem reyndar er búin að læsa ljósbláu bloggi sínu. n Margir velta fyrir sér stöðu Katrínar Júlíusdóttur, al- þingismanns Samfylkingar, sem var sniðgengin við út- hlutun ráðherrastóls þegar Þórunn Sveinbjarn- ardóttir var tekin neð- an við hana af lista og gerð að umhverfis- ráðherra. Á miðju kjör- tímabili fær Samfylking for- seta Alþingis og þá þykir allt eins líklegt að Jóhanna Sig- urðardóttir félagsmálaráð- herra þiggi það embætti. Ef Katrín verður öflug á þing- inu í vetur mun Ingibjörg Sólrún Gísladóttir ekki geta gengið framhjá henni við úthlutun ráðherrastóls Jó- hönnu. Blóðhundar bankanna LeiðARi Skuldarar eru galeiðuþrælar nútímans og þeir eru hundeltir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.