Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.2007, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.2007, Blaðsíða 8
föstudagur 7. september 20078 Fréttir DV Þorgerður Elíasdóttir ætlar að kæra Úlfar Nathanaelsson fyrir fjársvik. Úlfar stefndi Þorgerði vegna greiðslu á tíu ára gamalli skuld sem hún hafði þegar greitt. Málið var fellt niður eftir fyrirtöku hjá Sýslumanninum í Reykjavík í gær. Í DV í vikunni kom fram að Björgvin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra ætlaði að breyta lög- um um fyrningu skulda til þess að koma í veg fyrir draugarukkanir eins og Þorgerður lenti í. KÆRIR FJÁRSVIK ÚLFARS Mál Úlfars Nathanalessonar sem keypti þrotabú bókaútgáfu og stefndi Þorgerði Elíasdóttur fyrir löngu greidda skuld, var fellt niður eftir fyr- irtöku hjá Sýslumanninum í Reykja- vík í gær. Úlfar hóf að innheimta skuldir úr þrotabúinu með miklum innheimtukostnaði meira en ára- tug eftir að sumar þeirra voru greiddar. Hvorki Úlfar né full- trúar hans mættu til fyrirtök- unnar. Úlfari var skipaður lög- maður til þess að sitja fyrir hans hönd í fyrirtökunni. Þorgerður segir að fulltrúi Úlfars hafi ráð- lagt henni að kæra hann fyrir fjársvik. „Þegar hann vissi um hvað málið snérist og hver stefnandinn væri henti hann pappírunum á borðið og sagði mér að kæra manninn fyrir fjársvik.“ Þorgerður ætlar á næstu dög- um að leita til lögmanns með það fyrir augum að kæra Úlfar fyrir fjársvik. „Hefði ég ekki fundið kvittunina, þá hefði ég þurft að gefa þessum manni peningana mína,“ segir hún. Engin mistök Eins og sagt var frá í DV á miðvikudag var Þorgerður ein þeirra sem nýlega var stefnt af fyrirtæk- inu Kanó ehf., sem er í eigu Úlfars. Í stefn- unni er farið fram á greiðslu vegna við- skipta sem áttu sér stað árið 1988. Höfuðstóll kröfunnar var sautján þúsund krónur en Þor- gerður greiddi sex- tíu þúsund krónur snemma á tíunda ára- tug síðustu aldar til að sleppa frá enn frekari innheimtuaðgerðum og meiri kostnaði. Þrátt fyrir að Þorgerður hefði greitt kröfuna fyrir tæpum tveimur áratugum tók Úlfar aftur til við að rukka Þorgerði. Þá hafði kraf- an hækk- að í sex- tíu og tvö þús- und krónur. Það var Þorgerði til happs að hún geymdi kvittun fyrir greiðsl- unni á sínum tíma og gat sýnt fram á að hafa greitt. Úlfar Nathanaelsson sagði við DV að málinu væri lokið af sinni hálfu og segir mistök hafa valdið því að Þor- gerði var stefnt aftur. Þorgerður hafn- ar því algjörlega. „Það hringdi í mig maður sem las greinina í DV á mið- vikudaginn og hafði lent í Úlfari eins og ég. Hann greiddi ekki kröfuna og Úlfar féllst á að falla frá kröfunni ef honum yrði ekki stefnt.“ Úlfar keypti þrotabú í kringum 1990 og tók til við að rukka fólk um gamlar kröfur sem höfðu ýmist ekki verið greiddar eða jafnvel ekki rukk- aðar. Þá töldu margir sig hafa greitt kröfurnar en þar sem þeir höfðu ekki kvittanir undir höndum gátu þeir ekki sannað það og þurftu að borga aftur. Ætlar að koma í veg fyrir draugakröfur Björgvin G. Sigurðsson viðskipta- ráðherra ætlar að breyta lögum um fyrningu skulda til þess að koma í veg fyrir að fólk á borð við Þor- gerði og fleiri geti lent í því að ára- tuga gamlar kröfur dúkki skyndilega upp. Björgvin hefur ákveðið að skipa starfshóp sem á að gera úttekt á lög- um sem varða viðskipti neytenda og banka. Í DV í gær sagði Björgvin það vera mikið réttlætismál. „Það þarf að girða fyrir þann möguleika að venjulegt og varnarlaust fólk sé hundelt fyrir kröfur sem annað hvort eru löngu greiddar eða ættu að vera fyrndar,“ sagði hann. ValGEir ÖrN raGNarSSoN blaðamaður skrifar: valgeir@dv.is miðvikudagur 5. september 20072 Fréttir DV InnlendarFréttIr ritstjorn@dv.is Grímseyjarferja mun víst sigla Grímseyjarferja kemur til með að uppfylla reglugerðir Evrópu- sambandsins og kröfur um svo- kallaðan lekastöðugleika. Þetta segir í yfirlýsingu sem Vegagerð- in sendi frá sér í gær. Fulltrúar vinstri grænna í fjárlaganefnd Al- þingis hafa sagt óvíst hvort skipið kæmist á flot. Vegagerðin vitnar í orð Einars Hermannssonar skipaverkfræð- ings, sem sagði í skýrslu að ferjan uppfyllti þessi skilyrði áður en hún var keypt. Einnig er greint frá því að Ólafur Briem hjá Siglinga- stofnun hafi ekki dregið stöðug- leika ferjunnar í efa. 17 ölvaðir ökumenn Lögreglan á höfuðborgar- svæðinu stöðvaði sautján öku- menn fyrir ölvunarakstur um helgina. Einn þeirra var stöðvað- ur á föstudag, fjórir á laugardag en flestir voru stöðvaðir á sunnu- daginn eða tólf ökumenn. Flestir voru teknir í Reykjavík eða ellefu, fimm voru stöðvaðir í Hafnarfirði og einn í Garðabæ. Karlar voru í miklum meirihluta eins og áður en í þetta skiptið voru þetta sex- tán karlar á aldrinum 18 til 48 ára og ein kona á fertugsaldri. Á sama tímabili voru tveir karlar teknir fyrir að aka undir áhrifum fíkniefna í Reykjavík. Annar þeirra er um þrítugt en hinn er á fimmtugsaldri. Flestir gefa í við skóla Meira en helmingur þeirra sem keyrðu framhjá Ingunnar- skóla í Grafarholti í gær keyrði hraðar en leyfilegt er. Lögreglan á höfuðborg- arsvæðinu sinnti eftirliti með hraða ökutækja í Grafarholti í fyrradag. Bifreiðar sem óku framhjá Ingunnarskóla voru myndaðar og gerðust 39 öku- menn brotlegir á einni klukku- stund. Sú niðurstaða sýnir að meirihluti ökumanna ók of hratt nærri skólanum, því að á því tímabili sem mælingar stóðu yfir óku 70 bifreiðar framhjá honum. Sá sem hraðast ók mældist á ríf- lega 60 kílómetra hraða en leyfi- legur hraði nærri skólasvæði er 30 kílómetrar. Fyrirtæki líklega kærð fyrir lögbrot „Til stendur að Arnarfell ráði beint til sín alla starfsmennina. Fresturinn er til hádegis. Þetta er ákveðin lausn á vandanum en við viljum algjörlega komast til botns í þeim lögbrotum sem hafa átt sér stað,“ segir Gissur Pét- ursson, forstjóri Vinnumálstofnunar. Tugir erlendra starfsmanna fyr- irtækisins Hunnebeck Polska verða skráðir sem starfsmenn Arnarfells og frestur til þess hefur verið gef- inn til hádegis í dag. Á meðan verð- ur ekki gripið til frekari viðurlaga og starfsemin ekki stöðvuð. Að loknum skráningunum bíður það verkefni Vinnumálastofnunar að kafa ofan í hvort launagreiðslur fyrirtækisins hafi verið með ólöglegum hætti fram til þessa. Eftir stendur að fyrirtæk- ið GT verktakar á eftir að gera hreint fyrir sínum dyrum og er það á síðasta séns hjá Vinnumálastofnun. Aðspurður segir Gissur skrán- ingarnar ákveðna lausn fyrir starfs- mennina sjálfa og mikilvægt sé að fá launagreiðslur fyrirtækjanna alfarið á hreint. Hann segir öll samskipti fara milli lögmanna og útilokar ekki að fyrirtækin verði kærð fyrir ólögmæta starfsemi hingað til. „Fyrirtækið er á síðustu þolinmæðismínútunum og þeim er það alfarið ljóst. Samskipt- in fara alfarið í gegnum lögmenn á þessu stigi. Þó svo að við fáum bæði fyrirtækin til að hætta að brjóta lög- in þýðir það ekki endilega að þau séu laus allra mála,“ segir Gissur. trausti@dv.is Lokafrestur tvö fyrirtæki eru á síðasta séns hjá vinnumálastofnun og öll samskipti fara fram milli lögmanna. Líklegt er að þau verði bæði kærð fyrir ólögmæta starfsemi fram til þessa. „Gamlir draugar vakna á ný. Það er með ólíkindum að þurfa að ganga aft- ur í gegnum þessa vitleysu og maður- inn er greinilega að fara annan hring. Hann stundar hreinar fjárkúganir og það er á hreinu að ég ætla að fara alla leið með þetta mál og kæra hann,“ segir Þorgerður Elíasdóttir, húsmóðir í Grindavík. Lögmaðurinn Úlfar Nathanaels- son hefur óskað liðsinnis lögfræðings og stefnt einstaklingum fyrir ógreidd- ar kröfur sem ná tæpa tvo áratugi aftur í tímann. Þorgerður er ein þeirra sem nýlega fengu stefnu frá fyrirtæki Úlf- ars, Kanó ehf., þar sem farið er fram á greiðslu vegna viðskipta sem áttu sér stað árið 1988. Hún hafði þá feng- ið bækur sem hún segir að ekki hafi verið gengið eftir greiðslu með. Þrem- ur árum síðar birtist Úlfar skyndilega, þar sem hann hafði keypt þrotabú út- gáfunnar, og stefndi þeim sem keypt höfðu bækur en ekki greitt fyrir, til að greiða fyrir bækurnar með tilheyr- andi vöxtum og kostnaði. Á endan- um greiddi Þorgerður kröfuna og fékk kvittun gegn greiðslunni frá fyrrver- andi lögfræðingi Úlfars. Engu að síð- ur barst henni aftur nýverið stefna frá Úlfari sem segist aldrei hafa fengið peningana sína. Fer annan hring Höfuðstóll kröfunnar á hendur Þorgerði var 17 þúsund krónur en þegar hún greiddi hana með vöxtum og kostnaði var upphæðin komin í rúmar 60 þúsund krónur. Hún hefur í dag kvittun í höndunum fyrir þeirri greiðslu og er því verulega undrandi yfir því að Úlfar stígi fram á ný. „Málið kláraðist á sínum tíma, að ég hélt. Um leið og ég greiddi kröfuna hélt ég auð- vitað að málið væri endanlega dautt. Ég held að hann sé að fara annan hring núna með það fyrir augum að fólk sé líklega búið að henda kvittun- um sínum. Í fyrstu fann ég ekki kvitt- unina en sem betur fer fann ég hana svo. Ég er búin að borga þetta og það kemur ekki til greina að ganga í gegn- um þessa vitleysu aftur,“ segir Þor- gerður. Spurður um nýlegar stefnur segist Úlfur vera að tryggja innheimtu eldri skulda áður en þær fyrnist. Hann seg- ist ekki sjá neitt athugavert við inn- heimtuna. „Mér finnst eðlilegt að innheimta þær kröfur sem ég á úti- standandi, sama hversu gamlar þær eru, á meðan þær eru lögvarðar. Sjálf- ur fékk ég líklega aldrei þessa peninga sem hún greiddi en það er ekki henn- ar mál. Ég er að endurupptaka þessi mál áður en þau fyrnast,“ segir Úlfar. Alveg miður sín Þegar haft var samband við nú- verandi lögmann Úlfars fengust þau svör að hann hafi ákveðið að hafa ekki frekari afskipti af málefnum Úlf- ars. Þorgerður er hins vegar sannfærð um að Úlfar sé ekki hættur. „Um leið og ég sagðist aldrei borga þetta aftur varð Úlfar fokreiður og strunsaði út. Í kjölfarið fæ ég senda ítrekun frá sýslu- manni út af kröfunni og hann ætlar greinilega að halda áfram með mál- ið,“ segir Þorgerður. Aðspurður telur Úlfar aftur á móti málinu sé lokið af hanshálfu og hafn- ar því alfarið að hafa brugðist illa við. Hann segir þetta mistök og er miður sín yfir því að stefnan hafi verið send út. „Það voru algjör mistök hjá mér að stefna henni aftur. Svona lagað getur alltaf gerst og mér þykir það ákaflega miður. Það er ekki flóknara en svo,“ segir Úlfar. Þorg rður er verulega ósátt með framkomu Úlfars í málinu frá upp- hafi. Hún er ósátt með að hann hafi birst með gamla kröfu og skellt henni fram með bullandi vöxtum. „Mér finnst mikilvægt að fólk standi gegn honum því hann er að stefna fleir- um og maður veit aldrei hvort hann sé með fleira óhreint í pokahorninu. Málið er síður en svo dautt af minni hálfu því mér finnst hann vera að brjóta á mér.“ Þorgerði Elíasdóttur Úlfar Nathana- elsson INNHEIMTIR ÁRATUGA GAMLAR KRÖFUR TrAusTi hAFsTEiNssoN blaðamaður skrifar: trausti@dv.is „ég held að hann sé að fara annan hring núna með það fyrir augum að fólk sé búið að henda kvittunum sínum.“ ofsótt af lögfræðingi Þorgerður er undrandi yfir framkomu Úlfars og ætlar að leita réttar síns. sjálfur iðrast hann mjög að hafa stefnt henni og ætlar að láta málið niður falla. Ósáttur við rukkun „Farþegar okkar gátu aðeins nýtt sér þetta öryggishlið að tak- mörkuðu leyti þar sem starfsemin var miðuð við brottfarir véla Icelandair,“ segir Matthí- as Imsland, framkvæmda- stjóri Iceland Express. Búið er að loka hliðinu og er verið að taka saman kostnaðinn. Samkvæmt upplýsingum frá Flugmálastjórn Keflavíkurflug- vallar eiga Icelandair og Iceland Express að borga brúsann en Matthías er ekki sáttur. „Þessi til- raun fór af stað með Icelandair. Við fréttum af þessu síðar og óskuðum eftir því að vera með. Það var aldrei sagt að við ættum að borga.“ fimmtudagur 6. september 2007 4 Fréttir DVInnlendarFréttIrritstjorn@dv.is Nauðgari rannsakaður Jóns Péturssonar Matsmenn verða fengnir til að meta sakhæfi hins margdæmda nauðgara Jóns Péturssonar. Þetta samþykkti Héraðsdómur Reykja-víkur í gærmorgun. Jón var fundinn sekur um hrottafengna nauðgun á tveimur konum og fékk hann fimm ára fangelsisdóm fyrir. Sá dómur var kveðinn upp í júní á þessu ári. Nokkrum mánuðum áður, í okt-óber 2006, hafði Jón hlotið annan fimm ára dóm í héraðsdómi vegna nauðgunar og misþyrmingar á fyrr-verandi sambýliskonu sinni. Sá dómur var staðfestur af Hæstarétti í apríl. Í seinni dómnum sem kveð-inn var upp í júní segir að brot Jóns hafi verið sérlega hrottafengið en hann notaði meðal annars búrhníf og kjötöxi í ofbeldinu. Jón bar því við að slys sem hann varð fyrir í Egyptalandi fyrir átta árum hafi valdið skaða á framheila. Héraðsdómur Reykjavíkur sam-þykkti að rannsakað yrði sérstaklega í taugasálfræðilegu mati hvort hugs-anlegur framheilaskaði hefði getað valdið þessari hömlulausu hegðun hjá Jóni. Jón lenti í slysi í nóvem-ber árið 1999 þegar hann datt fram af hestvagni. Fallið hafði þær af-leiðingar að mænuvökvi lak úr nefi hans. Þrjár tölvuskannamyndir voru teknar og kom í ljós á fyrstu tveim-ur þeirra að loft hefði komist í heila Jóns. Á síðustu myndinni var þó allt orðið eðlilegt. Jón bar því við fyrir dómi að hegðun hans væri afleiðing af slysinu. Í beiðninni sem Sveinn Andri Sveinsson, lögmaður Jóns, lagði fram segir að slysið hefði getað valdið hömluleysi þannig að Jón hafi ekki verið sjálfráður gerða sinna og því ósakhæfur. Þegar Jón hóf afplánun á Litla-Hrauni var hann í meðferð hjá geð-lækninum John Donne De Niet. Í bréfi sem John skrifaði 13. apríl kom fram að Jón hefði einkenni framheilaskaða. Til að greina slíkan skaða þarf sérstakt virknirit og taugasálfræðilegt mat. Fag-leg rök De Niets mæltu því með að ít-arlegri rannsókn yrði gerð á Jóni. Sak-sóknari vísaði þessum rökum á bug þar sem hann benti á að bréfið hefði þegar legið fyrir. Hann vísaði einnig til rannsóknar sem Tómas Zoëga gerði en þar kom fram að Jón væri hald-inn langvinnu alkóhólisma-fíkniheil-kenni. einar@dv.is Nauðgari Jón pétursson lenti í slysi fyrir átta árum. Hann ber því við að skaðinn sem hann varð fyrir hafi valdið breytingu á hegðun sinni. Heitir bara Landspítali Nafnið Landspítali - háskóla-sjúkrahús heyrir sögunni til vegna nýrra laga sem tóku gildi 1. september. Heitir hann núna Landspítali en skammstöfun hans stendur enn óbreytt, LSH. Frá því að sjúkrahúsin samein-uðust í Reykjavík árið 2000 hef r opinbert heiti sjúkrahússins ver-ið Landspítali - háskólasjúkra-hús. Hér eftir verður heitið hins vegar bara Landspítali. Björgvin G. Sigurðsson VIÐSKIPTARÁÐHERRA Í STRÍÐ VIÐ RUKKARA „Það þarf að girða fyrir þann mögu-leika að venjulegt og varnarlaust fólk sé hundelt fyrir kröfur sem annað hvort eru löngu greiddar eða ættu að vera fyrndar,“ segir Björgvin G. Sig-urðsson viðskiptaráðherra. DV greindi frá því í gær að Þor-gerður Elíasdóttir, húsmóðir í Grinda-vík, þarf nú að mæta til sýslumanns og halda uppi vörnum vegna skuldar sem Úlfar Nathanaelsson telur sig eiga rétt á að innheimta af henni. Skuldina greiddi Þorgerður fyrir mörgum árum og bar gæfu til þess að geyma kvittun og staðfestingu á því. Björgvin segir sitt brýnasta verk sem ráðherra neytendamála vera að taka á málum varðandi hvers konar óréttláta gjaldtöku á borð við seðil-gjöld, yfirdráttargjöld og innheimtu-kostnað. Í stríð við rukkara Björgvin hefur ákveðið að segja óréttlátum rukkurum stríð á hendur og segir að á borði viðskiptaráðuneyt-isins séu nokkur stór mál sem tengj-ast neytendum með beinum hætti. „Við erum að leggja lokahönd á frum-varp um fyrningarfrest á fjárhagskröf-um. Þar er gert að meginreglu að kröf-ur fyrnist á fjórum árum en gangi ekki kaupum og sölum árum saman fólki til hrellingar. Þetta er mikið réttlætis-mál sem við munum kynna sérstak-lega á næstu vikum,“ segir Björgvin. Einnig eru til skoðunar í ráðu-neytinu lög um gjaldþrotaskipti og greiðsluaðlögun. Björgvin segir að hér sé á ferðinni mikið réttlæt-is- og sanngirnismál. „Kjarni þess er að koma á úrræði til að aðstoða ein-staklinga sem eru í mjög alvarlegum greiðsluerfiðleikum. Hugsunin að baki þessu er sú að finna megi leið sem er ekki aðeins til hagsbóta fyrir einstakl-inga eða heimili í miklum greiðslu-erfiðleikum, heldur einnig fyrir lán-ardrottna og samfélagið í heild,“ segir Björgvin. Tekið á seðilgjöldum Björgvin hefur einnig ákveðið að skipa starfshóp sem á að gera úttekt á lögum sem varða viðskipti neytenda og banka. Starfshópurinn á einkum að beina sjónum sínum að gjöldum sem bankarnir leggja á viðskiptavini sína í rafrænum viðskiptum með kredit- og debetkortum, ásamt því að fara ítar-lega yfir forsendur bankanna fyrir svo-kölluðum fit-kostnaði og ýmiss konar seðilgjöldum. „Ef bankar beita fólk refsingum fyr-ir að fara yfir á tékkareikningum verður lagastoðin fyrir slíku að vera alveg skýr og óumdeild,“ segir Björgvin. Hann telur lagagrunninn fyrir þessari gjald-töku ekki vera nægilega skýran. „Það er ekki endilega rétt að allir bankarn-ir innheimti nákvæmlega sömu upp- hæð í tilvikum sem þessum.“ Starfs-hópurinn á að skila af sér skýrslu með drögum að lagafrumvarpi fyrir 1. jan-úar 2008. Í mál vegna draugakröfu Í tilviki Þorgerðar Elíasdóttur í Grindavík er um að ræða kröfu sem lögmaðurinn Úlfar Nathanaelsson keypti frá þroatbúi bókaútgáfu. Upp-haflega krafan var 17 þúsund krónur, en Þorgerður greiddi alls um 60 þús-und krónur eftir að krafan fór í inn-heimtu. Viðskipti Þorgerðar við bóka-útgáfuna áttu sér stað árið 1988, fyrir tæpum tuttugu árum síðan. Sjálfur er Úlfar Nathanaelsson hvað þekktastur fyrir að hafa keypt kröfur þrotabús tímaritsins Þjóðlífs á sínum tíma. Hann lögsótti fjölda fólks í köl-farið vegna skuldanna sem fyrst og fremst voru áskriftargjöld. Þorgerður segir að um hreina fjár-kúgun sé að ræða. Í viðtali í DV í gær segist hún ekki ætla að láta neitt slíkt yfir sig ganga. Hún ætlar að kæra Úlfar. F r j á l s t , ó h á ð d a g b l a ð miðvikudagur 5. SEPTEmBEr 2007 dagBlaðið víSir 137. TBl. – 97. árg. – vErð kr. 235 >> Vilhelm Anton Jónsson heldur útgáfutónleika í kvöld en nýlega kom út platan The Midnight Circus sem er fyrsta sólóplata Villa. Auk þess hefur hann verið önnum kafinn við að taka upp barnaefni með Sveppa fyrir Stöð 2. Útgáfutónleikar Villa Hundelt fyrir Skuld Sem var löngu greidd ÚLFAR NATHANAELSSON ENN AÐ INNHEIMTA áSkRIFTIR AÐ þjóÐLíFI: Þorgerði elíasdóttur krossbrá þegar Úlfar nathanaelsson stefndi henni á dögunum til greiðslu áratuga gamallar kröfu. krafan er frá 1988 og hana greiddi Þorgerður með innheimtukostnaði og vöxtum á nokkrum árum. nú er hún rukkuð aftur. Úlfar keypti þrotabú tímaritsins Þjóðlífs 1991 og hóf að innheimta skuldir úr því með miklum innheimtukostnaði. nú er hann kominn á stjá aftur til að innheimta kröfur frá níunda áratug síðustu aldar. Sjá bls. 2fréttir HÓTA AÐ HÆTTA HJÁ SÍMANUM>> Símtölunum rigndi yfir starfsfólk Símans eftir að auglýsingar byggðar á síðustu kvöldmáltíðinni ANGI AF BAUGSMÁLUM>> Gestur Jónsson, verjandi Jóns Ásgeirs Jóhannessonar, telur að tengsl kunni að vera milli Baugsmála og reglugerðar Björns Bjarnasonar um að færa saksóknara efnahagsbrota vald til að gefa út ákærur. Hann segir að svo virðist sem reglugerðin hafi verið undirbúin þegar málaferli um vanhæfi Haraldar DV Í Gær Þorgerður elíasdóttir sagði á því í dV í gær hvernig Úlfar Nathanaelsson lögmaður eltir hana uppi vegna löngu greiddrar skuldar. Kvittun og staðfesting Þorgerður geymdi kvittanir vegna málsins. Hún hefði annars getað setið varnarlaus gegn kröfum Úlfars. SiGTryGGur Ari JóhANNSSoN blaðamaður skrifar: sigtryggur@dv.is Viðskiptaráðherra björgvin g. sigurðsson vill að komið verði í veg fyrir að gamlar skuldir geti gengið kaupum og sölum árum saman, varnarlausu fólki til hrellingar. Frumvarp um ráðuneytin Geir H. Haarde forsætis-ráðherra segir í bréfi til Guðna Ágústssonar í fyrradag að rík-isstjórnin muni í haust flytja frumvarp um breytingar á verka-skiptingu ráðuneyta. Þar með svarar Geir bréfi frá Guðna þar sem hann benti á að breytingar á stjórnarráðinu væru ekki einka-mál Sjálfstæðisflokks og Sam-fylkingar. „Þingmönnum mun að sjálf-sögðu gefast eðlileg tækifæri til að fjalla um áform ríkisstjórnar-innar,“ segir Geir í bréfi sínu til Guðna. Óhöpp á Höfn Lögreglan á Höfn í Horna-firði hafði í nógu að snúast í fyrradag. Um miðjan daginn valt húsbíll um tuttugu kíló-metrum vestan við Jökulsárs-lón en vindhviða hafði feykt honum um koll. Í bílnum voru hjón frá Sviss og sluppu þau alveg ómeidd. Þau höfðu tekið bílinn á leigu og voru á leið í kringum landið. Um miðnættið í fyrrakvöld valt flutningabíll með tengi-vagn rétt austan við Reyni-velli. Mjög hvasst var á þess-um slóðum þegar óhappið varð en vindhviða kippti bílnum út af veginum. Hann náði þó að haldast á hjólun-u en þegar hann stöðvaðist féll hann á hliðina. Ökumaður bílsins slapp ómeiddur. Bruggaði og seldi landa Lögreglan á Hvolsvelli handtók rúmlega tvítugan mann í síðustu viku en hann hafði verið að brugga landa heima hjá sér. Að sögn lög-reglunnar fannst ekki mikið magn en hún afði fengið ábendingar um að maðurinn væri að selja bruggið í bæn-um. Lögreglan gerði tvo lítra af landa upptæka auk tóla og tækja en hann var með efni í gerjun þegar lögreglu bar að dyrum. Maðurinn hefur ekki komið við sögu lögreglu áður. Við leitina notuðust lögreglumenn við fíkniefna-leitarhund en hann hafði ekki erindi sem erfiði í þeirri ferð. 6. SEptEmBEr5. SEptEmBEr Þorgerður Elíasdóttir er ekki ein um að hafa lent í Úlfari en ekki höfðu allir sýnt sömu fyrirhyggj- una og geymt kvittanir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.