Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.2007, Side 8
föstudagur 7. september 20078 Fréttir DV
Þorgerður Elíasdóttir ætlar að kæra Úlfar Nathanaelsson fyrir fjársvik. Úlfar stefndi Þorgerði vegna greiðslu
á tíu ára gamalli skuld sem hún hafði þegar greitt. Málið var fellt niður eftir fyrirtöku hjá Sýslumanninum í
Reykjavík í gær. Í DV í vikunni kom fram að Björgvin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra ætlaði að breyta lög-
um um fyrningu skulda til þess að koma í veg fyrir draugarukkanir eins og Þorgerður lenti í.
KÆRIR FJÁRSVIK ÚLFARS
Mál Úlfars Nathanalessonar sem
keypti þrotabú bókaútgáfu og stefndi
Þorgerði Elíasdóttur fyrir löngu
greidda skuld, var fellt niður eftir fyr-
irtöku hjá Sýslumanninum í Reykja-
vík í gær. Úlfar hóf að innheimta
skuldir úr þrotabúinu með miklum
innheimtukostnaði meira en ára-
tug eftir að sumar þeirra voru
greiddar. Hvorki Úlfar né full-
trúar hans mættu til fyrirtök-
unnar. Úlfari var skipaður lög-
maður til þess að sitja fyrir hans
hönd í fyrirtökunni.
Þorgerður segir að
fulltrúi Úlfars hafi ráð-
lagt henni að kæra
hann fyrir fjársvik.
„Þegar hann vissi um
hvað málið snérist og
hver stefnandinn væri
henti hann pappírunum
á borðið og sagði mér að
kæra manninn fyrir fjársvik.“
Þorgerður ætlar á næstu dög-
um að leita til lögmanns með
það fyrir augum að kæra Úlfar
fyrir fjársvik. „Hefði ég ekki fundið
kvittunina, þá hefði ég þurft að gefa
þessum manni peningana mína,“
segir hún.
Engin mistök
Eins og sagt var frá í
DV á miðvikudag var
Þorgerður ein þeirra
sem nýlega var
stefnt af fyrirtæk-
inu Kanó ehf.,
sem er í eigu
Úlfars. Í stefn-
unni er farið
fram á greiðslu
vegna við-
skipta sem
áttu sér
stað árið 1988. Höfuðstóll
kröfunnar var sautján
þúsund krónur en Þor-
gerður greiddi sex-
tíu þúsund krónur
snemma á tíunda ára-
tug síðustu aldar til að
sleppa frá enn frekari
innheimtuaðgerðum
og meiri kostnaði. Þrátt
fyrir að Þorgerður hefði
greitt kröfuna fyrir tæpum
tveimur áratugum tók
Úlfar aftur til
við að rukka
Þorgerði. Þá
hafði kraf-
an hækk-
að í sex-
tíu og
tvö
þús-
und
krónur. Það var Þorgerði til happs
að hún geymdi kvittun fyrir greiðsl-
unni á sínum tíma og gat sýnt fram
á að hafa greitt.
Úlfar Nathanaelsson sagði við DV
að málinu væri lokið af sinni hálfu og
segir mistök hafa valdið því að Þor-
gerði var stefnt aftur. Þorgerður hafn-
ar því algjörlega. „Það hringdi í mig
maður sem las greinina í DV á mið-
vikudaginn og hafði lent í Úlfari eins
og ég. Hann greiddi ekki kröfuna og
Úlfar féllst á að falla frá kröfunni ef
honum yrði ekki stefnt.“
Úlfar keypti þrotabú í kringum
1990 og tók til við að rukka fólk um
gamlar kröfur sem höfðu ýmist ekki
verið greiddar eða jafnvel ekki rukk-
aðar. Þá töldu margir sig hafa greitt
kröfurnar en þar sem þeir höfðu ekki
kvittanir undir höndum gátu þeir
ekki sannað það og þurftu að borga
aftur.
Ætlar að koma í veg fyrir
draugakröfur
Björgvin G. Sigurðsson viðskipta-
ráðherra ætlar að breyta lögum um
fyrningu skulda til þess að koma
í veg fyrir að fólk á borð við Þor-
gerði og fleiri geti lent í því að ára-
tuga gamlar kröfur dúkki skyndilega
upp. Björgvin hefur ákveðið að skipa
starfshóp sem á að gera úttekt á lög-
um sem varða viðskipti neytenda
og banka. Í DV í gær sagði Björgvin
það vera mikið réttlætismál. „Það
þarf að girða fyrir þann möguleika
að venjulegt og varnarlaust fólk sé
hundelt fyrir kröfur sem annað hvort
eru löngu greiddar eða ættu að vera
fyrndar,“ sagði hann.
ValGEir ÖrN raGNarSSoN
blaðamaður skrifar: valgeir@dv.is
miðvikudagur 5. september 20072
Fréttir DV
InnlendarFréttIr
ritstjorn@dv.is
Grímseyjarferja
mun víst sigla
Grímseyjarferja kemur til með
að uppfylla reglugerðir Evrópu-
sambandsins og kröfur um svo-
kallaðan lekastöðugleika. Þetta
segir í yfirlýsingu sem Vegagerð-
in sendi frá sér í gær. Fulltrúar
vinstri grænna í fjárlaganefnd Al-
þingis hafa sagt óvíst hvort skipið
kæmist á flot.
Vegagerðin vitnar í orð Einars
Hermannssonar skipaverkfræð-
ings, sem sagði í skýrslu að ferjan
uppfyllti þessi skilyrði áður en
hún var keypt. Einnig er greint frá
því að Ólafur Briem hjá Siglinga-
stofnun hafi ekki dregið stöðug-
leika ferjunnar í efa.
17 ölvaðir
ökumenn
Lögreglan á höfuðborgar-
svæðinu stöðvaði sautján öku-
menn fyrir ölvunarakstur um
helgina. Einn þeirra var stöðvað-
ur á föstudag, fjórir á laugardag
en flestir voru stöðvaðir á sunnu-
daginn eða tólf ökumenn. Flestir
voru teknir í Reykjavík eða ellefu,
fimm voru stöðvaðir í Hafnarfirði
og einn í Garðabæ. Karlar voru í
miklum meirihluta eins og áður
en í þetta skiptið voru þetta sex-
tán karlar á aldrinum 18 til 48 ára
og ein kona á fertugsaldri.
Á sama tímabili voru tveir
karlar teknir fyrir að aka undir
áhrifum fíkniefna í Reykjavík.
Annar þeirra er um þrítugt en
hinn er á fimmtugsaldri.
Flestir gefa í
við skóla
Meira en helmingur þeirra
sem keyrðu framhjá Ingunnar-
skóla í Grafarholti í gær keyrði
hraðar en leyfilegt er.
Lögreglan á höfuðborg-
arsvæðinu sinnti eftirliti með
hraða ökutækja í Grafarholti
í fyrradag. Bifreiðar sem óku
framhjá Ingunnarskóla voru
myndaðar og gerðust 39 öku-
menn brotlegir á einni klukku-
stund. Sú niðurstaða sýnir að
meirihluti ökumanna ók of hratt
nærri skólanum, því að á því
tímabili sem mælingar stóðu yfir
óku 70 bifreiðar framhjá honum.
Sá sem hraðast ók mældist á ríf-
lega 60 kílómetra hraða en leyfi-
legur hraði nærri skólasvæði er
30 kílómetrar.
Fyrirtæki líklega kærð fyrir lögbrot
„Til stendur að Arnarfell ráði beint
til sín alla starfsmennina. Fresturinn
er til hádegis. Þetta er ákveðin lausn
á vandanum en við viljum algjörlega
komast til botns í þeim lögbrotum
sem hafa átt sér stað,“ segir Gissur Pét-
ursson, forstjóri Vinnumálstofnunar.
Tugir erlendra starfsmanna fyr-
irtækisins Hunnebeck Polska verða
skráðir sem starfsmenn Arnarfells
og frestur til þess hefur verið gef-
inn til hádegis í dag. Á meðan verð-
ur ekki gripið til frekari viðurlaga og
starfsemin ekki stöðvuð. Að loknum
skráningunum bíður það verkefni
Vinnumálastofnunar að kafa ofan
í hvort launagreiðslur fyrirtækisins
hafi verið með ólöglegum hætti fram
til þessa. Eftir stendur að fyrirtæk-
ið GT verktakar á eftir að gera hreint
fyrir sínum dyrum og er það á síðasta
séns hjá Vinnumálastofnun.
Aðspurður segir Gissur skrán-
ingarnar ákveðna lausn fyrir starfs-
mennina sjálfa og mikilvægt sé að fá
launagreiðslur fyrirtækjanna alfarið á
hreint. Hann segir öll samskipti fara
milli lögmanna og útilokar ekki að
fyrirtækin verði kærð fyrir ólögmæta
starfsemi hingað til. „Fyrirtækið er á
síðustu þolinmæðismínútunum og
þeim er það alfarið ljóst. Samskipt-
in fara alfarið í gegnum lögmenn á
þessu stigi. Þó svo að við fáum bæði
fyrirtækin til að hætta að brjóta lög-
in þýðir það ekki endilega að þau séu
laus allra mála,“ segir Gissur.
trausti@dv.is
Lokafrestur tvö fyrirtæki eru á síðasta
séns hjá vinnumálastofnun og öll
samskipti fara fram milli lögmanna.
Líklegt er að þau verði bæði kærð fyrir
ólögmæta starfsemi fram til þessa.
„Gamlir draugar vakna á ný. Það er
með ólíkindum að þurfa að ganga aft-
ur í gegnum þessa vitleysu og maður-
inn er greinilega að fara annan hring.
Hann stundar hreinar fjárkúganir og
það er á hreinu að ég ætla að fara alla
leið með þetta mál og kæra hann,“
segir Þorgerður Elíasdóttir, húsmóðir
í Grindavík.
Lögmaðurinn Úlfar Nathanaels-
son hefur óskað liðsinnis lögfræðings
og stefnt einstaklingum fyrir ógreidd-
ar kröfur sem ná tæpa tvo áratugi aftur
í tímann. Þorgerður er ein þeirra sem
nýlega fengu stefnu frá fyrirtæki Úlf-
ars, Kanó ehf., þar sem farið er fram
á greiðslu vegna viðskipta sem áttu
sér stað árið 1988. Hún hafði þá feng-
ið bækur sem hún segir að ekki hafi
verið gengið eftir greiðslu með. Þrem-
ur árum síðar birtist Úlfar skyndilega,
þar sem hann hafði keypt þrotabú út-
gáfunnar, og stefndi þeim sem keypt
höfðu bækur en ekki greitt fyrir, til að
greiða fyrir bækurnar með tilheyr-
andi vöxtum og kostnaði. Á endan-
um greiddi Þorgerður kröfuna og fékk
kvittun gegn greiðslunni frá fyrrver-
andi lögfræðingi Úlfars. Engu að síð-
ur barst henni aftur nýverið stefna frá
Úlfari sem segist aldrei hafa fengið
peningana sína.
Fer annan hring
Höfuðstóll kröfunnar á hendur
Þorgerði var 17 þúsund krónur en
þegar hún greiddi hana með vöxtum
og kostnaði var upphæðin komin í
rúmar 60 þúsund krónur. Hún hefur
í dag kvittun í höndunum fyrir þeirri
greiðslu og er því verulega undrandi
yfir því að Úlfar stígi fram á ný. „Málið
kláraðist á sínum tíma, að ég hélt. Um
leið og ég greiddi kröfuna hélt ég auð-
vitað að málið væri endanlega dautt.
Ég held að hann sé að fara annan
hring núna með það fyrir augum að
fólk sé líklega búið að henda kvittun-
um sínum. Í fyrstu fann ég ekki kvitt-
unina en sem betur fer fann ég hana
svo. Ég er búin að borga þetta og það
kemur ekki til greina að ganga í gegn-
um þessa vitleysu aftur,“ segir Þor-
gerður.
Spurður um nýlegar stefnur segist
Úlfur vera að tryggja innheimtu eldri
skulda áður en þær fyrnist. Hann seg-
ist ekki sjá neitt athugavert við inn-
heimtuna. „Mér finnst eðlilegt að
innheimta þær kröfur sem ég á úti-
standandi, sama hversu gamlar þær
eru, á meðan þær eru lögvarðar. Sjálf-
ur fékk ég líklega aldrei þessa peninga
sem hún greiddi en það er ekki henn-
ar mál. Ég er að endurupptaka þessi
mál áður en þau fyrnast,“ segir Úlfar.
Alveg miður sín
Þegar haft var samband við nú-
verandi lögmann Úlfars fengust þau
svör að hann hafi ákveðið að hafa
ekki frekari afskipti af málefnum Úlf-
ars. Þorgerður er hins vegar sannfærð
um að Úlfar sé ekki hættur. „Um leið
og ég sagðist aldrei borga þetta aftur
varð Úlfar fokreiður og strunsaði út. Í
kjölfarið fæ ég senda ítrekun frá sýslu-
manni út af kröfunni og hann ætlar
greinilega að halda áfram með mál-
ið,“ segir Þorgerður.
Aðspurður telur Úlfar aftur á móti
málinu sé lokið af hanshálfu og hafn-
ar því alfarið að hafa brugðist illa við.
Hann segir þetta mistök og er miður
sín yfir því að stefnan hafi verið send
út. „Það voru algjör mistök hjá mér að
stefna henni aftur. Svona lagað getur
alltaf gerst og mér þykir það ákaflega
miður. Það er ekki flóknara en svo,“
segir Úlfar.
Þorg rður er verulega ósátt með
framkomu Úlfars í málinu frá upp-
hafi. Hún er ósátt með að hann hafi
birst með gamla kröfu og skellt henni
fram með bullandi vöxtum. „Mér
finnst mikilvægt að fólk standi gegn
honum því hann er að stefna fleir-
um og maður veit aldrei hvort hann
sé með fleira óhreint í pokahorninu.
Málið er síður en svo dautt af minni
hálfu því mér finnst hann vera að
brjóta á mér.“
Þorgerði Elíasdóttur Úlfar Nathana-
elsson
INNHEIMTIR ÁRATUGA
GAMLAR KRÖFUR
TrAusTi hAFsTEiNssoN
blaðamaður skrifar: trausti@dv.is
„ég held að hann sé að
fara annan hring núna
með það fyrir augum að
fólk sé búið að henda
kvittunum sínum.“
ofsótt af lögfræðingi
Þorgerður er undrandi yfir
framkomu Úlfars og ætlar að leita
réttar síns. sjálfur iðrast hann
mjög að hafa stefnt henni og
ætlar að láta málið niður falla.
Ósáttur við
rukkun
„Farþegar okkar gátu aðeins
nýtt sér þetta öryggishlið að tak-
mörkuðu leyti þar sem starfsemin
var miðuð við
brottfarir véla
Icelandair,“
segir Matthí-
as Imsland,
framkvæmda-
stjóri Iceland
Express. Búið
er að loka
hliðinu og er
verið að taka saman kostnaðinn.
Samkvæmt upplýsingum frá
Flugmálastjórn Keflavíkurflug-
vallar eiga Icelandair og Iceland
Express að borga brúsann en
Matthías er ekki sáttur. „Þessi til-
raun fór af stað með Icelandair. Við
fréttum af þessu síðar og óskuðum
eftir því að vera með. Það var aldrei
sagt að við ættum að borga.“
fimmtudagur 6. september 2007
4
Fréttir DVInnlendarFréttIrritstjorn@dv.is
Nauðgari rannsakaður
Jóns Péturssonar
Matsmenn verða fengnir til að meta sakhæfi hins margdæmda nauðgara Jóns Péturssonar. Þetta samþykkti Héraðsdómur Reykja-víkur í gærmorgun. Jón var fundinn sekur um hrottafengna nauðgun á tveimur konum og fékk hann fimm ára fangelsisdóm fyrir. Sá dómur var kveðinn upp í júní á þessu ári. Nokkrum mánuðum áður, í okt-óber 2006, hafði Jón hlotið annan fimm ára dóm í héraðsdómi vegna nauðgunar og misþyrmingar á fyrr-verandi sambýliskonu sinni. Sá dómur var staðfestur af Hæstarétti í apríl. Í seinni dómnum sem kveð-inn var upp í júní segir að brot Jóns hafi verið sérlega hrottafengið en hann notaði meðal annars búrhníf og kjötöxi í ofbeldinu.
Jón bar því við að slys sem hann varð fyrir í Egyptalandi fyrir átta árum hafi valdið skaða á framheila. Héraðsdómur Reykjavíkur sam-þykkti að rannsakað yrði sérstaklega í taugasálfræðilegu mati hvort hugs-anlegur framheilaskaði hefði getað valdið þessari hömlulausu hegðun hjá Jóni. Jón lenti í slysi í nóvem-ber árið 1999 þegar hann datt fram af hestvagni. Fallið hafði þær af-leiðingar að mænuvökvi lak úr nefi hans. Þrjár tölvuskannamyndir voru teknar og kom í ljós á fyrstu tveim-ur þeirra að loft hefði komist í heila Jóns. Á síðustu myndinni var þó allt orðið eðlilegt. Jón bar því við fyrir dómi að hegðun hans væri afleiðing af slysinu. Í beiðninni sem Sveinn Andri Sveinsson, lögmaður Jóns,
lagði fram segir að slysið hefði getað valdið hömluleysi þannig að Jón hafi ekki verið sjálfráður gerða sinna og því ósakhæfur.
Þegar Jón hóf afplánun á Litla-Hrauni var hann í meðferð hjá geð-lækninum John Donne De Niet. Í bréfi sem John skrifaði 13. apríl kom fram að Jón hefði einkenni framheilaskaða. Til að greina slíkan skaða þarf sérstakt virknirit og taugasálfræðilegt mat. Fag-leg rök De Niets mæltu því með að ít-arlegri rannsókn yrði gerð á Jóni. Sak-sóknari vísaði þessum rökum á bug þar sem hann benti á að bréfið hefði þegar legið fyrir. Hann vísaði einnig til rannsóknar sem Tómas Zoëga gerði en þar kom fram að Jón væri hald-inn langvinnu alkóhólisma-fíkniheil-kenni.
einar@dv.is
Nauðgari Jón pétursson lenti í slysi fyrir átta árum. Hann ber því við að skaðinn sem hann varð fyrir hafi valdið breytingu á hegðun sinni.
Heitir bara
Landspítali
Nafnið Landspítali - háskóla-sjúkrahús heyrir sögunni til vegna nýrra laga sem tóku gildi 1. september. Heitir hann núna Landspítali en skammstöfun hans stendur enn óbreytt, LSH. Frá því að sjúkrahúsin samein-uðust í Reykjavík árið 2000 hef r opinbert heiti sjúkrahússins ver-ið Landspítali - háskólasjúkra-hús. Hér eftir verður heitið hins vegar bara Landspítali.
Björgvin G. Sigurðsson
VIÐSKIPTARÁÐHERRA Í STRÍÐ VIÐ RUKKARA
„Það þarf að girða fyrir þann mögu-leika að venjulegt og varnarlaust fólk sé hundelt fyrir kröfur sem annað hvort eru löngu greiddar eða ættu að vera fyrndar,“ segir Björgvin G. Sig-urðsson viðskiptaráðherra.
DV greindi frá því í gær að Þor-gerður Elíasdóttir, húsmóðir í Grinda-vík, þarf nú að mæta til sýslumanns og halda uppi vörnum vegna skuldar sem Úlfar Nathanaelsson telur sig eiga rétt á að innheimta af henni. Skuldina greiddi Þorgerður fyrir mörgum árum og bar gæfu til þess að geyma kvittun og staðfestingu á því.
Björgvin segir sitt brýnasta verk sem ráðherra neytendamála vera að taka á málum varðandi hvers konar óréttláta gjaldtöku á borð við seðil-gjöld, yfirdráttargjöld og innheimtu-kostnað.
Í stríð við rukkara
Björgvin hefur ákveðið að segja óréttlátum rukkurum stríð á hendur og segir að á borði viðskiptaráðuneyt-isins séu nokkur stór mál sem tengj-ast neytendum með beinum hætti.
„Við erum að leggja lokahönd á frum-varp um fyrningarfrest á fjárhagskröf-um. Þar er gert að meginreglu að kröf-ur fyrnist á fjórum árum en gangi ekki kaupum og sölum árum saman fólki til hrellingar. Þetta er mikið réttlætis-mál sem við munum kynna sérstak-lega á næstu vikum,“ segir Björgvin. Einnig eru til skoðunar í ráðu-neytinu lög um gjaldþrotaskipti og
greiðsluaðlögun. Björgvin segir að hér sé á ferðinni mikið réttlæt-is- og sanngirnismál. „Kjarni þess er að koma á úrræði til að aðstoða ein-staklinga sem eru í mjög alvarlegum greiðsluerfiðleikum. Hugsunin að baki þessu er sú að finna megi leið sem er ekki aðeins til hagsbóta fyrir einstakl-inga eða heimili í miklum greiðslu-erfiðleikum, heldur einnig fyrir lán-ardrottna og samfélagið í heild,“ segir Björgvin.
Tekið á seðilgjöldum
Björgvin hefur einnig ákveðið að skipa starfshóp sem á að gera úttekt á lögum sem varða viðskipti neytenda og banka. Starfshópurinn á einkum að beina sjónum sínum að gjöldum sem bankarnir leggja á viðskiptavini sína í rafrænum viðskiptum með kredit- og debetkortum, ásamt því að fara ítar-lega yfir forsendur bankanna fyrir svo-kölluðum fit-kostnaði og ýmiss konar seðilgjöldum.
„Ef bankar beita fólk refsingum fyr-ir að fara yfir á tékkareikningum verður lagastoðin fyrir slíku að vera alveg skýr og óumdeild,“ segir Björgvin. Hann telur lagagrunninn fyrir þessari gjald-töku ekki vera nægilega skýran. „Það er ekki endilega rétt að allir bankarn-ir innheimti nákvæmlega sömu upp-
hæð í tilvikum sem þessum.“ Starfs-hópurinn á að skila af sér skýrslu með drögum að lagafrumvarpi fyrir 1. jan-úar 2008.
Í mál vegna draugakröfu
Í tilviki Þorgerðar Elíasdóttur í Grindavík er um að ræða kröfu sem lögmaðurinn Úlfar Nathanaelsson keypti frá þroatbúi bókaútgáfu. Upp-haflega krafan var 17 þúsund krónur, en Þorgerður greiddi alls um 60 þús-und krónur eftir að krafan fór í inn-heimtu. Viðskipti Þorgerðar við bóka-útgáfuna áttu sér stað árið 1988, fyrir tæpum tuttugu árum síðan.
Sjálfur er Úlfar Nathanaelsson hvað þekktastur fyrir að hafa keypt kröfur þrotabús tímaritsins Þjóðlífs á sínum tíma. Hann lögsótti fjölda fólks í köl-farið vegna skuldanna sem fyrst og fremst voru áskriftargjöld.
Þorgerður segir að um hreina fjár-kúgun sé að ræða. Í viðtali í DV í gær segist hún ekki ætla að láta neitt slíkt yfir sig ganga. Hún ætlar að kæra Úlfar.
F r j á l s t , ó h á ð d a g b l a ð
miðvikudagur 5. SEPTEmBEr 2007 dagBlaðið víSir 137. TBl. – 97. árg. – vErð kr. 235
>> Vilhelm Anton Jónsson heldur útgáfutónleika í kvöld en nýlega kom út platan The Midnight Circus sem er fyrsta
sólóplata Villa. Auk þess hefur hann verið önnum kafinn við að taka upp barnaefni með Sveppa fyrir Stöð 2.
Útgáfutónleikar Villa
Hundelt fyrir Skuld Sem var löngu greidd
ÚLFAR NATHANAELSSON ENN AÐ INNHEIMTA áSkRIFTIR AÐ þjóÐLíFI:
Þorgerði elíasdóttur krossbrá þegar Úlfar
nathanaelsson stefndi henni á dögunum til greiðslu
áratuga gamallar kröfu. krafan er frá 1988 og hana
greiddi Þorgerður með innheimtukostnaði og vöxtum
á nokkrum árum. nú er hún rukkuð aftur. Úlfar keypti
þrotabú tímaritsins Þjóðlífs 1991 og hóf að innheimta
skuldir úr því með miklum innheimtukostnaði. nú er
hann kominn á stjá aftur til að innheimta kröfur frá
níunda áratug síðustu aldar. Sjá bls. 2fréttir
HÓTA AÐ HÆTTA HJÁ SÍMANUM>> Símtölunum rigndi yfir starfsfólk Símans eftir að auglýsingar byggðar á síðustu kvöldmáltíðinni
ANGI AF BAUGSMÁLUM>> Gestur Jónsson, verjandi Jóns Ásgeirs Jóhannessonar, telur að tengsl kunni að vera milli Baugsmála og reglugerðar Björns Bjarnasonar um að færa saksóknara efnahagsbrota vald til að gefa út ákærur. Hann segir að svo virðist sem reglugerðin hafi verið undirbúin þegar málaferli um vanhæfi Haraldar
DV Í Gær
Þorgerður elíasdóttir sagði á því í dV í gær hvernig Úlfar Nathanaelsson lögmaður eltir hana uppi vegna löngu greiddrar skuldar.
Kvittun og staðfesting Þorgerður geymdi kvittanir vegna málsins. Hún hefði annars getað setið varnarlaus gegn kröfum Úlfars.
SiGTryGGur Ari JóhANNSSoN
blaðamaður skrifar: sigtryggur@dv.is
Viðskiptaráðherra
björgvin g. sigurðsson vill að komið verði í veg fyrir að gamlar skuldir geti
gengið kaupum og sölum árum saman, varnarlausu fólki til hrellingar.
Frumvarp um
ráðuneytin
Geir H. Haarde forsætis-ráðherra segir í bréfi til Guðna Ágústssonar í fyrradag að rík-isstjórnin muni í haust flytja frumvarp um breytingar á verka-skiptingu ráðuneyta. Þar með svarar Geir bréfi frá Guðna þar sem hann benti á að breytingar á stjórnarráðinu væru ekki einka-mál Sjálfstæðisflokks og Sam-fylkingar.
„Þingmönnum mun að sjálf-sögðu gefast eðlileg tækifæri til að fjalla um áform ríkisstjórnar-innar,“ segir Geir í bréfi sínu til Guðna.
Óhöpp á Höfn
Lögreglan á Höfn í Horna-firði hafði í nógu að snúast í fyrradag. Um miðjan daginn valt húsbíll um tuttugu kíló-metrum vestan við Jökulsárs-lón en vindhviða hafði feykt honum um koll. Í bílnum voru hjón frá Sviss og sluppu þau alveg ómeidd. Þau höfðu tekið bílinn á leigu og voru á leið í kringum landið.
Um miðnættið í fyrrakvöld valt flutningabíll með tengi-vagn rétt austan við Reyni-velli. Mjög hvasst var á þess-um slóðum þegar óhappið varð en vindhviða kippti
bílnum út af veginum. Hann náði þó að haldast á hjólun-u en þegar hann stöðvaðist féll hann á hliðina. Ökumaður bílsins slapp ómeiddur.
Bruggaði og
seldi landa
Lögreglan á Hvolsvelli handtók rúmlega tvítugan mann í síðustu viku en hann hafði verið að brugga landa heima hjá sér. Að sögn lög-reglunnar fannst ekki mikið magn en hún afði fengið ábendingar um að maðurinn væri að selja bruggið í bæn-um. Lögreglan gerði tvo lítra af landa upptæka auk tóla og tækja en hann var með efni í gerjun þegar lögreglu bar að dyrum. Maðurinn hefur ekki komið við sögu lögreglu áður. Við leitina notuðust lögreglumenn við fíkniefna-leitarhund en hann hafði ekki erindi sem erfiði í þeirri ferð.
6. SEptEmBEr5. SEptEmBEr
Þorgerður Elíasdóttir er ekki
ein um að hafa lent í Úlfari en ekki
höfðu allir sýnt sömu fyrirhyggj-
una og geymt kvittanir.