Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.2007, Síða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.2007, Síða 10
 YFIRGÁFU DRAUMINN VEGNA ÁLAGS OG LAKRA LAUNA „Ég næ vel til barna og unglinga og veit að ég er góður kennari. Fólk sagði við mig að mér hefði alltaf verið ætluð þessi staða. En ég þurfti að hætta út af laununum,“ segir Tinna Ástrún Grétarsdóttir. Hún lauk kennaranámi árið 2005 en ákvað í vor að láta gott heita. „Draumurinn er úti.“ „Það gengur ekki að vinna bara af hugsjón til lengri tíma. Ég er ung og barnlaus og ákvað að nota tækifærið og afla mér frekari menntunar þannig að ég gæti fengið mannsæmandi laun.“ Tinna fékk um 195 þúsund krónur í grunnlaun þegar hún hóf störf sem kennari. Á þeim tveimur árum sem hún var við störf hækkuðu launin um tíu þúsund krónur. Bara grín „Þetta er bara grín. Launin eru ekki í sam- ræmi við vinnuálag,“ segir Linda Dröfn Grétars- dóttir. Hún er menntaður sjúkraliði en sá sér ekki fært að starfa við fagið lengur en í nokkra mán- uði vegna álags og lágra launa. „Ég hef alltaf haft áhuga á umönnun fólks. Ætlunin var að fara í hjúkrunarfræðinám í kjölfar sjúkraliðanámsins. Ég komst hins vegar að því að vaktavinna hent- aði mér ekki og launin þaðan af síður.“ Áður en Linda lærði til sjúkraliða hafði hún aflað sér starfsréttinda sem hársnyrtir og hvarf hún aftur til þeirra starfa. „Amma mín var sjúkraliði. Hún var í þessu af einskærri hugsjón. En þegar maður er kominn með fjölskyldu vega launin þungt.“ Kristín Á. Guðmundsdóttir, formaður Sjúkra- liðafélags Íslands, segir byrjunarlaun sjúkra- liða vera rúmar 177 þúsund krónur. „Launin eru léleg og álagið er gríðarlegt. Þetta fólk er að vinna þegar aðrir eru í fríi,“ segir Kristín. „Það er að vinna á kvöldin, um helgar, á nóttunni og á stórhátíðardögum. Þetta fólk þarf ekki að hugsa sig lengi um ef því býðst betur launuð vinna þar sem frekari tækifæri eru á að eyða tíma með fjöl- skyldunni.“ Kristín segir mikinn vanda að halda góðu starfsfólki þar sem næga vinnu er að hafa annars staðar. Súrrealískar upphæðir „Auðvitað er sárt að kveðja kennarastarfið,“ segir Bryndís Jóhanna Jóhannesdóttir. „Þótt ég hafi ekki verið kennari nema í þrjú ár hef ég starfað sem leiðbeinandi í grunnskóla, á leikskólum og mikið unnið með börnum auk þess að eiga þrjú sjálf. Börn eru stór þáttur í mínu lífi og þau þurfa á okkur fullorðna fólkinu að halda með leiðsögn og umhyggju. Ég vona að sá tími komi að hægt verði að snúa aftur í kennslu og vera sáttur í starfi.“ Bryndís vinnur nú hjá vel stæðu fjármálafyrirtæki sem veltir milljörðum. „Hagnaður þess á fyrri hluta ársins var 32,8 milljarðar. Til samanburðar má nefna að heildargjöld ríkissjóðs til menntamála árið föstudagur 7. september 200710 Helgarblað DV Tinna Ástrún Grétars- dóttir lauk kennara- menntun en lét af störf- um sökum óviðunandi launa. Lindu Dröfn Grét- arsdóttur fannst hún ekki ná að sinna sjúkling- um nægilega vegna hraða og álags. Hún hætti sem sjúkraliði eftir örfáa mán- uði í starfi. Bryndís Jó- hanna Jóhannesdóttir er fyrrverandi kennari en starfar nú hjá fjármála- fyrirtæki. Hagnaður þess á fyrri hluta ársins var svipaður og útgjöld ríkisins til menntamála á öllu síðasta ári. Skólastúlkur tinna fékk um 195 þúsund krónur í grunnlaun þegar hún hóf störf sem kennari. Á þeim tveimur árum sem hún var við störf hækkuðu launin um tíu þúsund krónur. Rúmliggjandi „Ég náði ekki að gera það sem ég vildi gera sökum anna. Það fór fyrir brjóstið á mér,“ segir Linda.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.