Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.2007, Síða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.2007, Síða 15
DV Helgarblað föstudagur 7. september 2007 15 ÁRNI JOHNSEN SPILLTASTUR ALLRA Eins og gefur að skilja er þetta óformleg könnun en álits- gjafarnir eiga það sameiginlegt að hafa fylgst grannt með þjóð- málum að minnsta kosti síðustu þrjá áratugi. Nokkrir af þeim stjórnmálamönnum, sem komu upp í huga álitsgjafanna, eru látnir. Aðrir eru í eldlínunni og nokkrir hafa horfið til annarra starfa. Ennfremur má glöggt sjá hversu um- deildir menn eru af störfum sínum í stjórnmálum því í sumum tilfellum má ekki á milli sjá hvort stjórnmálamenn teljast spillt- ir eða heiðarlegir. Það segir einnig ýmislegt um stöðu kvenna í íslenskum stjórnmálum að aðeins þrjár voru nefndar. Umsagnir álitsgjafanna eru einnig áhugaverðar. Almennt spöruðu þeir ekki stóru orðin um hina ótvíræðu „sigurveg- ara“, svo sem Árna Johnsen og Geir H. Haarde. Þegar kom að „minni spámönnum“ urðu umsagnirnar yfirleitt mýkri og meira á floti. Oft er talað um minnkandi völd stjórnmálamanna í íslensku samfélagi en það er kannski til marks um annað að flestir þeirra álitsgjafa sem DV leitaði til vildu ekki að nafn þeirra yrði bendlað við þessa samantekt. Níu af tuttugu álitsgjöfum báð- ust hreinlega undan því og vildu hylja algjörlega spor sín. Þar með er nöfnum hinna, sem að meinalausu mátti nefna, ekki getið, enda er þetta óformleg könnun þótt hún gefi sannarlega sterka vísbendingu um orðspor nokkurra stjórnmálamanna sem hafa sett sterkan svip á þjóðlífið síðustu áratugi. 10 HEIÐARLEGUSTU Geir H. Haarde „Forsætisráðherra okkar virðist vera býsna vammlaus maður og lítt fyrir að standa í skítverkum.“ „Það segir ýmislegt að hann nýtur virðingar bæði samherja og mótherja.“ „Einkunnarorð hans hafa löngum verið: Orð skulu standa.“ „Þolinmóður og lét ekki bugast af yfirgangi fyrrverandi formanns flokksins.“ 1 Jóhanna Sigurðardóttir „Í stjórnmálum af hugsjón og lét ekki bjóða sér niðurlægjandi framkomu for- manns Alþýðuflokksins í sinn garð.“ „Hún er alvörutalsmaður litla fólksins.“ „Tekur stríðið þegar á þarf að halda.“ „Óhrædd og sívinnandi.“ Pétur Blöndal „Segir hlutina hreint út.“ „Er ekkert að velta því fyrir sér hvort málflutningur hans sé vel fall- inn til vinsælda.“ „Hann er moldríkur og leyfir sér að hafa engan áhuga á þeim smáupp- hæðum sem pólitíkin skaffar hon- um.“ Ögmundur Jónasson „Hjartagóð hamhleypa.“ „Harðduglegur og ósérhlífinn.“ „Það dettur engum annað í hug en að hann sé að þessu nema af hugsjón.“ Vilmundur Gylfason „Hann galt fyrir hreinskilnina og hug- sjónirnar.“ „Sjónarmiðum hans er sífellt haldið á lofti, enda leyndi hann þeim ekki og barð- ist fyrir þeim með oddi og egg.“ „Gott dæmi um að stjórnmálamenn geta líka verið hugmyndafræðingar.“ Guðni Ágústsson „Hann er einlægur og jafnvel barnalegur en fólk skilur það sem hann segir – jafnvel þeir sem eru hvað mest ósammála honum.“ „Fulltrúi gamalla framsóknargilda og skammast sín ekkert fyrir það.“ „Hann hélt lífinu í Framsókn og kveikir vonir um óspillta framtíð hjá flokknum.“ Davíð Oddsson „Bæði andstæðingar og samherjar hafa alltaf vitað hvar þeir hafa hann.“ „Hann boðaði strax nýja línu um að látið yrði af sértækum aðgerðum í efna- hagsmálum. Og tókst ótrúlega vel að standa við það.“ „Langur samfelldur ferill í fremstu röð segir meira en mörg orð um það traust sem borið er til hans.“ Geir Hallgrímsson „Grandvar og góður maður.“ „Fórnaði sér fyrir flokkinn og fór ekki út í hreinsanir þótt mörgum þætti fullt til- efni til.“ „Þjóðin fór á mis við mikið að hans skyldi ekki njóta lengur við í fremstu röð.“ Hjörleifur Gutt- ormsson „Oft hafður að athlægi fyrir um- deildar skoðanir en hefur aldrei látið bugast eða sveigt af leið.“ „Vinnusamur og kynnir sér málin betur en flestir aðrir.“ „Einlægur og eldheitur náttúru- verndarsinni.“ Friðrik Sophusson „Spilaði vel úr ráðherradómi sínum og gat farið sáttur út úr pólitíkinni.“ „Þótt hann tilheyrði upphaflega armi Gunnars Thoroddsen í Sjálfstæðisflokkn- um var alltaf litið á hann sem mann mála- miðlana.“ „Oftar en einu sinni var hann kallaður til og bar klæði á vopnin.“ 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Aðrir sem kitluðu listann: Einar Oddur Kristjánsson, Ragnar Arnalds, Árni Sigfússon, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, Steingrímur Hermannsson, Guðmundur Árni Stefánsson, Matthías Á. Mathiesen, Ellert B. Schram, Jón Kristjánsson, Ómar Ragnarsson, Sigurjón Pétursson, Jón Sigurðsson (Alþýðuflokki), Jón Sigurðsson, (Framsóknarflokki).

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.