Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.2007, Blaðsíða 28
„Ég ætlaði aldrei að verða prest-
ur,“ segir Vörður Leví Traustason,
prestur og forstöðumaður Hvíta-
sunnukirkjunnar Fíladelfíu. „Ég held
að Guð hafi einfaldlega leitt mig í
þessa stöðu.“
Vörður Leví er ekki prestlærður,
heldur alinn upp í söfnuðinum. For-
eldrar hans voru báðir í söfnuðinum
og föðuramma Varðar og langamma
voru meðal stofnenda safnaðarins
í Vestmannaeyjum. „Amma mín og
langamma voru meðal þeirra fyrstu
sem tóku á móti trúnni. Ég ólst því
upp í söfnuðinum í Vestmannaeyjum
þar sem öll tólf systkini pabba voru
einnig,“ segir Vörður.
„Eftir því sem ég eltist og reynsl-
an varð meiri varð ég þakklátari fyrir
að hafa varðveist frá ýmsu sem mað-
ur hefði getað leiðst út í. Svo hef ég
kynnst bakhliðum lífsins, sérstaklega
á þeim 13 árum sem ég starfaði sem
lögreglumaður. Þá sá ég eymdina og
volæðið og varð þá ákaflega þakk-
látur fyrir að hafa alist upp í hvíta-
sunnusöfnuðinum,“ segir Vörður.
Lærði bifvélavirkjun
Hann lærði bifvélavirkjun og vann
við það í Noregi í fjögur ár er hann
flutti þangað með norskri konu sinni,
Esther. „Svo fundum við bæði fyrir
því að Guð kallaði okkur til Íslands.“
Þau sneru aftur og fóru til Akureyrar
en í stað þess að halda áfram í
bifvélavirkjun ákvað Vörður að fara
í lögregluna. „Árin mín í lögreglunni
voru gríðarlega lærdómsrík. Á
sama tíma var ég forstöðumaður
hvítasunnusafnaðarins á Akureyri.
Ég hef stundum verð spurður að því
hvort það hafi ekki verið andstæður.
Það veitti mér hins vegar mjög mörg
tækifæri til að biðja með fólki, bæði
þegar ég var á göngu niðri í miðbæ á
kvöldin og næturnar. Ég hitti oft fólk
sem var langt niðri eða leið illa og
bað mig um að biðja með sér. Ég fór
með það í næði og bað með því.“
Vörður Leví er prestur hvíta-
sunnusafnaðarins sem telur um þús-
und manns. Ekki er hægt að ganga í
söfnuðinn með því að skrá sig í hann
á Hagstofunni eins og er með flesta
söfnuði, að sögn Varðar. „Hér tek-
ur fólk trú, frelsast eins og við segj-
um, og velur að ganga inn í söfnuð-
inn, taka niðurdýfingarskírn sem er
vitnisburður um að fólk sé að ganga
inn í kirkjuna af heilindum. Við höf-
um ekkert að gera með tíu þúsund
manna kirkju þar sem einn sjötti
mætir reglulega. Stór hluti af söfnuð-
inum er mjög virkur.“
Meðlimir Hvítasunnukirkjunn-
ar trúa á Biblíuna og allt það sem í
henni stendur. „Við reynum að fara
eftir því sem þar stendur. Við slepp-
um ekki því sem hentar ekki, ekki
frekar en við sleppum einhverjum
umferðarreglum sem við erum ekki
alveg sátt við.“
Hann segir að Hvítasunnukirkjan
sé ekki sértrúarsöfnuður og bend-
ir á að á heimsvísu séu meðlimir
kirkjunnar alls um 500 milljónir. Til
samanburðar séu meðlimir lútersku
kirkjunnar um 60 milljónir. „Sértrúar
er rangt orð. Af hverju er sjálfsagt að
líta á Þjóðkirkjuna eða lútersku trúna
sem hina eina réttu?“ spyr hann.
„Við köllum okkur ekki sértrúarsöfn-
uð. Við köllum okkur fríkirkju,“ segir
hann.
Guð setur eitthvað í mann
En hvað er það sem gerir honum
kleift að hjálpa öðrum? „Ég held að
Guð setji eitthvað í mann svo mann
hungri í að hjálpa öðrum. Nú talar
Biblían um ýmsa þjónustu, trúboði,
postuli, kennari, hirðir sem á að vera
í hverri kirkju. Ég finn mig sterkastan
sem hirði, að taka utan um aðra,
hjálpa þeim, uppörva þá, hvetja þá,
það er það sterkasta í mér. Ég og
konan mín erum mjög samstiga í
því að taka utan um fólk, kannski
af því að við sjáum neyðina, við
sjáum einstaklinga sem hafa orðið
eiturlyfjum að bráð eða áfenginu,
sem þrá virkilega að losna út úr því.
Þegar maður sér Guð geta breytt lífi
fólks langar mann að vera verkfæri í
hendi Guðs,“ segir Vörður.
Eftir að Vörður og Esther höfðu
unnið og starfað á Akureyri í 17 ár
fundu þau fyrir því að þau þyrftu á
breytingum að halda. Þau ákváðu að
taka sér ársfrí og fóru til Noregs og
unnu á meðferðarheimili. „Þá feng-
um við beiðni um að koma heim og
taka við söfnuðinum hér. Mér fannst
það reyndar frekar stór biti en við
fundum bæði að Guð leiddi okkur
í þetta og ákváðum við því að segja
já við því. Hér höfum við verið í ára-
tug og söfnuðurinn hefur vaxið mjög
á þeim tíma,“ segir hann. „Ég myndi
segja að Guð hafi gefið mér náð.“
Fyrir tveimur árum voru þau síð-
an valin til að vera hirðar hreyfing-
arinnar. „Við notum orðið hirðir,
við notum ekki orðið biskup. Okkar
þjónusta er að taka utan um söfn-
uðina úti á landi og styrkja þá, vera
hirðar hirðanna, forstöðumenn for-
stöðumannanna án þess að ég sé
einhver páfi eða biskup. Í því felst
líka að ég er talsmaður hvítasunnu-
hreyfingarinnar á Íslandi út á við.“
Samþykkja ekki samkynhneigð
Hvítasunnusöfnuðurinn sam-
þykkir ekki samkynhneigð. „Sam-
kynhneigðir eru einstaklingar sem
Guð elskar. Við höfum ekki efni á að
lítilsvirða þá eða aðra en út frá Guðs
orði getum við ekki samþykkt sam-
kynhneigð. Þetta er eins og margt
annað, þetta á ekki bara við um sam-
kynhneigð, til dæmis lauslæti. Það
er líka eitt af því sem Guð vill ekki að
við gerum vegna þess að við eigum
að varðveita líkama okkar.“
En er Vörður Leví alveg innst í
hjarta sínu sannfærður um að það
að samþykkja ekki samkynhneigð sé
í anda Guðs? „Já, vegna þess að Guð
hefur skapað okkur. Hann skapaði
manninn og konuna fyrir hvort ann-
að, þannig gerði hann okkur. Ef hann
hefði viljað að karlmenn væru með
karlmönnum og konur með kon-
um hefði hann skapað okkur svolítið
öðruvísi. Í gegnum okkar starf höfum
við séð að það eru svo margar afleið-
ingar af því sem fólk gerir.“
föstudagur 7. september 200728 Helgarblað DV
Læknar samkynhneigð
Vörður Leví Traustason er prestur hvítasunnusafnaðarins Fíladelfíu. Hann
ætlaði aldrei að verða prestur. Starfaði við bifvélavirkjun og var lögreglu-
þjónn um áraraðir en fann svo að Guð kallaði á hann í þjónustu sína. Hvíta-
sunnufólk hafnar þróunarkenningunni og trúir því að Guð hafi skapað mann-
inn í þeirri mynd sem hann er. Það samþykkir ekki samkynhneigð og Vörður
segist geta hjálpað samkynhneigðum til betra lífs með hjálp Guðs og bænar-
innar. Sigríður Dögg Auðunsdóttir ræddi við hann. með Guðs hjálp
Vörður Leví um kirkjuna: „Kirkjan hér er ekki fullkomin. Ég lít oft á hana sem bílaverkstæði, þangað koma klesstir bílar,
ryðgaðir, bremsulausir og í alls konar ásigkomulagi. Þeir fara hins vegar út af verkstæðinu í lagi. Þannig er kirkjan. fólk kemur
hingað í alls kyns ásigkomulagi en meistarinn hér er Jesús sjálfur.“
„Karlmennirnir eiga að
vera höfuð heimilisins,
fyrst og fremst andlegt
höfuð heimilisins. Þeir
eiga að vera þessi hlíf
konunnar sinnar og
barnanna sinna, þessi
andlega vernd.“
„Samkynhneigðir eru
einstaklingar sem Guð
elskar. Við höfum ekki
efni á að lítilsvirða þá
eða aðra en út frá Guðs
orði getum við ekki
samþykkt samkyn-
hneigð.“