Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.2007, Síða 30
föstudagur 7. september 200730 Sport DV
ALLTAF MÖGULEIKI Á SIGRI
Það hefur varla farið framhjá nein-
um að Ísland og Spánn mætast í
landsleik á Laugardalsvelli á morg-
un. Það er skammt stórra högga á
milli hjá liðinu því á miðvikudag-
inn koma Norður-Írar í heimsókn.
Íslenska liðið æfir af kappi þessa
dagana, þar á meðal Eiður Smári
sem gerir sér vonir um að taka ein-
hvern þátt í leiknum gegn Spán-
verjum og vera svo klár í slaginn
gegn Norður-Írum.
Eyjólfur Sverrisson
landsliðsþjálfari hefur legið undir
ámæli að undanförnu. Árangur
liðsins hefur ekki verið eins og
best verður á kosið og Ísland er
í næstneðsta sæti F-riðils, stigi á
undan Lettum og með jafnmörg
stig og Liechtenstein. Ljóst er að
liðsins bíður erfitt verkefni gegn
Spánverjum. Eyjólfur segist þó fara
í alla leiki til að vinna.
„Við erum alltaf með væntingar.
Við viljum koma vel út úr þessum
leikjum, við eigum alltaf möguleika
á sigri. En það verður allt að ganga
upp á móti Spánverjum. Þeir ætla
sér að vinna og reikna með erfiðum
leik. Við vitum að þetta verður erf-
iður leikur og við verðum að vera í
toppstandi. Þá getur allt gerst. Við
förum inn í alla leiki til að vinna,
svo sjáum við til hvað við getum
haldið þeim lengi.
Ég reikna með að þeir verði
meira með boltann og reyna að
sækja á okkur. Þeir reyna að sækja
upp miðjuna og kantana og við
verðum að loka því vel og taka
skyndisóknir og nýta föst leikatriði.
Þar er okkar möguleiki,“ sagði Eyj-
ólfur.
Eiður Smári Guðjohnsen hefur
átt við meiðsli í hné að stríða að
undanförnu. Hann hefur hins vegar
æft með landsliðinu í vikunni og
gerir sér vonir um að taka einhvern
þátt í leiknum gegn Spánverjum.
Eyjólfur sagði að það væri allt opið
í þeim efnum.
„Hann lítur bara vel út á æfing-
um. Það er allt í lagi með hann,
eins og hann var búinn að segja
við okkur. Við verðum bara að sjá
til hvernig þetta þróast núna. Það
væri gott ef við gætum notað hann,
hann gæti komið inn á ef við þurf-
um á honum að halda. Hann gæti
snúið leiknum fyrir okkur, hann er
góður í því,“ sagði Eyjólfur.
Í íslenska landsliðinu er nokk-
uð um forföll. Brynjar Björn
Gunnarsson, leikmaður Read-
ing, er meiddur auk þess sem
markahæsti leikmaður Landsbanka-
deildarinnar Helgi Sigurðsson
er tognaður í læri. Ekki verða
valdir leikmenn í þeirra stað en
upphaflega voru valdir 22 leikmenn
í landsliðshópinn og standa því 20
leikmenn eftir. Eyjólfur segir að það
hafi verið áfall að missa Brynjar
Björn og Helga.
„Þetta eru leikmenn sem
eru í fantaformi og hafa verið í
svakalegu formi í síðustu leikjum.
Brynjar hefur verið einn okkar
besti maður með landsliðinu. En
það er svona, við erum að ekkert
að kvarta yfir því. Þá verða aðrir að
hlaupa í skarðið og aðalmálið er að
menn séu stoltir af því að spila fyrir
landsliðið á laugardaginn og gefi
sig 110 prósent í þetta. Það er það
sem skiptir máli,“ sagði Eyjólfur.
Algjör lykilleikur
Luis Aragones skildi enn á ný
Raúl eftir í 20 manna landsliðshópi
sínum sem mætir Íslandi og Lettum.
Hann sagði á blaðamannafundi
þegar hann tilkynnti liðið að
Antonio Puerta, sem lést langt um
aldur fram úr hjartaáfalli, hefði
verið áfram í liðinu.
Samherji Raúl hjá Real Madr-
id, Miguel Torres, segir að auðvitað
hefði Raúl átt að vera í liðinu. „Ég
hef alltaf verið mikill stuðnings-
maður Raúl. Ég skil ekki af hverju
hann hefur fengið svona mikla
gagnrýni á sig undanfarin ár. Það
sem hann leggur á sig, bæði á æf-
ingum og leikjum, er alveg ótrú-
legt. Ég styð heilshugar að hann
verði aftur valinn í liðið því ég tel að
það muni aðeins hjálpa Spáni.“
Aragones valdi Cesc Fabregas
í liðið þrátt fyrir að hann væri í
banni í leiknum við Ísland. „Þetta
eru tveir mikilvægir leikir og við
viljum vinna báða. Hins vegar
gengur okkur ekkert sérstaklega vel
á sumum völlum og Reykjavík er
einn af þeim.“
Hinn eldfljóti og magnaði
kantmaður Valencia, Joaquin, segir
að Spánverjar geti engan veginn
vanmetið íslenska liðið, því misstígi
liðið sig er það komið upp við vegg.
„Við vitum að þeir munu ekki gera
okkur auðvelt fyrir. Við vitum að þeir
eru með gott lið. Við sáum það síðasta
ár. Þessi leikur er algjör lykilleikur
fyrir okkur og við verðum að vera
tilbúnir. En við verðum að einbeita
okkur að okkur sjálfum, spila okkar
leik og vonandi vinna hann.“
Joan Capdevila er á ný kominn
í hópinn en þessi varnarmaður
Villarreal fékk fimm mörk á sig um
síðustu helgi gegn Real Madrid.
„Enginn í hópnum býst við tapi. Það
er einfaldlega ekki í okkar huga. Við
erum að spila um sex mikilvæg stig
sem eru í boði og við verðum að taka
þau öll. Stigin eru það sem skiptir
máli, ekki hvort við spilum vel eða
illa. Leikurinn gegn Íslandi verður
erfiður þar sem við erum á útivelli
en við verðum að hugsa eins og
sigurvegarar og gera engin mistök.“
dAgur sveinn dAgbjArtsson
blaðamaður skrifar: dagur@dv.is
Íslenska liðið
Markverðir: Árni gautur arason
(Vålerenga), daði Lárusson (fH)
varnarmenn: Hermann Hreiðarsson
(portsmouth), Ívar Ingimarsson
(reading), Kristján örn sigurðsson
(brann), Hjálmar Jónsson (göteborg),
ragnar sigurðsson (göteborg), sverrir
garðarsson (fH), grétar rafn steinsson
(aZ alkmaar).
Miðjumenn: arnar Þór Viðarsson (de
graafschap), Jóhannes Karl guðjóns-
son (burnley), Kári Árnason (agf
Århus), emil Hallfreðsson (reggina
Calcio), Ólafur Ingi skúlason
(Helsingborg), baldur Ingimar
aðalsteinsson (Val), Ásgeir gunnar
Ásgeirsson (fH).
sóknarmenn: eiður smári guðjohn-
sen (barcelona), Veigar páll gunnars-
son (stabæk), gunnar Heiðar
Þorvaldsson (Vålerenga), Ármann
smári björnsson (brann).
spænska liðið
Markverðir: Iker Casillas (real
madrid), pepe reina (Liverpool).
varnarmenn: pablo Álvarez (atletico
madrid), mariano pernía (atletico
madrid), Juanito gutiérrez (real betis),
sergio ramos (real madrid), Carlos
marchena (Valencia), Ángel López
(Villarreal), Joan Capdevila (Villarreal).
Miðjumenn: Xabi alonso (Liverpool),
Cesc fabregas (arsenal), andrés
Iniesta (barcelona), david silva
(Valencia), Xavi Hernández (barce-
lona), david albelda (Valencia),
miguel Ángel angulo (Valencia),
Joaquin (Valencia).
Framherjar: david Villa (Valencia),
fernando torres (Liverpool), Luis
garcía (espanyol).
Það eru engir aukvisar í
spænska landsliðinu sem mætir
því íslenska á Laugardalsvellin-
um á morgun. eyjólfur sverris-
son landsliðþjálfari segir að
íslenska liðið fari í alla leiki til
að vinna, þótt það verði við
ramman reip að draga gegn
Spánverjum.
erfitt verkefni eyjólfur segir að
Ísland verði að nýta sér
skyndisóknir og föst leikatriði í
leiknum gegn spánverjum.
DV-MYNDIR STEFÁN
verður eiður klár? eiður smári guðjohn-
sen hefur æft á fullu með landsliðinu í
vikunni og gerir sér vonir um að taka
einhvern þátt í leiknum gegn spánverjum.