Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.2007, Page 31
DV Sport föstudagur 7. september 2007 31
Monza-brautin á Ítalíu
verður vettvangur helgarinnar í
Formúlu 1. Baráttan um heims-
meistaratitilinn er farin að
harðna, því aðeins fimm umferðir
eru eftir. Lewis Hamilton leiðir
enn keppni ökumanna, þrátt fyrir
harða atlögu Ferrari-mannanna
Kimi Räikkönen og Felipe Massa
og ríkjandi heimsmeistarans Fern-
ando Alonso, samherja Hamilton
hjá McLaren.
Ítalíukappaksturinn er einn
af tveimur keppnisvettvöngum
sem hefur verið hluti af Formúlu
1-mótaröðinni frá stofnun
keppninnar í núverandi mynd
árið 1950. Hinn vettvangurinn er
breski kappaksturinn.
Michael Schumacher vann
Ítalíukappaksturinn á síðasta
ári. Eftir keppnina tilkynnti Schu-
macher að hann hygðist hætta í
Formúlu 1. Tveir ökumenn sem
enn eru að hafa hrósað sigri á
Monza. Rubens Barrichello hefur
tvisvar unnið, 2004 og 2002, og
David Coulthard fagnaði sigri árið
1997.
Lewis Hamilton - McLaren
„Monza er sögulegur
kappakstur, það er því nokkuð
sérstakt að keppa þar. Þetta er
frábær braut. Þú ert með löngu
beinu kaflana og nokkrar mjög
hraðar beygjur. Ég keppti þar
fyrst í fyrra í GP2 og það er mjög
eftirminnileg helgi, því þar tryggði
ég mér heimsmeistaratitilinn.
Vonandi mun ég eiga eins góða
keppni á þessu ári og eignast frá-
bærar minningar fyrir framtíðina.
Ég man að það er ekki auðvelt að
setja upp keppnisáætlun á þess-
ari braut, þannig að æfingarnar í
þessari viku voru mjög gagnlegar.
Brautin reynir mjög mikið á bílinn
og þú þarft að nota beygjurnar til
að ná góðum tíma.“
Fernando Alonso - McLaren
„Monza-brautin er ólík öllum
öðrum brautum á tímabilinu, þar
snýst allt um hraða. Bílinn virkar
alltaf öðruvísi, mjög léttur og oft
virðist maður ekki hafa stjórn
á honum. Ástæðan er það litla
niðurtog sem við notum, til að ná
meiri hraða. Vængirnir verða þeir
þynnstu sem við notum og bílinn
verður að mörgu leyti stilltur inn á
Monza-brautina.
Með lítið niðurtog þarf að
aðlagast öðrum hlutum, eins og
bremsujafnvægi og uppbyggingu
bílsins til að ná góðu gripi í
beygjum. Við prófuðum þessa
hluti á brautinni í vikunni og við
fengum góð viðbrögð, þannig að
ég er jákvæður fyrir keppnina.
Þetta verður áskorun, en þetta
er sérstök braut og það er frábær
tilfinning að keppa hérna. Ég á
engar góðar minningar frá keppn-
inni í fyrra, en þetta er braut sem
mig langar mjög mikið að vinna á
og vonandi tekst það í ár.“
Kimi Räikkönen - Ferrari
„Ég er að fara að keppa á Monza
í fyrsta sinn sem ökumaður Ferrari
og það verður mjög sérstakt að finna
fyrir stuðningi áhorfenda. Ég get
ekki beðið eftir að sjá fánana með
hestinum prjónandi í stúkunni.
Ég hef alltaf kunnað vel við
andrúmsloftið á þessari braut. Það
komu margir aðdáendur að horfa á
okkur á æfingu og það er gott að vita
að þú getur treyst á stuðning þeirra.
Þetta er mjög sérstök braut frá
tæknilegu sjónarmiði. Hún er ólík
öllum öðrum. Þú þarft gott loftflæði
svo þú haldist stöðugur í beygjum,
til að ná hraða. En þú þarft líka góða
vél, þar sem þú gefur allt í botn í
flestum hringjum.
Ferrari hefur verið mjög
sigursælt hér í gegnum tíðina.
McLaren hefur einnig staðið sig
vel þau ár sem ég ók fyrir liðið, en
af einhverjum ástæðum hef ég
ekki enn náð að vinna. Vonandi
tekst það núna, með því að standa
sig vel frá föstudagsmorgni til
sunnudagskvölds. Að vinna á
heimavelli Ferrari væri frábær
tilfinning.“
Rubens Barrichello - Honda
„Monza er klárlega ein af
sérstökustu keppnum á Formúlu 1
dagatalinu og það er mikill heiður að
keppa á þessari goðsagnarkenndu
braut. Sumar af mínum uppáhalds
minningum eru af þessari braut,
sérstaklega sigrar mínir hér 2004 og
2002. Andrúmsloftið alla vikuna er
sláandi og þú finnur virkilega fyrir
sögu allra frábæru kappakstranna
sem hafa farið fram í gegnum
tíðina.
Hvað brautina varðar er Monza
hraðasta brautin, með löngum
beinum köflum þar sem hraðinn
verður allt að 340 km/h. Orkan í
vélinni verður því að vera mikil.“
Hvað segja öku-
menn um Monza?
HEIMAVÖLLUR FERRARI
keppni ökumanna:
Ökumaður Lið Stig
1. Lewis Hamilton mcLaren 84
2. fernando alonso mcLaren 79
3. felipe massa ferrari 69
4. Kimi räikkönen ferrari 68
5. Nick Heidfeld bmW 47
6. robert Kubica bmW 29
7. Heikki Kovalainen renault 19
8. giancarlo fisichella renault 17
9. alexander Wurz Williams 13
10. Nico rosberg Williams 9
11.-12. mark Webber red bull 8
11.-12. david Coulthard red bull 8
13. Jarno trulli toyota 7
14. ralf schumacher toyota 5
15. takuma sato super aguri 4
16.-17. Jenson button Honda 1
16.-17. sebastian Vettel str-ferrari 1
Aðrir eru með 0 stig.
keppni bílasmiða:
Lið Stig
1. mcLaren 148
2. ferrari 137
3. bmW 77
4. renault 36
5. Williams 22
6. red bull 16
7. toyota 12
8. super aguri 4
9. Honda 1
10.-11. str-ferrari 0
10.-11. spyker 0
13. umferðin af sautján í Formúlu fer fram á Monza-braut-
inni á Ítalíu um helgina. Brautin er með langa beina kafla
sem bjóða upp á mikinn hraða og tíða framúrakstra.
Góður stuðningur ferrari
fær venjulega góðan
stuðning á monza-brautinni.
ALLTAF MÖGULEIKI Á SIGRI