Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.2007, Síða 43
DV Helgarblað föstudagur 7. september 2007 43
Gull oG eðalsteinar íshokkíleikmannsins
metið í skólann hérna úti og tek því
sveinsprófið mitt í október 2009.“
Vann í steypiríinu í ár
Partur af gullsmíðanáminu er
að komast á samning sem nemi hjá
gullsmið og má segja að Breki hafi
ekki ráðist á garðinn þar sem hann
er lægstur þegar hann fór að leita
sér að námssamningi en hann er í
læri hjá hinum þekkta gullsmið, Ole
Lyyngard. „Ole er annar þekktasti
gullsmiður Danmerkur á eftir Georg
Jensen en Jói, félagi minn, lærði hjá
honum og reddaði mér viðtali. Ég
fékk reyndar ekki samning alveg
strax því það var ekki laust nemapláss
þegar ég sótti um. Ég fékk síðan
hringingu þar sem mér var sagt að
ég mætti koma og vinna í svokölluðu
steypiríi í ár þar til ég kæmist á
samning.“ Jónas tók þeirri vinnu og
var í steypiríinu í ár þar til í janúar
síðastliðnum þegar hann komst á
námssamninginn. „Þar sem þetta er
svona gríðarlega stórt fyrirtæki eru
hlutirnir oft fjöldaframleiddir og unnir
í steypiríinu. Þar er allt fyrst búið til úr
vaxi og því næst steypt í gull. Það var
mjög mikil reynsla fyrir mig að fá að
vinna þarna og læra eitthvað sem er
annars takmarkað kennt í skólanum.
Ég hefði til dæmis að öllum líkindum
ekki haft tök á að gera mikið af þeim
skartgripum sem ég er að gera í dag
ef ég hefði ekki unnið í steypiríinu og
lært svona mikið þar.“
Gerir það sem hann langar til
Skartgripirnir hans Breka eru mjög
fjölbreyttir en hann hannar skart fyrir
bæði stelpur og stráka. „Það er mjög
erfitt að lýsa skartinu mínu á ákveðinn
hátt en ég held ég geti allavega sagt að
það sé frekar ævintýralegt en ég hef
alltaf bara gert það sem mig langar
að gera og geri í raun hvað sem er.
Ég vinn mikið með bogalaga form og
fallega steina fyrir stelpurnar. Ég hef
líka hannað mjög mikið fyrir stráka
því mér finnst alveg vöntun á töff
skarti fyrir karlkynið og þar hef ég
unnið mikið með hauskúpuþema,“
segir Breki en bætir því við að hann
geti smíðað hvað sem er og þegar
fólk hafi samband við hann í gegnum
heimasíðuna hans geri hann það
sem viðskiptavinirnir óska eftir. „Ég
er ekkert með neitt verð eða beint
að selja neitt inni á myspace-síðunni
minni en þar eru samt myndir af því
sem ég hef verið að gera og fólki er
velkomið að hafa bara samband við
mig ef það hefur áhuga á að kaupa
eitthvað frá mér.“
Safnar eðalsteinum
„Ég er byrjaður að vinna mikið
með gull og silfur og hvítagull að
undanförnu og er farinn að safna
að mér miklu af eðalsteinum,“
segir Breki spurður um uppáhalds
efniviðinn sinn. „Ég kaupi flesta
eðalsteinana frá Taílandi en það er
maður að vinna með mér sem er
sérfræðingur í eðalsteinum og gengur
alltaf úr skugga um að allir steinarnir
sem ég kaupi séu ekta. Þú þarft að
vera sérfræðingur til að geta séð það
og það er notað sérstakt tæki til að
greina hvort um ekta eða gervisteina
er að ræða. Það er alls ekkert sjálfgefið
að þótt maður sé gullsmiður sjái
maður muninn. Það er eins með
demantana, það er mikið af fólki
sem kaupir sér ódýra demantshringa
úti á Spáni eða í sólarlöndum en í
níutíu og níu prósentum tilvika er
fólk að fjárfesta í skartgripum með
svokölluðum zirkon-steinum eða
gervidemöntum.“
Planið að opna verslun
Jónas Breki býr ásamt kærust-
unni sinni henni Gúrý og eins árs
gamalli dóttir þeirra á Islands-
brygge í Kaupmannahöfn og líkar
fjölskyldunni lífið í Danmörku eink-
ar vel. „Kærastan mín hefur verið að
læra fatahönnun hér úti en tók sér
smá pásu eftir að við eignuðumst
Ísabellu svo hún á þrjá mánuði eftir
af náminu sínu. Hún heldur líka úti
tískuverslun á myspace sem heit-
ir Shop Copenhagen. Þar selur hún
tískuföt sem hún bæði kaupir inn og
hannar svo sjálf alveg helling af föt-
um. Það má því segja að við séum
svona eins konar hönnunarpar,“
segir Jónas og hlær.
„Planið hjá okkur er svo að opna
verslun hérna í Kaupmannahöfn
ásamt Einari Þór, félaga okkar, en
hann hefur verið að hanna mjög flott
leðurarmbönd undir merkinu Thors
Design. Ætlunin er þá að opna verslun
fyrir stráka og stelpur sem selur fatnað
og skart. Ég reyndar mætti ekki opna
verslun undir mínum merkjum á
meðan ég vinn hjá svona stóru fyrirtæki
því vinnuveitendur mínir samþykkja
það ekki og líta á allt sem samkeppni,“
segir Jónas en vörumerki hans er Breki
design. „Ég myndi þá bara selja svona
einn og einn gullhring eða eitthvað
þar til ég er búinn með námið,“ segir
íshokkíleikmaðurinn og gullsmiðurinn
Jónas Breki að lokum. Hægt er að
kaupa fatnað eftir Gúrý á síðunni
myspace.com/shopcopenhagen og
skoða myndir af verkum hans Breka
á síðunni myspace.com/brekidesign.
„Það er mjög erfitt að lýsa skartinu mínu á
ákveðinn hátt en ég held ég geti allavega sagt að
það sé frekar ævintýralegt en ég hef alltaf bara
gert það sem mig langar að gera og geri í raun
hvað sem er. Ég vinn mikið með bogalaga form
og fallega steina fyrir stelpurnar.“
Jónas Breki Íshokkíleikmaður og gullsmiður.
„Ég fékk alveg delluna
eftir þetta námskeið en
ákvað að reyna ekkert
að komast á samning
fyrr en ég væri hættur
í hokkíinu því ég vildi
náttúrulega fyrst og
fremst verða atvinnu-
maður í hokkí.