Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.2007, Side 56

Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.2007, Side 56
föstudagur 7. september 200756 Helgarblað DV TónlisT Í kvöld, föstudag, mun plötusnúðurinn Chris Lake spila á Broadway á vegum Techno.is en einnig munu þeir Exos, Danni Bigroom og plötusnúðateymið Plugg‘d þeyta skífum. Chris Lake er eitt heitasta nafnið innan danstónlistarheimsins í dag en hann skaust upp á stjörnuhimininn með laginu Changes sem náði gríðarlegum vinsældum um allan heim. Í kjölfarið gaf hann út sumarsmellinn Carry me Away sem ætti að vera Íslendingum góðkunnugt. Chris Lake hefur ferðast hringinn í kringum hnöttinn á örskömmum tíma og spilað á öllum helstu og stærstu skemmtistöðum og klúbbum heims. Chris kom sjóðheitur til landsins eftir að hafa spilað á Ibiza eftir vel heppnaðan Ástralíu- og Asíutúr. Í október hyggst hann svo skella sér í tónleikaferð um Suður-Ameríku. Plötusnúðurinn hefur fengið mikinn stuðning og hrós frá nokkrum af þekktari dansplötusnúðum heimsins í dag, meðal annars Sasha, Sander Kleinenberg og Pete Tong sem sér um danstónlistarþáttinn The Essential Mix. Tong kynnti Chris sem eina björtustu von Skotlands í útvarpsþætti sínum eftir að Chris gaf út plötuna Essential New Tune. Hægt er að nálgast miða á þennan stórdanstónlistarviðburð í verslun All Saints í Kringlunni og er miðaverð tvö þúsund krónur. Allar nánari upplýsingar um viðburðinn er hægt að nálgast inni á techno.is. Hip hop-kvöld á Organ Á skemmtistaðnum Organ mun verða haldin heljarinnar hip hop-gleði á morgun, laugardag. tilefnið er að ný og endurbætt heimasíða, hiphop.is, verður opnuð sama dag. Þeir sem fram koma á Organ eru meðal annarra móri, sesar a auk blaz roca, bent og dabbi t . einnig verða óvæntar uppákomur og lifandi hip hop-tónlist allt kvöldið. aldurstak- mark er tuttugu ár og miðaverð einungis fimm hundruð krónur. Tónlistarakademía DV segir Hlustaðu á þessa! Carry around – annuals an end has a start – editors Carry on – Chris Cornell the midnight Circus – Vilhelm With Lasers – bonde de role Endurkoma Zeppelin forsprakki Led Zeppelin, robert plant, hefur nú staðfest að sveitin ætli að koma saman á nýjan leik í lok árs. mikið hafði verið talað um endur- komu sveitarinnar en ekkert fengist staðfest þar til aðdáandi plants mætti honum á förnum vegi í fyrradag og tók hann tali en plant sagðist vera á leiðinni að hitta hina meðlimi sveitarinnar, þá Jimmy page og John paul Jones. aðdáandinn setti sig strax í samband við tónlistaratímaritið Nme sem hafði samband við plant og spurði hann nánar út í endurkomuna. plant svaraði þá: „Já, við ætlum að hittast í kvöld en það er svo sem ekki mikið að tala um þar sem það verða einungis haldnir einir tónleikar.“ Mega 90‘s helgi Heljarinnar 90‘s helgi er fram undan en Curver og Kiki Ow hafa gert allt vitlaust með 90‘s tónlist og glowsticks á Nasa í síðustu partíum. Nú er Curver aftur á móti fluttur til New York en kom sérstaklega til landsins til að standa fyrir 90‘s gleði, bæði á akureyri og í reykjavík. Í kvöld, föstudagskvöld, er partíið á sjallanum akureyri en annað kvöld verður það á skemmtistaðnum Nasa við austur- völl. miðasala fyrir partíið á akureyri fer fram á Café amor og í pennanum en fyrir partíið á Nasa er hægt að nálgast miða á midi.is og í versluninni spúútnik. Eitt þekktasta nafnið innan danstónlsitarheimsins í dag er plötusnúðurinn Chris Lake en hann mun skemmta dansþyrstum Íslendingum á skemmtistaðnum Broadway í kvöld. Chris Lake þeytir skífum á Broadway: Chris Lake spiLar Á brOadWaY Í KVöLd Tónlistarmaðurinn halldór Örn rúnarsson ákvað ásamt Mása félaga sínum að senda inn lagið Day Like This One í tónlistarkeppni sem Levi‘s og Vice-útgáfufyrirtækið standa fyrir á Norðurlöndum. Lagið er nú í þrettánda sæti yfir mest spiluðu lögin af rúmlega fimm hundruð lögum sem taka þátt í keppninni en tólf lög verða valin á sérstakan Levi‘s-geisladisk. Gallabuxnafyrritækið Levi‘s í samvinnu við Vice-útgáfufyrir- tækið hefur undanfarið staðið fyrir lagakeppni á Norðurlönd- um en fyrirtækin leita eftir tólf skandinavískum lögum til að fara á sérstakan Levi‘s-geisladisk auk þess sem eitt af sigurlög- unum verður notað sem sérstakt þemalag fyrir Levi‘s. Um fimm hundruð lög eru í keppninni og þar af níutíu og átta lög frá Ís- landi. Halldór Örn Rúnarsson er einn af þeim sem ákváðu að taka þátt en lagið hans, Day Like This One, situr í þrettánda sæti yfir mest spiluðu lögin í keppninni og má með sanni segja að það sé gríðargóður árangur. „Ég er í hljómsveit sem heitir Dog Days en lagið sem að ég sendi inn er í raun bara sólóverkefni hjá mér og gítarleikaranum Mása. Við vorum bara eitthvað að fíflast að gera lag og þá datt þetta bara inn hjá okkur. Ég hafði lesið um þessa keppni í DV og ákvað að senda bara lagið inn,“ segir Halldór. Dómnefndin velur tólf lög Sérstök þriggja manna dómnefnd, skipuð aðilum frá Vice og Levi‘s sér svo um að velja tólf lög sem þeim þykja eiga einna best við fyrir Levi‘s og munu þau lög mynda sérstaka Levi‘s-hljóm- plötu. „Platan á víst að koma út á næsta ári og mér skilst að það verði haldnir sérstakir tónleikar í Stokkhólmi þar sem flytjendur sigurlaganna koma fram. Það gátu bara allir tekið þátt í keppn- inni, lögin þurftu ekkert endilega að vera alveg fullkláruð og máttu þess vegna bara vera einhverjar demóupptökur. Okkur lag er til dæmis ekki fullklárað. Það voru flestir sem sendu inn tvö til þrjú lög en við sendum bara inn eitt því það var eina lagið sem okkur datt í hug,“ segir Halldór en lagið Day Like This One hef- ur nú verið spilað um það bil þrjú hundruð og fimmtíu sinnum. „Dómnefndin er núna að velja lögin og svo verða sigurvegararnir tilkynntir í nóvember. Það að lagið sé svona ofarlega er náttúru- lega mjög gott upp á það að gera að dómnefndin tekur kannski frekar eftir því en lagið okkar er svona einhvers konar nýbylgju- popprokk en svo getur vel verið að dómnefndin sé að leita eftir einhverju miklu rokkaðra eða einvherju allt öðru,“ en lagið sem Halldór sendi inn er skráð undir listamannsnafninu Runarsson en af öðrum íslenskum hljómsveitum sem tóku þátt í keppn- inni má nefna Steed Lord, Úlpu, Noise, Búdrýgindi og Worm Is Green. Latasta bílskúrsband landsins Halldór og Mási eru annars báðir í rokkhljómsveit sem heit- ir Dog Days ásamt þeim Jóhannesi trommuleikara og Tóta bassa- leikara. „Við titlum okkur sem latasta bílskúrsband á landinu. Við höfum verið frekar óduglegir við að spila en spiluðum samt á Air- waves og svo á X-mas-tónleikum sem útvarpsstöðin X-ið stóð fyr- ir árið 2004 en þá kom ég einmitt inn í sveitina sem söngvari. Við erum samt alltaf að taka upp og erum með okkar eigið stúdíó en erum frekar að einbeita okkur að því að hafa gaman af tónlistinni í staðinn fyrir að drífa okkur í gera einhverja plötu,“ segir Halldór að lokum. Spennandi verður að sjá hvernig íslensku þáttakendunum vegnar í Levi‘s-keppninni en áhugasamir geta kíkt inn á heimasíð- una levissounds.com og hlustað á þau lög sem taka þátt í keppn- inni. krista@dv.is halldór rúnarsson er í góðu róli í tónlistarkeppni á vegum Levi‘s og Vice. DVmynd Ásgeir Mest spilaða íslenska lagið

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.