Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.2007, Síða 59
Heiðursgestur
á RIFF
Finnski kvikmyndaleikstjórinn Aki
Kaurismäki mun verða einn
heiðursgesta á Alþjóðlegu
kvimyndahátíðinni í Reykjavík sem
fer fram í lok september og byrjun
október. Kaurismäki mun veita
sérstökum verðlaunum viðtöku
fyrir framúrskarandi listræna
kvikmyndasýn. Kaurismäki er einn
þekktasti leikstjóri Norðurlanda.
Hann var tilnefndur til
Óskarsverðlauna 2003 en sniðgekk
hátíðina og notaði tækifærið til
þess að gagnrýna stríðsbrölt
Bandaríkjamanna.
föstudagur 7. september 2007DV Bíó 59
Kvikmyndin Veðramót er frumsýnd
í kvöld. Myndin fjallar um þrjá bart-
sýna byltingarsinna, Selmu, Blöffa
og Hálfdán, sem leikin eru af Tinnu
Hrafnsdóttur, Hilmi Snæ Guðnasyni
og Atla Rafni Sigurðasyni. Saman fara
þau norður í land og taka að sér stjórn
á vistheimili fyrir vandræðaunglinga.
Þegar á heimilið er komið kynnast þau
vistmönnum og háttum, en nýlega hefur
verið tekin upp sú nýbreytni að stúlkum
sé hleypt inn á heimilið. Uppfull af hug-
sjónum 68‘ kynslóðarinnar reyna þau
að notast við öðruvísi og mannúðlegri
vinnubrögð en krakkarnir hafa áður
kynnst. En innan skamms uppgötva þau
að hugsjónirnar, sem þau lögðu upp
með duga ekki alstaðar. Það er Guðný
Halldórsdóttir sem bæði leikstýrir
kvikmyndinni og skrifar handrit hennar,
en sagan er að vissu leyti byggð á reynslu
Guðnýjar. En hún fór árið 1974 ásamt
bæði kærasta og vinum á hið umdeilda
upptökuheimili að Breiðuvík, þar sem
þau reyndu að breyta staðarháttum.
Valinn maður á hverjum stað
Upptökur á myndinni fóru flestar
fram árið 2006, á Snæfellsnesi, í
Reykjavík og Kaupmannahöfn. Það er
norski kvikmyndatökumaðurinn Sven
Krövel sem var á bak við myndavélina,
en DV birti í gær ítarlegt viðtal við
hann. Af öðru þekktu fagfólki sem
vann í myndinni má nefna Rebekku A
Ingimundardóttur sem sá um búninga
og Svíann Tonie Zetterström sem sá um
leikmynd, en áður hafði hann séð um
leikmyndir í kvikmyndum á borð við
Mávahlátur, Dansinn, Ungfrúna góðu
og húsið og Hafið.
Leikstjórabörn í helstu
hlutverkum
Þeir sem fara með hlutverk vist-
manna á heimilinu, eru flestallt
krakkar á menntaskólaaldri. Eftir að
hafa séð allar menntaskólasýning-
arnar árið 2006, hafði Guðný séð þó
nokkur andlit sem henni leist vel á;
Heru Hilmarsdóttur, Baltasar Breka
Baltasarsson, Gunni Martinsdóttur
Schluter og Arnmund Ernst Back-
mann. Ótrúlegt nokk eru það allt
saman börn kollega hennar, en Hera
er dóttir Hilmars Oddsonar, Baltasar
er sonur Baltasar Kormáks, Gunn-
ur er dóttir Ásdísar Thoroddsen og
Arnmundur sonur Eddu Heiðrún-
ar Backmann. Þá ber að taka fram
að Tinna Hrafnsdóttir, sem leikur
eitt af aðalhlutverkum myndarinn-
ar, er dóttir Hrafns Gunnlaugssonar.
Auk þeirra fyrrnefndu leika í mynd-
inni Ugla Egilsdóttir, Jörundur Ragn-
arsson, Þorsteinn Bachman, Tinna
Gunnlaugsdóttir, Jóhann Sigurðar-
son, Þórey Sigþórsdóttir og Þorsteinn
Gunnarsson.
Hippaband fyrir hippamynd
Ragnhildur Gísladóttir, fyrrum
Stuðmaður, sér um tónlist myndar-
innar. En til þess að fanga anda þess
tímabils sem myndin gerist á, brá
Ragnhildur á það ráð að leita til gam-
alkunnra tónlistarmanna til þess að
vinna tónlistina. Upp úr krafsinu kom
bandið Shady, sem samanstendur af
Björgvini Gíslasyni gítarleikara, Jó-
hanni Hjörleifssyni trymbli, Haraldi
Þorsteinssyni bassaleikara og Davíð
Þór Jónssyni píanóleikara. Um söng-
inn sjá Hilmir Snær, Ragnhildur sjálf
og dóttir hennar Bryndís Jakobsdótt-
ir. Þá samdi Bryndís eitt lag myndar-
innar, sem móðir hennar svo útsetti.
Textahöfundar eru Valgeir Guðjóns-
son og Dóri DNA.
Um málefni líðandi stundar
Upptökuheimilið Breiðuvík hefur
verið töluvert milli tannanna á fólki
undanfarið. Veðramót smellur því vel
inn í þjóðfélagsumræðuna, því myndin
tekur á hinum ýmsu málefnum líðandi
stundar. Fyrst og fremst fjallar hún um
fórnarlömb kynferðisofbeldis sem áttu
sér engin úrræði á árum áður og sem
eru kannski engu betri, enn þann dag
í dag.
Tár og bros myndin
fjallar um þrjá
byltingarsinna sem
halda út á land til a
ð sjá
um upptökuheimili
fyrir vandræðaung
linga.
Gunnur Martinsdóttir, hundurinn Æska og Ugla Egilsdóttir
fara með hlutverk vistmanna heimilisins, þó svo að hundurinn verði seint talinn til vandræða.
KnocKEd Up
Gamanmynd sem fjallar
um mjög ólíkt fólk sem
hittist fyrir slysni og
endar í einnar nætur
gamni. Það endar í óléttu
og þá hefst hasarinn.
Sennilega ein besta
grínmynd ársins.
IMdb: 8.0/10
Rottentomatoes: 92%/100%
Metacritic: 85/100
I Know wHo KILLEd ME
Lindsay Lohan leikur
Aubrey Fleming sem er
rænt og hún pyntuð af
morðingja. Þegar hún
sleppur og rankar við
sér á sjúkrahúsi segist
hún ekki vera Fleming
en viti þó hvar hún sé
og að líf hennar sé enn
í hættu.
IMdb: 3.7/10
Rottentomatoes: 5%/100%
Metacritic: 16/100
BRATz: THE MoVIE
Mynd byggð á hinum
frægu teiknimynda- og
leikfangabrúðum.
Fjórar vinkonur eru á
fyrsta ári í framhalds-
skóla. Hópnum er
splundrað vegna
mikillar stéttaskipting-
ar innan skólans þar
sem formaður nem-
endaráðsins ræður öllu.
IMdb: 2.1/10
Rottentomatoes: 8%/100%
Metacritic: 21/100
Frumsýningar helgarinnar
Cornell áritar
í Skífunni
Heimsfrægi rokksöngvarinn Chris
Cornell mun veita eiginhandarárit-
anir í Skífunni á Laugavegi í dag
klukkan 16. Cornell er kominn til
landsins í tilefni af tónleikunum í
Laugardalshöll á laugardaginn.
Hann mun árita plötu sína Carry
On sem kom út nýverið og hefur
fengið góða dóma. Ennþá eru til
miðar á tónleikana á laugardag þó
uppselt sé í stúku. Cornell mun
taka alla stærstu slagarana frá ferli
sínum með sveitunum Soundgard-
en, Audioslave og Temple of the
Dog.
Útgáfutónleikar
Soundspell
Hin unga og efnilega hljómsveit
Soundspell heldur útgáfutónleika í
Austurbæ í kvöld í tilefni af útkomu
þeirra fyrstu breiðskífu. Platan
heitir An Ode to the Umbrella eða
Óður til regnhlífarinnar. Miðaverð
á tónleikana er 1500 krónur. Húsið
verður opnað klukkan 20 og hefjast
tónleikarnir klukkan 21. Platan
verður einnig seld á staðnum fyrir
1500 krónur. Áhugasömum býðst
þó að kaupa miða og plötuna
saman á 2500 krónur í forsölu á
tónlistarmarkaðinum Músík &
Myndir í Fellsmúla 28.