Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.2007, Page 62

Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.2007, Page 62
föstudagur 7. september 200762 Síðast en ekki síst DV Sandkorn n Blaðamenn og ljósmyndarar á vegum hönnunartímaritsins Wallpaper eru mætti hing- að til lands til þess að mynda kaffihúsið og skemmti- staðinn Prik- ið. Það er mjög mikil viðurkenning að komast á glanssíður tímaritsins enda virt í sínum geira og því verður þetta að teljast prýðis auglýsing fyrir Prikið. n Stöð 2 sýndi í vikunni kvik- mynd byggða á ævi leikkonunn- ar �a�al�e Wood. Mörgum sjónvarps- áhorfendum leið eins og þeir væru að horfa á söngkon- una B�rg���u Haukdal allan tímann, enda þær fögru konur svo ótrúlega lík- ar að Birgitta gæti hæglega verið dóttir Natalíu. n Á heimasíðunni odd�es.com er að finna lista yfir undarlega hluti hvaðanæva úr heiminum. Á lista yfir undarlegustu söfn í heiminum situr reður- safnið á Ís- landi í fyrsta sæti en þar er fjallað um það að á reð- ursafninu sé einna helst að finna reðra af íslenskum dýrum en einnig leynast þar reðrar af erlendum og framandi spendýrum auk list- sýninga tengdar reðrum. Fast á hæla reðrasafnsins fylgir banda- ríska klósettsafnið. n Dýraverndunarsinnar eru æfir eftir að hafa lesið viðtal í DV á miðvikudaginn við menn sem stunda það að drepa dýr á einka- búgörðum í Suður-Afríku. Eink- um og sér í lagi fóru fyrir brjóstið á lesendum eftirfarandi ummæli Jóhannesar S�efánsson- ar í Múla- kaffi: „Dýrin hafa í raun ekkert svig- rúm, enda girt af, en maður þarf samt að finna þau og hitta. Þetta er mjög þægilegt og einfalt skytterí.“ Hinn dáði kokkur fékk marga mínusa fyrir að kalla dráp á inni- lokuðu dýri „veiðimennsku“. Hver er konan? „Ég er Stefanía Eir Vignisdóttir.“ Hvar ólst þú upp? „Ég ólst upp á Akureyri.“ Hvað drífur þig áfram? „Ætli það sé ekki bara jákvæðnin?“ Eftirminnilegasta bókin „Barn náttúrunnar, það er svo falleg bók og ég hef lesið hana alveg milljón sinnum. Þetta er ein besta barnaminningin mín en ég var alltaf að lesa hana þegar ég var lítil.“ Eftirminnilegustu tónleikar? „Tónleikar Miriam Makeba í Laug- ardalshöllinni, þeir voru haldnir í maí í fyrra og þeir voru eitthvað svo falleg- ir og skemmtilegir. Miriam er í miklu uppáhaldi hjá mér þessa dagana.“ Hefur þú búið erlendis? „Já, ég var skiptinemi í ár í Gvate- mala og svo bjó ég í Mósambík í hálft ár þar sem ég var að byggja fræðslu- miðstöð fyrir ungt fólk.“ Af hverju fórstu að starfa við þróunaraðstoð? „Ég hafði haft áhuga á því alveg heillengi en ég held ég hafi bara verið um tíu ára þegar áhuginn á sjálfboða- vinnu kviknaði hjá mér.“ Af hverju valdirðu Mósambík? „Ég var alltaf ákveðin í að fara eitt- hvert í Afríku en svo las ég grein um íslenska konu sem býr úti í Mósamb- ík og setti mig í samband við hana en hún er einmitt að vinna fyrir Þró- unarsamvinnustofnunina úti í Mós- ambík.“ Hvað stendur upp úr eftir dvölina í Mósambík? „Svona eftir á að hyggja held ég að það sé allt fólkið sem maður kynnt- ist og allir litlu krakkarnir sem hengu alltaf utan í manni.“ Hvað kom þér mest á óvart úti? „Hvað það var ógeðslega mikið af rottum. Það var bara allt fullt af rott- um, þær búa í öllum húsþökum og ég þurfti bara að gjöra svo vel að læra að lifa með þeim.“ Hvernig var að flytja aftur heim? „Það vandist í rauninni bara strax, það er alltaf erfitt að koma aftur í sið- menningu en jafnframt alveg voða- lega gott. Það er að sjálfsögðu gríð- arlega mikill munur á Mósambík og Reykjavík.“ Er meiri þróunarvinna fram undan hjá þér? „Það er ekki á dagskránni í bráð fyrir utan skipulagningu styrktartón- leika sem fara fram á laugardaginn í Iðnó til styrktar Mósambík.“ Hverju viltu breyta? „Ég myndi vilja að ég og allir hinir myndum losna við alla fordóma.“ Hvað heillar þig? „Dagdraumarnir mínir.“ Hvað er fram undan? „Ég er að skipuleggja styrktar- tónleikana og svo er ég á leiðinni til Barcelona í ljósmyndunarnám.“ Eitthvað að lokum? „Já, ég vil hvetja sem flesta til að koma og kíkja á tónleikana á laugar- daginn og bið ég áhugasama um að setja sig í samband við okkur ef þeir vilja taka við verkefninu sem við sett- um á laggirnar úti í Mósambík. Einnig bendi ég á Myspace-síðuna myspace.- com/zambeziana.“ Í DAG Á MORGUN HINN DAGINN Veðrið +xx +xx +xx +xx +xx +xx +xx +xx +xx +xx +xx +xx +xx +xx +xx +xx xxxx xx xx xx xx +21 7 +13 7 xx xx xx xx +13 7 +12 7 +9 4 xx xx xx xx xx xx +xx +xx +xx +xx +xx +xx +xx +xx +xx +xx +xx +xx +xx +xx +xx +xx xxxx xx xx +11 4 xx +9 12 +11 7 xxxx xx xx +17 4 +12 4 xx +12 4 xx +11 4 +9 7 xx xx +9 7 xx +12 7 xx xx -xx -xx MAÐUR DAGSINS Heilluð af dagdraumunum Stefanía Eir hefur búið í Mósambík í hálft ár þar sem hún vann ásamt Charlotte vin- konu sinni við að byggja upp- lýsingamiðstöð fyrir ungt fólk. Nú leita stelpurnar að arftaka fyrir verkefnið og ætla að halda styrktartónleika í Iðnó á laug- ardagskvöldið þar sem þær vekja athygli á verkefninu. Rigning og meiri rigning Ég var spurður að því í heita pottinum að úr því að sumarið hefði verið þurrt, það er um miðbik þess, átta til níu vikur, þýddi það þá að við fengjum yfir okkur jafnlangt vætutímabil? rigningartíðin nú hófst um 20. ágúst og síðan þá er búið að vökva vel af himnum ofan, síður þó austanlands en vestan. ekki veit ég hversu lengi rakinn af atlantshafinu ætlar að sækja hingað, en nokkuð víst er að það verður að minnsta kosti vel fram í næstu viku. eftir fremur vætusama viku má gera ráð fyrir ágætasta veðri um mestallt land framan af laugardeg- inum. Á austur- og suðausturlandi er meira að segja spáð ágætishlýindum eða hita allt að 15 til 17°C og sólin sýnir sig víða. síðdegis er síðan von á nýrri lægð úr vestri og hún verður nokkuð eindregin rigningin suðvestan- og vestanlands aðfaranótt sunnudagsins. ekki svo hvass, enda er þessi lægð á hraðferð og á sunnudag komin skammvinn norðanátt. Þá með úrkomu norðaustan- og austanlands um tíma, en sunnanlands og vestan léttir til. eftir helgina eru síðan nýjar lægðir væntanlegar og sumum þeirra nú þegar spáð vænlegum lífdögum í návist Íslands. Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur �ýJar ÍSle�Skar þJóðSögur Það var í lítilli flugvél sem var notuð í áætlanaflug innanlands. Farþegarnir voru níu, auk flugmanns. Lengi var tvísýnt með flug sökum veðurs. Einn farþeganna, hávax- inn karlmaður sem meðal annars var klæddur hnéháum gúmmí- stígvélum, sat aftast. Ferðin sóttist svo sem ágæt- lega miðað við veður. Þegar um fimmtán mínútna flug var eftir, sneri flugmaðurinn sér við í sæti sínu og ávarpaði mann um miðja vél og bað hann að spyrja þann stóra sem sat aftast að koma fram í vélina og tala við sig. Hann ætl- aði að biðja hann að sitja á gólf- inu í lendingunni því hann þurfti þunga fram í vélina. Maðurinn sneri sér við og bað þann langa að tala við sig. „Hvað?“ sagði sá langi og virtist greinilega hræddur í þéttsetinni flugvél í vafasömu veðri. „Flug- maðurinn vill tala við þig,“ svar- aði hinn maðurinn. „Tala við mig, hvað vill hann mér?“ „Hann ætlar að biðja þig um að leysa sig af á meðan hann fer á klósettið,“ laug maður- inn sem sat um miðja vél. Auð- vitað var ekkert klósett í vélinni. Því trúði hins vegar langi maður- inn sem sat aftast í vélinni. Hann fölnaði og tók að skríða fram stuttan og þröngan gang vélar- innar. Þegar hann staðnæmdist við sæti þess sem sat um miðja vélina beygði sig fram og stamaði í eyra flugmannsins: „Viltu tala við mig?“ Hann bar öll merki kvíða, hafði aldrei stýrt flugvél. „Já,“ sagði flugmaðurinn og sagð- ist þurfa að biðja hann að sitja á gólfinu þar sem hann þyrfti meiri þunga fram í vélina. Þrátt fyrir hræðsluna og óttann var langa manninum í gúmmístígvélunum létt. Skelfdur horfði langi mað- urinn í augu hins, ekki glaður, og sagði ákveðinni röddu: „Þú ert meira helvítis fíflið.“ (Úr s�ríðn�ssögum) DVMYND Ásgeir

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.