Dagblaðið Vísir - DV - 14.09.2007, Blaðsíða 2
föstudagur 14. september 20072 Fréttir DV
Kannabis í
fjölbýlishúsi
Lögreglan á
höfuðborgarsvæðinu gerði í
fyrradag húsleit í fjölbýlishúsi í
Árbæ að undangengnum úrskurði
frá Héraðsdómi Reykjavíkur.
Húsráðandi, sem er karlmaður
á miðjum aldri, var handtekinn
í kjölfar húsleitarinnar en meðal
þess sem lögreglan fann var
kannabisplanta sem maðurinn
hafði verið með í ræktun á
heimili sínu. Lögreglan gerði
einnig upptækt lítilræði af ætluðu
maríjúana sem maðurinn var
með í vörslu sinni. Auk þess gerði
lögreglan upptækan riffil sem
hafði verið stolið á Norðurlandi.
InnlendarFréttIr
ritstjorn@dv.is
Staðfestu
gæsluvarðhald
Hæstiréttur staðfesti í gær úr-
skurð Héraðsdóms Reykjavíkur
þess efnis að Ásgeiri Heiðari Stef-
ánssyni verði gert að sæta gæslu-
varðhaldi til 5. október.
Héraðsdómur Reykjavíkur
dæmdi Ásgeir síðastliðinn föstu-
dag til átján mánaða óskilorðs-
bundinnar fangelsisvistar fyrir
margvísleg brot. Hann hefur líka
verið ákærður fyrir fleiri brot sem
ekki er búið að dæma í. Ásgeir
kærði úrskurð Héraðsdóms um
að hann skildi sæta gæsluvarð-
haldi uns dómur væri genginn í
máli hans. Ásgeir sem er 24 ára á
langan brotaferil að baki.
Leynd ríkir um
íþróttafélög
Fjöldi kvartana hefur borist
frá foreldrum til Íþrótta- og tóm-
stundaráðs Reykjavíkur vegna
hækkana á gjaldskrám íþróttafé-
laga eftir tilkomu frístundakorta.
Sólveig Valgeirsdóttir verkefna-
stjóri hjá ÍTR vill ekki gefa upp
hvaða félög er um að ræða. Hún
segir að þar sem verð hafi ekki
verið kannað hjá öllum félögum
sé ósanngjarnt að nafngreina að
svo stöddu.
Björn Ingi Hrafnsson, borg-
arfulltrúi og einn helsti baráttu-
maður þess að kortin kæmust á,
lýsti fyrr í
haust yfir
áhyggjum
vegna mögu-
legra hækkana
íþróttafé-
laga vegna
kortanna.
Farþega strætós var vísað frá:
Kaffið bannað
„Ég varð fyrir því að vera meinað
um aðgang að vagni vegna þess að ég
var með kaffi. Ég gekk þá út úr vagn-
inum enda hvarflaði ekki að mér að
henda kaffinu sem ég var nýbúinn að
kaupa. Bílstjórinn brást hinn versti við
og sagði að það væri bara Gísli Mart-
einn sem væri búinn að leyfa þetta,“
segir Grétar Mar Hreggviðsson, not-
andi strætós.
Borgaryfirvöld hafa lýst því
yfir að farþegar strætós
geti tekið með sér kaffi
inn í vagnana. Grét-
ar Mar ákvað að
láta á þetta reyna
en þegar á hólm-
inn var komið
var honum vís-
að út úr vagni með
kaffi sitt. Hann fékk þau
svör að ekki stæði til að leyfa
farþegum inngöngu með kaffi.
Reynir Jónsson, framkvæmdastjóri
Strætó bs., segir að borgarfulltrúar hafi
verið fullfljótir á sér að lýsa yfir að taka
mætti kaffi með í vagna. „Það er í sjálfu
sér alveg rétt að kaffi má ekki taka um
borð. Neysla þess er ekki heimil í vögn-
unum. Okkur finnst hugmyndin göf-
ug. Okkur þykir leitt að pólitíkusarnir
hafi lýst þessu yfir án samráðs við okk-
ur. Borgarfulltrúarnir riðu á
vaðið með þetta án
þess að hugsa út í
afleiðingarnar, til
dæmis skaðabóta-
ábyrgð ef einhver
brennist eða eitt-
hvað skemmist,“
segir Reynir. Lög-
fræðingar kanna
málið.
trausti@dv.is
Íslandsprent í vanda:
Beðið um gjaldþrot
Beiðni um gjaldþrotameðferð
Íslandsprents var þingfest í Héraðs-
dómi Reykjaness í gær. Það var gert
eftir að dómstóllinn synjaði nýver-
ið fyrirtækinu um framlengingu
greiðslustöðvunar. Ef til gjaldþrots
kemur verður um stærsta gjaldþrot
prentiðnaðarins að ræða hér á landi
þar sem skuldir fyrirtækisins nema
hátt í milljarði króna.
Lífeyrissjóðir lögðu fram
beiðni um gjaldþrot en í gær fengu
forsvarsmenn fyrirtækisins fjögurra
vikna frest til að vinna úr sínum
málum. Skuldir Íslandsprents á
opinberum gjöldum nema tugum
milljónum króna sem dregnar hafa
verið af starfsfólki fyrirtækisins.
Samkvæmt heimildum DV hafa
ellefu lykilstarfsmenn sagt upp
störfum eftir að opinberar skuldir
fyrirtækisins komu í ljós.
Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir hafa
ekki fengist svör frá Hilmari Sigurðs-
syni, framkvæmdastjóra Íslands-
prents, síðustu daga um stöðu mála.
Hús Íslandsprents forsvars-
menn fá fjórar vikur til að
bjarga málum.
322 óku of hratt
322 ökumenn eiga von á
sekt eftir að hafa verið mynd-
aðir á Bústaðavegi á þriðjudag
og miðvikudag. Fylgst var með
ökutækjum sem óku vestur Bú-
staðaveginn en þar er 60 kíló-
metra hámarkshraði. Meðalhraði
þeirra ökumanna sem reynd-
ust brotlegir var 74 kílómetrar á
klukkustund en 41 ökumað-
ur var mældur á yfir áttatíu
kílómetra hraða. Tveir
ökumenn voru á yfir 90
kílómetra hraða. Við
síðustu vöktun á sama
stað á Bústaðaveginum
var meðalhraðinn öllu
meiri eða 77 kílómetrar
á klukkustund. Þá mældust
einnig einhver ökutæki á yfir
hundrað kílómetra hraða.
Tólf ára drengur réðst á lögregluþjón
með hnífi í vikunni. Hann var á
miðvikudag fluttur til neyðarvistunar
á meðferðarheimilinu að Stuðlum
en afar fátítt er að svo ung börn komi
þar til vistunar. Drengurinn á að
baki sögu um fíkniefnaneyslu og
beitingu ofbeldis auk þess sem
hann hefur verið á vergangi á götum
Reykjavíkurborgar.
Mannlegur harmleikur
„Þetta er mjög einstakt en þó ekki
alveg nýtt að svona ung börn lendi í
alvarlegum málum sem leiða til að
taka þarf þau úr umferð með þessum
hætti,“ segir Geir Jón Þórisson,
yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni
á höfuðborgarsvæðinu. „Þetta er
óvenjulegt og afar sjaldgæft, sem
betur fer. Ég get ekki sagt annað en
að þetta sé mannlegur harmleikur.“
Drengurinn hefur samkvæmt
heimildum DV neytt fíkniefna auk
svokallaðs læknadóps, þar á með-
al flogaveikilyfsins Rivotril sem hef-
ur verið fjallað um að undanförnu
vegna þess hversu algengt er að það
sé misnotað.
Geir Jón bendir á að börn séu ósak-
hæf þar til á 15 ára afmælisdaginn.
Aðspurður hvaða ferli fari í gang
þegar börn verða uppvís að
brotum sem þessum segir hann að
barnaverndaryfirvöld og foreldrar
séu strax kölluð til. „Viðkomandi er
handtekinn. Það verður ekki hjá því
komist. Ákvörðun um framhaldið
er tekin í samráði við forsvarsmenn
barnsins og barnaverndarstarfsfólk.
Framhaldið helgast af málavöxtum
og því hvernig einstaklingurinn er
staddur. Neyðarvistun Stuðla hefur
sérhæft sig í að taka við unglingum
sem þurfa á neyðarvistun að halda.“
Hann bendir á að þar sé einnig
meðferðarvinna og að eðlilegt
sé að fagfólk í þeim geira sjái um
framhaldið. Lögreglan hefur ekkert
með málið að gera lengur vegna
ungs aldurs piltsins.
Félaginn á Kvíabryggju
Samkvæmt heimildum DV
hefur drengurinn gerst sekur um
ofbeldisverk og verið í vafasömum
félagsskap eldri pilta upp á síðkastið.
Meðal félaga hans er 16 ára drengur,
sá komst í fréttirnar fyrir nokkrum
mánuðum eftir að hafa skemmt
um þrjátíu bíla í Hafnarfirði með
því að brjóta í þeim rúður, sparka
í þá og rispa. Tjónið nam um 20
milljónum króna. Félagsskapnum
tilheyrir einnig 15 ára piltur sem
nýverið var dæmdur til refsivistar á
Kvíabryggju vegna ofbeldisbrota og
fíkniefnamisferlis.
Tæpar þrjár vikur eru síðan nýlegt
húsnæði neyðarvistunar Stuðla
brann og hefur sérstök aðstaða verið
innréttuð á meðferðardeildinni til að
vista erfið ungmenni tímabundið.
Bragi Guðbrandsson, forstjóri
Barnaverndarstofu, vildi hvorki tjá
sig um málið né almennt um mál
ungmenna á glapstigum þegar DV
náði tali af honum.
Erla Hlynsdóttir
blaðamaður skrifar: erla@dv.is
Tólf ára drengur sem á sögu um ofbeldisbrot og fíkniefnaneyslu dvelur á neyðar-
vistun Stuðla. Geir Jón Þórisson yfirlögregluþjónn segir málið mannlegan harm-
leik. Einn félagi piltsins skemmdi um þrjátíu bíla fyrir nokkru. Annar félagi hans
er á Kvíabryggju vegna ofbeldisbrota og fíkniefnamisferlis.
Geir Jón
Yfirlög-
regluþjónn
segir mál
drengsins
óvenjulegt
en ekki
einsdæmi.
Meðferðarheimilið stuðlar
tólf ára piltur var fluttur á
stuðla á miðvikudag.
„Þetta er mjög einstakt
en þó ekki alveg nýtt að
svona ung börn lendi í
alvarlegum málum sem
leiða til þess að taka þarf
þau úr umferð með þess-
um hætti“
TÓLF ÁRA RÉÐST MEÐ
HNÍFI Á LÖGREGLU