Dagblaðið Vísir - DV - 14.09.2007, Qupperneq 56
föstudagur 14. september 200756 Helgarblað DV
TónlisT
Hljómsveitin Our Lives heldur í sitt fimmta tón-
leikaferðalag um Bretland í dag en auk þess að
spila á fjölda tónleika á skömmum tíma ætla
strákarnir að taka upp tvö tónlistarmyndbönd í
Bretlandi. Í vor hélt hljómsveitin einnig í ferða-
lag um Bretland til að fylgja eftir smáskífunni
Söndru sem gekk, að sögn Jóns Björns, hljóm-
borðs- og bassaleikara hljómsveitarinnar, mjög
vel. „Ferðin sem við erum að fara í núna er án
efa stærsta tónleikaferðin okkar hingað til. Þetta
er svokölluð kynningarferð sem gengur þannig
fyrir sig að blaðamenn og annað fólk í tónlist-
arbransanum sendir tónleikabókaranum okkar
eftirspurn um að fá að sjá okkur á einhverjum
ákveðnum stað og þá förum við þangað og spil-
um. Þetta er í rauninni það sem við erum búnir
að vera að stefna að,“ segir Jón Björn, eða Bjössi
eins og hann er gjarna kallaður. „Svo erum við
líka einu sinni enn að klára plötuna okkar en það
er búið að vera langt ferli og við verið dugleg-
ir við að henda út efni sem við erum ekki nógu
sáttir við. Við erum búnir að vera í tvö ár að taka
upp plötuna en það gerir líka það að verkum að
við erum þá bara að gefa út góð lög en ekki ein-
hver léleg.“ Enn er ekki komið nafn á plötuna
en Bjössi segir stefnuna setta á að gefa hana út
snemma á næsta ári. Myndböndin tvö sem tekin
verða upp í þessu ferðalagi eru við íslenska lag-
ið Núna og lagið History Tells Me. „Bæði mynd-
böndin verða tónleikamyndbönd og planið er
að taka eitt þeirra upp í stórri breskri kirkju sem
við ætlum að reyna að fylla af furðulegum Bret-
um. Það er mjög spennandi að vera að fara að
taka þetta upp úti,“ segir Bjössi. Annars er það
fram undan hjá sveitinni að spila á Airwaves-há-
tíðinni í október en halda svo í heljarinnar tón-
leikaferðalag um landið í nóvember og desem-
ber. „Við hlökkum mjög mikið til að túra um
landið og ætlum að reyna að spila á sem flestum
stöðum. Planið er þá að fólk geti bara beðið okk-
ur um að spila einhvers staðar og við reynum að
redda því hvort sem það er í einhverjum bæ eða
bara úti í sveit. Það er mjög skemmtilegt að gera
eitthvað svona fyrir landsbyggðina líka. Krakk-
arnir sem alast þar upp þurfa á því að halda,“
segir Bjössi að lokum, en Myspace-síða sveitar-
innar er myspace.com/ourlives.
Risagítar til
góðgerðarmála
paul mcCartney hefur nú gefið þriggja
metra háan gítarskúlptur til góðgerðar-
mála. Handmálaði gítarinn verður
seldur á uppboði í London í nóvember
en á uppboðinu verður safnað
peningum til styrktar meðal annars
samtökum unglinga með krabbamein.
aðrar rokkhetjur sem hafa lagt sitt af
mörkum til uppboðsins eru gary
moore, rod stewart, brian may, paul
rodgers, robert plant, mark Knopfler
og Ozzy Osbourne.
Tónlistarakademía DV segir
Hlustaðu á þessa!
places Like this - architecture in Helsinki
Kala - m.I.a.
Challengers - New pornographers
Curtis - 50 Cent
graduation - Kanye West
Mesta eftir-
spurn sögunnar
Hljómsveitin Led Zeppelin tilkynnti á
miðvikudaginn dagsetningu og
staðsetningu á þeim einu tónleikum
sem hljómsveitin ætlar að halda en
þeir munu fara fram í London þann 26.
nóvember. miðasala hefur verið
takmörkuð við tvo miða á mann og er
miðaverð hvorki meira né minna en
sextán þúsund íslenskar krónur. eftir
blaðamannafundinn þar sem tilkynnt
var nánar um endurkomuna hrundi
heimasíða hljómsveitarinnar þar sem
aðdáendur voru svo æstir í að skrá sig á
lista til að ná í miða á tónleikana en
kynningarfulltrúinn Harvey goldsmith
spáir mestu eftirspurn í sögunni á
þennan stórviðburð.
Rjómatónleikar
á Organ
Vefritið rjóminn sem leggur aðaláherslu
á umfjöllun um nýútgefna tónlist
stendur fyrir tónleikum til styrktar
barna- og unglingageðdeild Landspítal-
ans, bugL, á skemmtistaðnum Organ í
kvöld, föstudagskvöld. Þær hljómsveitir
sem fram koma eru rokksveitirnar Coral,
Hellvar, Vicky pollard og april. miðaverð
á tónleikana er einungis 500 krónur og
rennur hver einasta króna til bugL þar
sem peningarnir verða notaðir í
forvarnaverkefni. Húsið er opnað
klukkan 19 en fyrsta hljósmveit stígur á
svið klukkan 22.
OUR LIVES TÚRAR UM BRETLAND OG TAKA UPP MYNDBÖND
Systkinin Ivan, 13 ára, og Ada, 11 ára, eru engir venjulegir unglingar en þau mynda
hljómsveitina Tiny Masters of Today sem er með betri pönk-rokksveitum nútímans.
David Bowie segir fyrstu vínylplötu þeirra vera snilld og söngkonan Karen O. syngur
með þeim í laginu Hologram World.
Hljómsveitin Tiny Masters of Today er ekki
einungis eftirtektarvert band fyrir þær sakir að
spila þrusugott indí-pönk-rokk heldur einnig
sökum þess að meðlimir sveitarinnar eru systk-
inin Ivan sem er einungis 13 ára gamall og litla
systir hans, Ada, sem er 11 ára. Það er sko engin
ástæða til að afskrifa Tiny Masters of Today ein-
ungis vegna þess hve ungir krakkarnir eru því
hér er virkilega á ferðinni hljómsveit sem gefur
stærri og reyndari böndum lítið eftir. Systkin-
in koma frá Brooklyn í New York og stofnuðu
hljómsveitina í byrjun árs 2005 þegar Ivan var
enn 10 ára og Ada einungis 8 ára gömul. Þau hafa
vakið mikla athygli í fjölmiðlum erlendis fyrir
ótrúlega tónlistarhæfileika og stórskemmtilega
sviðsframkomu en bæði spila þau á gítar (sem er
nánast jafnstór og Ada litla) auk þess sem Ivan
plokkar bassann og lemur á trommurnar og Ada
spilar á hljómborðið og syngur.
Karen O. gestasöngvari
Árið 2005 fengu systkinin samning hjá breska
útgáfufyrritækinu Tigertrap Records og í júlí 2006
gáfu þau út sína fyrstu plötu sem er þriggja laga
vínyllinn Big Noise. Big Noise var öll tekin upp
í kjallaranum heima hjá systkinunum og inni-
hélt lögin Stickin it To The Man, Tooty Frooty og
Bushy sem er skopleg ádeila á forseta Bandaríkj-
anna George Bush. Í desember sama ár gaf sveit-
in út sína aðra vínylplötu K.I.D.S. sem inniheldur
lögin Pictures, K.I.D.S. og gítarsólóið Cellphone
sem hljómaði eins og símhringing.
Þann 6. ágúst síðastliðinn kom svo út fyrsta
breiðskífa tvíeykisins en hún ber heitið Bang
Bang Boom Cake. Bang Bang Boom Cake hefur
hvarvetna fengið gríðarlega góða dóma og hafa
tónlistartímarit keppst við að hæla krökkunum
enda full ástæða til. Á Bang Bang Boom Cake
eru gestasöngvararnir ekki af verri endanum en
í laginu Hologram World eru það engin önnur en
hin ofursvala söngkona Karen O. og félagi henn-
ar Nick Zinner úr hljómsveitinni Yeah Yeah Yeahs
sem leggja krökkunum lið. Auk þess má heyra í
Kimya Dawson, fyrrverandi söngkonu The Moldy
Peaches, þenja raddböndin í laginu Trendsetter.
Eitt af lögunum á Bang Bang Boom Cake heitir
Hey Mr.dj og hafa bæði brasilíska sveitin CSS og
hljómsveitin The Liars remixað lagið.
Hrósað í hástert
Ef þið eruð enn ekki sannfærð um að Tiny
Masters of Today sé band sem svo sannarlega
sé þess virði að tékka á er spurning hvort þið
látið segjast eftir þær umsagnir sem sveit-
in hefur fengið í erlendum tónlistarmiðlum.
Hinn virti tónlistarmaður David Bowie er til
dæmis einn af þeim sem hafa farið fögrum
orðum um sveitina og segir hann til dæmis
fyrstu vínylplötu þeirra, Big Noise, vera snilld.
Tónlistartímaritið NME segir krakkana vera
hetjur og hið virta tímarit Newsweek seg-
ir hljómsveitina hreint ótrúlega. Í umfjöllun
um litlu snillingana í breska tónlistartímarit-
inu Drowned in Sound segir blaðamaður að
allir sem séu veikir fyrir ómetanlega svalri
sviðsframkomu og trylltum pönkslögurum
hreinlega verði að tékka á Tiny Masters of
Today. Að lokum mæli ég með því að fólk kíki
inn á Myspace-síðu sveitarinnar, myspace.
com/tinymasters og hlusti á þau lög sem þar
eru í boði og lesi sér enn betur til um þessa
litlu snillinga.
krista@dv.is
Hljómsveitin Our Lives Heldur í heljarinnar
tónleikaferð um bretland.
UNGIR PÖNK-ROKKARAR
MEÐ ÞRUSUHÆFILEIKA
Ivan 13 ára og Ida 11 ára
svölustu krakkar í heimi.
Tiny Masters of Today
er mjög eftirtektarvert
pönk-rokkband.