Dagblaðið Vísir - DV - 14.09.2007, Page 37

Dagblaðið Vísir - DV - 14.09.2007, Page 37
DV Helgarblað föstudagur 14. september 2007 37 yfir að lesa nema brot af öllu því sem okkur berst. Við þurfum oft að segja nei takk að óathuguðu máli.“ Jóhann Páll segir að þótt það sé umtalað að mesti ótti útgefanda sé að hafna snilldarverki láti hann það ekkert hafa áhrif á sig. „Það verð- ur bara svo að vera ef ég segi nei takk við ein- hverju snilldarverki, en það er þá vegna þess að ég hef ekki lesið það. Ég hef reyndar aldrei lent í því, en ég mun ábyggilega lenda í því einhvern tímann.“ En hvað ræður því að hann ákveður að gefa út bók eftir handriti sem hann hefur lesið? „Það er bara nefið. Nefið og tilfinningarnar sem ráða valinu fyrst og fremst. Mikið af íslenska efninu kemur reyndar af sjálfu sér því við erum komin í langtíma samstarf við marga höfunda. Þegar kemur að öðru efni, fræðiritum og þess háttar, eru það oft hugmyndir sem ég hef jafnvel gengið með áratugum saman og svo hrint í framkvæmd á ákveðnu augnabliki.“ Hann segist fylgjast mjög vel með því sem er að gerast í bókaútgáfu erlendis þótt mikið af því sé mjög yfirborðskennt. „Ég fylgist með umræð- um um bækur og fréttum af því hvaða handrit þykja spennandi áður en bækur koma út og ég reyni að mynda mér skoðun út frá því hvernig ég heyri fjallað um bókina og hvernig sagt er frá efni hennar og svo framvegis. Og þá skrifa ég eft- ir viðkomandi handriti eða útgefinni bók og tek til nánari skoðunar.“ Þurfa áhuga og ástríðu Hvað þurfa nýir íslenskir höfundar að hafa til að heilla Jóhann Pál? „Áhuga og ástríðu. Ég þarf að finna brjálaða ástríðu. Ég þarf að finna það að viðkomandi hafi skrifað verkið vegna þess að hann VARÐ að skrifa það, vegna þess að það lét hann ekki í friði. Það geta allir sest niður og skrif- að einhverja bók, en ég ráðlegg öllu ungu fólki að koma ekki nálægt þessu nema að það bara VERÐI að skrifa, annars segi ég því að snúa sér að einhverju öðru vegna þess að það er bara svo erfitt að vera íslenskur höfundur á þessu litla málsvæði. Það er svo óskaplega erfitt að það ætti enginn að fara út á þessa braut nema eðli hans segi: Ég verð að skrifa. Það er það sem ég er að fiska eftir.“ Þegar hann er spurður hvort hann muni eftir að hafa lesið handrit eftir íslenskan höfund sem hann hafi orðið alveg agndofa yfir tekur hann sér smá umhugsunarfrest en segir síðan ákveð- ið: „Punktur, punktur, komma, strik. Hún er mér minnisstæð vegna þess að hún markar eiginlega upphafið að útgáfustarfi mínu og vegna þess að hún var svo ofboðslega nýr og ferskur tónn í ís- lenskum bókmenntum. Þessi bók kemur fyrst upp í hugann þótt það sé örugglega fullt af öðr- um bókum sem hafa orkað svona á mig.“ Skúffuskáld Hefur hann aldrei gengið með þann draum í maganum að verða rithöfundur? „Nei, það er fullmikið sagt. Ég held ég fái útrás fyrir mína sköpunarþörf með því að starfa með höfund- unum og gefa út bækur því í því felst mikil sköp- un.“ Hann verður hugsi smá stund og dregur svo örlítið í land: „Mér hefur alltaf fundist það mjög heillandi tilhugsun að skrifa bók. Jú, jú, innst inni einhvers staðar, hef ég örugglega hugsað um að skrifa bók. Það er ósatt að ég hafi ekki látið mér detta það í hug en það hefur ekkert náð lengra en að semja einhver ljóð og það er langt síðan. Ljóð sem eru ofan í skúffu. Óli Gunn rithöfundur er alltaf að stríða mér, hann veit að ég á einhvers staðar stílabók með efni, en það fær enginn að fara í hana,“ segir hann og hlær. Skar sig úr hópnum Jóhann Páll er minnisstæður samnemend- um sínum í Verslunarskólanum af því að hann var ekki eins og þeir flestir. Hann var hippi með hár niður á bak í skóla sem samanstóð nær ein- göngu af jakkafataklæddum verðandi viðskipta- fræðingum. Spurður um ástæðuna fyrir því að hann hafi valið Versló segir hann það hafa verið skræfugang. „Það voru sagðar mjög miklar hryll- ingssögur af landsprófi og þótt mér hafi gengið mjög vel í skóla hafði ég lagt eyrun við þeim. Mér var bent á að maður gæti sloppið við landspróf með því að fara í inntökupróf í Verslunarskólann og ef ég kæmist þangað inn þyrfti ég ekki að fara í landspróf. Þetta var eina ástæðan fyrir því að ég fór í Versló.“ Hann kannast alveg við að hafa skorið sig úr hópnum. „Ég var villingurinn og sá sem stakk í stúf í þessum skóla.“ Hann gerðist ritstjóri skóla- blaðs Verslunarskólans sem þótti villt í meira lagi undir hans stjórn. Hann minnist þess sjálfur að Jón Gíslason heitinn, rektor skólans, kallaði hann á teppið og spurði hann á kurteisan hátt hvort hann gæti ekki mildað blaðið svolítið, það styngi nú mjög í stúf við ímynd skólans. „Ég hef alltaf verið uppreisnarmaður, það er alveg klárt. Ég vil ekki láta setja mig nokkurs stað- ar í skúffu. Ég hef verið mjög erfiður þegar kem- ur að því að haga mér samkvæmt einhverju hlut- verki sem ég er í, einhverri stöðu. Ég hef í raun og veru ofboðslega lítið breyst í gegnum tíðina, ég er bara alltaf sami vitleysingurinn og dettur ekki í hug að fara að leika eitthvað annað.“ Vill eiga sig sjálfur Jóhann Páll var í Versló í fjögur ár en gat ekki hugsað sér að ljúka þar tveimur síðustu árunum til stúdentsprófs þótt honum hafi fundist námið gott og gagnlegt. „Á fjórða ári fannst mér ég vera að lenda í of mikilli sérhæfingu. Ég stóð frammi fyrir því að velja fyrir síðustu tvo veturna og valið stóð á milli latínu og viðskipta og mér leist ekki alveg á blikuna, þetta yrði allt of mikil sérhæfing. Á þessum tíma voru hipparnir náttúrulega upp á sitt besta og mig langaði að breyta til og fara í Menntaskólann við Hamrahlíð þar sem deiglan var. Ég fékk óvæntar undirtektir við þessu frá for- eldrum mínum og skipti því um skóla. Var síð- ustu tvö árin í MH og er stúdent þaðan.“ Hann segir það mjög góðan kokkteil, versl- unarskólaumhverfið og frjálsræðið í Hamrahlíð- inni. „Í Hamrahlíð var allt var vaðandi í komm- únistum og frelsishetjum. Þótt ég hafi aldrei látið binda mig á klafa, ég hef til að mynda aldrei tengst stjórnmálasamtökum eða ungliðahreyf- ingum því það var hluti af uppreisninni að til- heyra engu, eiga mig sjálfur, átti það vel við mig.“ Hippi inn að beini Aðspurður segist hann hafa verið hippi alveg inn að beini. „Ég var mikið blómabarn. Það er voðalega skrýtið þegar maður lítur til baka að í einhver ár, öruggleg tvö ár, trúði ég því virkilega frá innstu hjartans rótum að hipparn- ir, og það sem þeir boðuðu, myndu frelsa heiminn. Ég var algerlega heill og blindur í því, ég virki- lega trúði því.“ Jó- hann Páll segist hafa stundað hippatrú- boð í Verslunarskól- um, fyrir frekar dauf- um eyrum. „Það var mun auðveldara í Hamrahlíðinni.“ Hann minnist þessa tíma með mik- illi sælu. „Það er nátt- úrulega dásamleg- ur tími þegar maður trúir því að það séu til svona yndislegar leiðir til þess að lífið á jörðinni verði al- gerlega dásamlegt og allir fallist bara í faðma og lífið sé ein- faldlega í bláum reyk. Auðvitað sakna ég þess þótt þetta hafi ekki verið raunhæft. Þetta er kannski eins tilfinning og sú sem maður hefur þegar maður verð- ur ástfanginn. Þeg- ar elskendurnir eru algerlega sjálfir sér nægir og umheimur- inn skiptir engu máli. Það er ekkert sem kemur í staðinn fyrir þessa tilfinningu í nýrri ást þótt auðvitað sé hægt að rækta ástina. Ég er rosalegur tilfinningamað- ur, það er engin spurning.“ Spurður hvort hann hafi farið alla leið í hippa- hugsjóninni og notið bláa reyksins sem hann tal- aði um. „Það tilheyrði þessum tíma. Ég ætla ekki að fara að þykjast hafa verið einhver engill, ég var hippi inn að beini og gerði það sem tilheyrði. Eins og allir vita sem þekkja mig hef ég lifað mjög djarft. Ég hef lifað á barmi hengiflugsins alla tíð, í einum eða öðrum skilningi. Það virðist bara dá- lítið vera eðli mitt, að vera alltaf á barmi hengi- flugsins. Það er náttúrulega mjög vandasamt og hættan er sú að maður falli fram af. Ég hef hins vegar verið svo gæfusamur að eitthvað hefur séð til þess að þegar mig hefur svimað illa á brúninni hefur eitthvað kippt í mig. Ég er mjög jarðfastur og skynsamur þrátt fyrir þetta brjálæði allt sam- an þannig að ég hef haft vit á því að ganga fjær brúninni þegar sviminn kemur yfir mig og ég gæti verið við það að falla fram af. Ég ætla ekkert að þakka sjálfum mér það. Ég segi bara að það sé einhver sem heldur verndarhendi yfir mér. Það hefur alltaf verið einhver skynsemi í brjál- æðinu.“ Hættur að drekka Fyrir rúmum áratug ákvað Jóhann Páll að hætta að drekka og snúa til heilsusamlegra líf- ernis. „Það ætti að reisa styttu af mér fyrir framan Heilsuhælið í Hveragerði, ég lifi svo heilsusam- legu lífi að það er tæpast hægt að ganga lengra í því, að undanskildu því hvað ég vinn mikið. En það er kannski nákvæmlega dæmi um hvern- ig ég er. Ég veit að ég er að stefna heilsu minni í hættu með þessu vinnubrjálæði en ég geri allt sem ég get til að bæta fyrir það. Ég lifi á óhemju- hollum mat. Þeir sem þekkja mig kalla þetta ógeðsdrykki, spínathristingana mína sem ég fæ mér oft í hádeginu. Ég reyki ekki, drekk ekki og neyti engra eiturlyfa. Ég hreyfi mig mjög mikið og sef reglulega þannig að líf mitt er í tiltölulega föstum skorðum, bara til þess að geta þetta,“ seg- ir hann. Hann viðurkennir að þetta séu einmitt einkenni á þeim sem þurfa að lifa samkvæmt einhverjum öfgum. Hann játar því að hafa verið í óreglu. „Það er ekki spurning að áfengi var farið að valda mér kvölum. Ég er algerlega vonlaus fyllibytta. Ég er allt, allt of viðkvæmur maður til þess að nota áfengi. Eftir áfengisneyslu var ég með taugaend- ana gjörsamlega bera og það er nú ekki gott að ganga þannig um í samfélaginu, ég tala nú ekki um eins hart og það er orðið. Það er bara ekki hægt. Mér var farið að líða ömurlega illa á sálinni og þetta var allt orðið erfitt. Þótt ég væri að kapp- kosta að standa mína pligt, sem að sjálfsögðu klikkar einhvern tímann.“ Hann segir að það hafi ekki verið um neitt annað að ræða heldur en að að leggja áfenginu. Það var mér ákaflega auðvelt. Vinir mínir hafa oft ekki skilið það hvað ég hef átt auðvelt með að bakka út úr hlutunum en tilgangurinn með vímu eins og áfengi, var að líða vel. Mér leið illa sem barni, ég var þunglyndur og óhemjulega feim- inn, alveg sjúklega, og þegar ég kynntist áfengi fannst mér ég geta horft framan í annað fólk og þyrfti ekki að vera svona voðalega krumpaður. Þetta var alveg dásamleg uppgötvun fyrir mig. En þegar ég síðan áttaði mig á því, hvort sem það var áfengið eða eitt- hvað sem tilheyrði hippaárunum, að í stað þess að veita mér þessa vellíðan sem ég var að sækj- ast eftir voru áhrif- in af efnunum farin að snúast upp í and- stæðu sína. Það var ekki hugmynd mín. Ég gerði þetta til þess að láta mér líða vel og átti því ekkert erfitt með að hætta þegar það var hætt að gera fyrir mig það sem það átti að gera í upphafi.“ Hann segist hafa verið búinn að velta því fyrir sér lengi að hætta að drekka. „Ég átti ekkert erfitt með að viðurkenna það að ég drykki meira en ég hefði gott af. Ég reyndi samt að halda áfram að nota það án þess að það ylli mér of miklum kvölum en svo kom að því að kvalirnar á sálinni voru orðn- ar of miklar, mér leið of illa, þá var ekkert mál að hætta. Um leið og ég upp- götvaði að öll gleði og ánægja tengd áfengisneyslunni var horfin, var þetta ekkert vandamál að stökkva út úr þessu.“ Jóhann Páll hætti fyrst að drekka í eitt ár en segist þá hafa verið búinn að gleyma því hvað honum leið illa af áfengisneyslu. Hann hafi því drukkið í önnur þrjú ár áður en hann fór í með- ferð og hætti alveg. Síðan eru liðin mörg ár. Gerðist af sjálfu sér Stórar fréttir bárust af sameiningu JPV og Máls og menningar á dögunum. Margir hafa velt því fyrir sér hvernig Jón Páll hafi farið að því, með fyrirtæki sem veltir 400 milljónum á ári, að taka yfir fyrirtæki sem veltir rúmlega tvöfalt hærri upphæð. Hvert er leyndarmálið? „Þetta var síður en svo markmið mitt á nokkurn hátt. Þetta gerðist bara allt af sjálfu sér. Ég geri ráð fyrir því að það liggi í því að við höfum verið að vinna vinnuna okkar á undanförnum árum og vissu- lega lagt ofboðslega vinnu í þetta. Þetta þótti nú óráð á sínum tíma að leggja af stað með JPV í samkeppni við Eddu sem var í meirihlutaeigu Björgólfs Guðmundssonar. Svo kemur á daginn að peningar einir og sér duga ekkert til að reka útgáfustarfsemi. Útgáfustarfsemi snýst um fólk- ið sem að henni kemur og hvernig vinna er unn- in af hendi.“ Hann segir að rekstur JPV hafi gengið vel al- veg frá upphafi og að þetta hafi einfaldlega orðið niðurstaðan. „Það sem hefur mesta tilfinningalega gild- ið fyrir mig í þessu öllu er að vera búinn að fá Iðunni og Forlagið, tvö gömlu fyrirtækin mín, í hús þótt það sé ekki mikil starfsemi undir þeirra nafni í dag. Það er eins og hringnum hafi verið lokað.“ Jóhann Páll bendir á að innan hins nýja sam- einaða forlags sé löng saga og mikil klassík sem sé óendanlega mikilvægt fyrir Íslendinga að sé vel ræktuð. „Innan Eddunnar er annars vegar af- burðastarfsfólk og frábærir höfundar, lifandi og látnir, og auðvitað þekki ég margt af þessu fólki. Þetta fólk kemur allt inn á jafnréttisgrundvelli. Ég er ekkert hoppandi eins og brjálaður sigur- vegari til að drottna yfir einum né neinum. Ég vil að við vinnum saman.“ Nýja fyrirtækið verður rekið í anda JPV und- ir stjórn Jóhanns Páls og Egils Arnar sonar hans og verður öll starfsemi þess í húsakynnum JPV í vesturbænum. „Okkur líður mjög vel hér í rót- grónu hverfi. Eins og svo margt í mínu lífi og starfi að ég byggi þetta allt á tilfinningu. Ég er mjög óhefðbundinn bissnessmaður og set til að mynda aldrei neitt upp í Excel. Ég hef aldrei reiknað út kostnað við eitt einasta útgáfuverk, enda er alveg ljóst að ég hefði aldrei þorað að gefa út bestu verkin sem ég hef gefið út ef ég hefði gert það, þannig að ég byggi allt á tilfinn- ingu. Þess vegna viljum við vera hér áfram, þetta er bara tilfinningaratriði.“ Hann bendir á að JPV hefur gengið mjög vel og það hljóti því að þýða að það sé gáfulegt mód- el sem ekki sé ástæða til að breyta. „Auðvitað breytist eitthvað, fyrirtækið stækkar náttúrlega mjög mikið, en við munum leggja ofurkapp á það að viðhalda vinnubrögðum JPV, þessum góða anda sem hér er. Við munum ekki fara í neinn silkihúfuleik hér.“ Kötturinn stjórnarformaður Jóhann Páll á köttinn Randver sem hefur til þessa óformlega verið titlaður stjórnarformað- ur JPV. Verður kötturinn stjórnarformaður hins nýja fyrirtækis? „Halldór Guðmundsson verður að sætta sig við það að Randver er hinn eiginlegi stjórnarformaður þessa fyrirtækis. Það er ein af ástæðunum fyrir því, og ég er ekkert að grínast, að það kom ekki til greina að flytja, að kötturinn hefði aldrei tekið það í mál. Ég bý hér uppi á lofti og kötturinn hefði aldrei samþykkt það að flytja upp í Síðumúla eða upp á Höfða.“ Hann segir það heldur enga lygi að þeg- ar mikið sé á seyði og hann þurfi að taka stór- ar ákvarðanir þá labbi hann yfir til kattarins sem hefur hreiðrað um sig á skrifborðsstól á skrif- stofu Jóhanns Páls og ræði við hann um það. „Hann svarar iðulega með því að ef hann er sæll og glaður og malar og er afslappaður hefur hann lagt blessun sína yfir málið. Ef hann ókyrrist er málið alvarlegra.“ Spurður hvort kötturinn hafi samþykkt samrunann svarar Jóhann Páll: „Við Egill [Örn Jóhannsson framkvæmdastjóri] áttum fund með Halldóri [Guðmundssyni] og Árna [Einarssyni, forstjóra Eddu] um þetta mál. Þá leit ég varla á Halldór og Árna því ég fylgdist bara með kettinum og hvernig honum liði á meðan á tali okkar stóð. Hann var ákaflega afslappaður með þetta og þá var þetta á hreinu í mínum huga. Og ég er ekki að ljúga þessu.“ Þegar Jóhann Páll er spurður af hverju Randver spili svona stórt hlutverk í hans lífi seg- ist hann ekki alveg kunna að skýra það. Kettir skiptu hann einfaldlega óendanlega miklu máli í uppvextinum. „Pabbi var svona. Ég ólst upp með köttum. Eins og ég sagði áðan var ég þunglynd- ur krakki og feiminn og kettir reyndust mér allt- af dásamlegir trúnaðarvinir og ég gat alltaf beðið þá um hjálp. Ég gat grátið ofan í feldinn á þeim og þeir sýndu mér ævinlega skilning.“ Guð stækkandi hluti af lífinu Jóhann Páll biður til Guðs þegar mikið ligg- ur við. Hann segir að Guð sé stækkandi hluti af lífi sínu. „Ég er svo sem ekki alinn upp í neinu sérstöku trúarumhverfi, síður en svo, þótt faðir minn hafi verið ágætlega trúaður inn við beinið og mjög kristilegur í öllu sínu lífi. Það eru auðvit- að verkin og framkoman sem skipta meira máli en allt orðagjálfur. Hann var sannkristinn mað- ur í öllu sínu lífi og ákaflega góður og vandaður maður. En Guð hefur spilað æ stærra hlutverk í mínu lífi og mér finnst mjög mikilvægt að rækta það samband. Ég finn að eftir því sem Guð kom meira inn í líf mitt að ég er mjög óænægður þeg- ar kemur skeið þar sem það samband dofnar, ég finn hvað það gerir mér gott að vera í sambandi við almættið. Já, Guð skiptir mig máli. Ég get ekkert þakkað sjáfum mér fyrir allt það sem líf- ið hefur fyrir mig gert. Ég hef, þrátt fyrir allt, átt mjög glannalegt líf. Allt hefur gengið mjög vel hjá mér þótt auðvitað hafi ýmislegt gengið á, svo sannarlega. En ég hef alltaf bjargast. Að vera góður strákur Á hann eitthvað lífsmottó? „Æðruleysi og að taka sig ekki of hátíðlega. Og það var löngu kom- ið til áður en ég hætti að drekka. Það er að taka lífinu af æðruleysi og gleyma ekki að við erum öll maurar. Það er best að við séum vinnusamir maurar og göngum skipulega til starfa. Við verð- um að vara okkur mjög á hégómleikanum, ég held að hann sé mjög hættulegt fyrirbæri. Ég hef sem betur fer ekki þurft að hafa mikið hugann við það, foreldrar mínir voru gjörsamlega laus- ir við allan hégómleika. Aðallífsmottóið er bara að vera góður strákur. Ég hef aldrei botnað neitt í sjálfum mér, ég hef ekki hugmynd um hver ég er og ef ég hef einhvern tímann lagst í einhverj- ar spekúlasjónir um það hver ég er hef ég ennþá minni hugmynd um það. Þannig að af þessu öllu saman skiptir máli að vera góður strákur. Það er klárt.“ sigridur@dv.is „Ég hef aldrei átt draum eða takmark, ég bara tek lífinu eins og það kemur og því sem það færir mér upp í hendurnar.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.