Dagblaðið Vísir - DV - 14.09.2007, Síða 43

Dagblaðið Vísir - DV - 14.09.2007, Síða 43
DV Helgarblað föstudagur 14. september 2007 43 Þ að er bara mjög fínt,“ segir Hera Hilmarsdóttir, leikkona og nemi, spurð að því hvernig það sé að vera kölluð upprennandi kvikmyndastjarna á meðan hún er enn í menntaskóla. Hera fer með stórt hlutverk í kvikmyndinni Veðramótum eftir Guðnýju Hall- dórsdóttur. Þar leikur hún Dísu, kaldrifjaða vandræðastúlku sem snemma á ævi sinni var svift sakleysinu af fósturföður sínum og hefur verið send á vandræðaheimili til þess að þagga niður neyðaróp hennar. Gagnrýnendur eru flestir á sama máli, en þeir segja Heru vera unga og upprennandi leikkonu, sem gefur reynslumeiri leikurum kvikmyndarinnar ekkert eftir. „Það er auðvitað mjög gaman að fá svona dóma, sérstaklega þar sem maður er að gera þetta í fyrsta skipti,“ segir Hera, en hún er þó kvikmyndaleiknum ekki alveg ókunnug, en áður hafði hún leikið örlítil í Sporlaust og Tár úr steini, sem eru kvikmyndir eftir föður hennar, Hilmar Oddsson. Hefur viljað leika frá blautu barnsbeini „Ég man ekki einu sinni hvenær ég fékk áhugann á leiklist, það er svo langt síðan,“ segir Hera. Hins vegar var það í gagnfræðaskóla þegar hún ákvað að gerast leikari. „Það voru söngleikirnir og þess háttar í Hlíðaskóla sem fengu mig til þess að spá í þetta fyrir alvöru.“ Þaðan lá leiðin í MH, en Hera segir að þó nálægðin við Hlíðaskóla hefði truflað hana lúmskt, hefði MH samt boðið upp á þá fjölbreytni sem hún vildi og auk þess var hann rómaður fyrir öflugt leikfélag. Hera hefur verið tvö ár í leikfélaginu, en í fyrra varð hún að sleppa því, þar sem upptökur á Veðramótum voru tímafrekar. „Helsti kosturinn við leiklistarfélagið í MH er hversu stórt það er. Það er fjölbreyttur hópur sem er til í alls konar tilraunastarfsemi, sem er einmitt það sem heillar mig.“ Leiklistin tekin fram yfir sellóið „Ég var alltaf rosalega mikið í tónlist. Ég var í massífu tónlistarnámi í mörg ár og æfði á selló. Þegar ég svo byrjaði í menntaskóla fór ég í Tónlistarskóla Reykjavíkur á sama tíma og lærði hjá Gunnari Kvaran. Þá áttaði ég mig að ef ég ætlaði að ná langt á sellóinu, yrði ég að eyða allri minni orku í það. En á sama tíma langaði mig að taka þátt í leiklistinni, því má segja að tónlistin hafi lotið í lægra haldi fyrir henni, en ég hætti að spila á sellóið eftir fyrsta árið mitt í MH. Reyndar gríp ég í það stöku sinnum, en mætti vera mun duglegri.“ Stefnir á leiklistarskóla í London Hera útskrifast úr MH núna um jólin, hálfu ári áður en samaldrar hennar. Hún segist þó hugsanlega ætla að taka þátt í starfi leikfélags- ins í ár, þó að starfið teygi sig fram yfir áramót. „Svo eftir það ætla ég að fara að sækja um í leiklistarskólum, sem er heljarinnar ferli. Í augnablik- inu langar mig ekki að fara í Leiklist- arskóla Íslands heldur frekar að fara eitthvert út og læra. London yrði þá helst fyrir valinu. Mér þykir sú borg spennandi og svo átti ég heima þar um tíma á mínum yngri árum. Svo er það alltaf hálfgerður draumur; að búa í London og vera í leiklistar- skóla,“ segir Hera. Langt ferli að leika í mynd Hvað varðar hlutverkið í Veðra- mótum, hreppti Hera það eftir að Guðný Halldórsdóttir, leikstjóri myndarinnar sá hana í leikritinu Ís- lenski fjölskyldusirkusinn, sem leik- félag MH setti upp. Fyrir það hlutverk hlaut Hera mikið lof og var með- al annars útnefnd leikkona ársins í sýningum áhugaleikhúsa, af gagn- rýnendunum Þorgeiri Tryggvasyni og Hrund Ólafsdóttur.Það er langt ferli að taka upp kvikmynd, en Hera lét það ekki bitna á námi sínu við MH og þakkar því helst góðu skipu- lagi og sveigjanleika kennara. Um sex vikur fóru í upptökur á mynd- inni, þar meðal taldar þrjár vikur á Snæfellsnesi. Þrír leikarar úr mynd- inni voru við nám í Hamrahlíð þegar myndin var tekin upp, en auk Heru voru það Gunnur Martinsdóttir Schlüter og Arnmundur Ernst Back- man. Þær Hera og Gunnur þekktust fyrir, en Hera segir að upptökurnar hafi styrkt vinaböndin mikið. Ekkert mál að leika á móti reyndari leikurum Í Veðramótum leikur Hera í mörg- um atriðum gegn ívið reyndari leikur- um, til dæmis þrúgandi senum með þeim Hilmi Snæ Guðnasyni, Atla Rafni Sigurðssyni og Þorsteini Bach- mann. Hún segist þó ekki hafa átt í neinum erfiðleikum með það, þvert á móti. „Nei í raun ekki. Það var bara gaman. Það var ekkert mál vegna þess að leikararnir voru skemmtilegir og létu mig aldrei finna til vanmáttar gagnvart þeim.“ Nokkurs konar stundarbrjál- æði að leika á sviði Hera segist enn ekki vita hvort sviðsleikur eða kvikmyndaleikur höfði meira til hennar. „Ég get full- yrt neitt um það, ég hef bara leikið í menntaskólasýningum og hef því ekki kynnst hvernig það er að vera á alvöru sviði, ef svo má að orði kom- ast. Mér finnst helsti munurinn vera sá að á sviði fær maður viðbrögð og „feedback“ frá áhorfendum jafn- óðum og því er maður í hálfgerðu stundarbrjálæði á meðan á sýn- ingunni stendur. Hins vegar er það ekki svoleiðis með kvikmyndir, þeg- ar maður þarf kannski að bíða í heilt ár til þess að sjá afrakstur erfiðisins. Annars er það víst skemmtilegra að leika fyrir framan myndavél, þegar maður er orðinn vanari.“ Þurfti að sanna sig fyrir foreldrum sínum- Þrátt fyrir að vera að klára menntaskólann á styttri tíma en aðrir, segist Hera hafa lítinn áhuga á því að feta akademísku leiðina. „Mér finnst mjög gaman að læra tungumál og þess háttar, en annað heillar mig ekki jafnmikið og leiklistin,“ segir Hera. Hins vegar nýtur hún mikils stuðnings heima fyrir í því sem hún tekur sér fyrir hendur enda eru foreldrar hennar þaulreyndir í bransanum. „Í fyrstu reyndu þau hljóðlega að fá mig frá leiklistarbransanum, en þegar þeim var ljóst að mér var alvara studdu þau mig heilshugar,“ en þess ber að geta að móðir Heru er Þórey Sigþórsdóttir leikkona. „Ég þurfti sífellt að vera að sanna mig og það má eiginlega segja að mér hafi tekist það. En ég er þeim líka þakklát, vegna þess að þau gerðu mér grein fyrir því að maður getur ekki tekið sér neitt fyrir hendur án þess að gefa sig allan í það.“ Hitt húsið hjálpar upprenn- andi leikurum Yfir sumartímann reynir Hera að vinna, ferðast og í raun gera það sem ekki gefst tími til yfir veturinn. Hún starfaði eitt sumar í Götuleikhúsi Hins hússins og annað við Skapandi sumarstörf. „Það er mjög sniðugt fyrir krakka sem eru að stefna á að starfa við menningu í framtíðinni að nýta sér það sem Hitt húsið býður upp á. Að fá að vinna við að skapa og búa til breytir mjög miklu fyrir mann.“ Engin verkefni í vændum „Nýlega lék ég í stuttmynd eftir Rúnar Rúnarsson, 2 Birds, það var mjög gaman að vinna með honum,“ en Rúnar var tilnefndur til óskarsverðlauna fyrir stuttmynd sína Síðasti bærinn í dalnum. Hvað önnur verkefni varðar segir Hera að það sé lítið annað á dagskránni nema ljúka stúdentsprófi, þó að einhverjir leikstjórar hafi látið í sér heyra, er ekkert staðfest á borðinu. Hera hefur eins og áður hefur verið sagt fengið frábæra dóma fyrir leik sinn í Veðramótum. Meðal annars hér í DV, sagði Erpur Eyvindarsson hana hafa skilað hlutverki sínu svo vandlega að erfitt væri að taka ekki eftir því. DV hvetur alla þá sem vilja sjá þennan unga og upprennandi leik- ara stíga sín fyrstu skref til þess að skella sér í kvikmyndahús og sjá Veðramót. Þjófstartaði ferlinum „Í fyrstu reyndu þau hljóðlega að fá mig frá leiklistarbransan- um, en þegar þeim var ljóst að mér var alvara studdu þau mig heilshugar.“ Hera Hilmarsdóttir Hefur hlotið frábæra dóma fyrir hlutverk sitt í Veðramótum. Veðramót fjallar um byltingarsinna sem ferðast norður í land til þess að stjórna vistheimili fyrir vandræðabörn. Dísa Hera fer með hlutverk dísu í myndinni, en sú reynist mikill örlagavaldur.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.