Dagblaðið Vísir - DV - 14.09.2007, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 14.09.2007, Blaðsíða 9
Ríkisstofnunum fækkar Ríkisstofnunum hefur fækkað um tæplega 50 frá árinu 2000. Minnsta ríkisstofnunin er með tvo starfsmenn en sú fjölmenn- asta er Landspítali með rúmlega 4.700 manns. Minnstu stofnan- irnar eru á sviði tolla- og skatta- mála. Rúmlega helmingur stofn- ana ríkisins er með færri en 50 starfsmenn en hjá þeim stofnun- um starfa aðeins um tíu prósent ríkisstarfsmanna. Sé litið á stöðugildi eru 59% stofnana með færri en 50 stöðu- gildi, en hlutfallið árið 1998 var 68%. Út frá þessum tölum má ráða að ríkisstofnunum hefur fækkað samhliða því sem þær hafa stækkað hvað varðar fjölda starfsmanna. DV Fréttir föstudagur 14. september 2007 9 InnlendarFréttIr ritstjorn@dv.is Ákærðir fyrir vörslu fíkniefna „Þetta eru alls níu ákærur á hendur þessara einstaklinga til meðferðar og auk þess er ein ákæra um fíkniefnaakstur,“ segir Eyþór Þorbergsson, fulltrúi sýslu- mannsins á Akureyri. Á miðvikudaginn fór fram aðalmeðferð í máli Óla Friðbergs Kristjánssonar, Hrannars Þórs Kjartanssonar og bræðranna Þengils Stefánssonar og Ás- mundar Gunnars Stefánsson- ar. Þengli er gefið að sök að hafa ekið undir áhrifum fíkniefna en hinar ákærurnar varða brot á lög- um um vörslu fíkniefna. Í heild- ina fundust á annað hundrað grömm af fíkniefnum á mönn- unum og var þar á meðal hass og amfetamín. Ekki hefur tekist að sanna að mennirnir hafi ætlað efnin til sölu. Búist er við dómi á næstu tveimur vikum. Kortavelta aldrei meiri Heildarvelta vegna kredit- kortanotkunar hefur aldrei verið meiri en í nýliðnum ágústmán- uði, þá var hún 25,5 milljarðar króna. Debetkortavelta í innlend- um verslunum var alls 20,6 millj- arðar króna. Þetta eru sterkar vísbendingar um að mikill vöxtur hafi hlaupið í einkaneyslu landsmanna. Sam- fara hækkandi sól í sumar jókst kortaveltan til muna. Útlit er fyrir að einkaneysla á yfirstandandi ársfjórðungi vaxi milli ára og vegur það gegn samdrætti vegna aðsteðjandi loka á stóriðjufram- kvæmdum. Atvinnulausum fækkar 1.578 voru atvinnulausir í ág- úst, eða 0,9 prósent þjóðarinnar. Þetta eru 102 færri en í júlímán- uði og minnkaði atvinnuleysi því um 6,5 prósent á milli mánaða. Atvinnuleysi í ár er 24 prósent- um minna en á sama tíma í fyrra þegar atvinnuleysi var 1,2 prósent. Atvinnulausum á höfuðborgar- svæðinu fækkar töluvert meira en á landsbyggðinni. Á höfuðborg- arsvæðinu fækkaði atvinnulaus- um um tíu prósent en á lands- byggðinni fækkaði atvinnulausum um 2,5 prósent. Fleiri konur eru atvinnulausar en karlar en 1,2 prósent þeirra eru atvinnulaus á meðan atvinnuleysi karla er 0,6 prósent. Jens R. Kane flugstjóri hefur verið ákærður fyrir líkamsárás: Flugstjóri sparkaði í liggjandi unnustu Jens R. Kane, 41 árs flugstjóri hjá Icelandair, hefur verið ákærður fyrir líkamsárás á fyrrverandi kærustu sína. Honum er gefið að hafa tekið hana hálstaki, slegið höfði hennar í vegg og sparkað í hana þar sem hún lá á gólfi íbúðar hans þar sem hún dvaldi. Jens komst í fréttirnar í ágústlok þegar Morgunblaðið fjallaði um að flugstjóri hefði smyglað unnustu sinni frá Venesúela með fragtflugi til Íslands. Hún íhugar að kæra hann einnig fyrir smygl á sér. Ákæra gegn Jens var þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur á þriðju- dag. Líkamsárásin á að hafa átt sér stað síðla janúarmánaðar og slitnaði upp úr sambandi þeirra í kjölfarið. Fyrrverandi kærasta Jens leitaði læknishjálpar og kom í ljós að hún hafði tognað á hálsi, hlotið roða á hálsi og eymsli á brjóstkassa. Auk þess hlaut hún hrufl og marbletti á brjóstkassa, á herðum og fékk sár á hægra hné. Einnig kvartaði hún undan eymslum á hægra herðablaði, brjósti, hrygg og á aftanverðu hægra læri. Í kjölfar fréttaumfjöllunar um smygl sendi Jens yfirlýsingu til Morg- unblaðsins þar sem hann hafnaði því alfarið að um líkamsárás hefði verið að ræða. Hann segir hið rétta í málinu vera að konan hafi stofnað til áfloga þegar hann krafðist þess að hún yfirgæfi heimili hans. Jens tók í yfirlýsingu sinni fram að hún væri stór og kröftug kona. Hann telur að hún hafi kært hann til að fá að dvelja í landinu og að hið sanna eigi eftir að koma í ljós. Fyrir dómi var þess krafist að Jens myndi sæta refsingu fyrir líkamsárás og greiðslu bóta að upphæð 500 þúsund krónum. Kröfugerð er með þeim fyrirvara að mögulega komi í ljós frekari afleiðingar árásar hjá konunni. Í samtali við DV vildi Jens ekki tjá sig um málið. Hann vildi heldur ekki segja til um hvort honum yrði vikið frá störfum á meðan á rannsókn málsins stæði yfir og skilaboðum þess efnis til upplýsingafulltrúa Ice- landair var ekki svarað. erla@dv.is Jens R. Kane Jens er gert að hafa smyglað kærustu sinni frá Venesúela með fragtflugi til Íslands. 11. bókin er komin út. Gæsahúð eftir Helga Jónsson er einn allra vinsælasti bókaflokkur landsmanna. Tóti og töfraprikið höfðar líka til yngri lesenda en áður. Margar konur á aldrinum 20-90 ára muna eftir Nancy Drew bókunum. Hér hefst nýr bókaflokkur fyrir stelpur á aldrinum 8-14 ára. Fyrsta bókin heitir Horfin sporlaust. Næsta bók kemur út í október og heitir Mikil áhætta. Spenna og fjör fyrir börn og unglinga. Bergdorf blondínur er krassandi skemmtilestur þar sem gert er stólpa- grín að Paris Hilton kynslóðinni, al- gerlega í anda Bridget Jones bókanna. Höfundurinn vann á tískutímaritinu Vogue. Þýðandi er Sigríður Halldórs- dóttir. Frumútgáfa í kilju. Fyrir þá sem vilja frekar hlusta en lesa. Gæsahúð er komin út á geisladiski. Bækurnar Gula geimskipið (nr. 3) og Flóttinn heim (nr. 4). Lesari: Ragnheiður Eiríksdóttir (Heiða í Unun). SPENNA N HELD UR ÁFR AM! N ÝR F LO KK U R FY RI R ST EL PU R G RÍ N SA G A U M P A RI S H IL TO N !? ! HLUSTAÐU og fáðu GÆSAHÚÐ! www.tindur.is tindur@tindur.is ENGIR SKÓLALIÐAR EFTIR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.